Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
30.11.2009 | 17:20
Grýla og þjóðkirkjan
Það er skondin frétt í Morgunblaðinu sem segir frá því að Grýla og Skyrgámur Leppalúðason hafi fært Hjálparstofnun kirkjunnar höfðinglegar gjafir. Af þessu má ráða að engum er alls varnað.
Grýla og jólasveinarnir þóttu áður hin mestu illfygli. Þó það hafi breyst með jólasveinana þá hefur Grýla hins vegar haft þann sess fram að þessu að nauðsynlegt væri að vara sig á henni. Nú leitar Grýla greinilega sátta við þjóðkirkjuna. Spurning er hvort að jólaötturinn komi næstur með höfðinglegar gjafir til stofnana þjóðkirkjunnar og sáttaboð við æðri mátt.
Þá er spurning hvort að Grýla, jólasveinarnir og jólakötturinn fái aðgang að helgi kirkjunnar ef svo ber undir fyrir góða hegðun og kristilegt líferni á síðari árum.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/30/gjafmild_gryla/
Dægurmál | Breytt 21.12.2009 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2009 | 17:06
Sjómannaafsláttur
Fyrir nokkrum dögum sagði Steingrímur J. Sigfússon að ekki stæði til að afnema sjómannaafsláttinn. Nú hefur hann sett fram tillögur um að gera það í áföngum á kjörtímabilinu.
Röksemd Steingríms nú(sem er önnur en hún var fyrir tveim dögum) er að unnt sé að afnema sjómannafsláttinn í áföngum en byrja þó ekki strax af því að sjómenn hafi fengið launahækkun á árinu á meðan flestar aðrar stéttir hafi þurft að sæta launalækkun. Í framhaldi af þeirri fullyrðingu telur Steingrímur eðlilegt að byrja að skerða sjómannaafsláttinn eftir tvö ár þó ekkert sé vitað hver kjör sjómanna verða þá.
Eðlilegt er að Steingrímur sé spurður að því í framhaldi af þessum vangaveltum sínum af hverju það er verjandi að þyngja skattheimtuna á þeim sem lækkað hafa í launum strax en fresta skattaþyngingunni hjá þeim sem hafa hækkað í launum um tvö ár. Þurfa ekki þeir sem hafa nú verri kjör frekar á umþóttunartíma að halda en þeir sem hafa notið kjarabótar á árinu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.11.2009 kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
26.11.2009 | 08:56
Með haustskipunum
Sú var tíðin að það tók mánuði og jafnvel ár að koma bréfum til skila. Það var á tímum hraðboða og seglskipa. Nú er önnur öld. Samt sem áður tekur það forsætisráðherra Breta 3 mánuði að svara bréfi forsætisráðherra Íslands. Hann sendi bréf sitt með haustskipunum eins og sagt var forðum. Raunar var bréfasending Jóhönnu Sigurðardóttur vafasöm. Nú á tímum eiga forustumenn þjóða fundi um viðkvæm mál eða nota nútímalegri samskiptamáta en bréfaskipti
Svarbréf forsætisráðherra Breta er með ólíkindum. Gordon Brown sýnir forsætisráðherra og Íslendingum algjöra lítilsvirðingu. Hann dregur í marga mánuði að svara. Þá undirstrikar hann lítilsvirðinguna með því að taka ekki á efnisatriðum bréfs Jóhönnu Sigurðardóttur. Þess eru fá dæmi að forsætisráðherra eins ríkis hafi sýnt forsætisráðherra annars ríkis jafnfádæma lítilsvirðingu.
Hvernig ætlar íslenska ríkisstjórnin að bregðast við því?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2009 | 15:00
Segir viðskiptaráðherra af sér?
Spurning er hvort viðskiptaráðherra mun axla ábyrgð og segja af sér. Í nokkurn tíma hefur flogið fyrir að Vinstri grænir vilji losna við hann. Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna ber viðskiptaráðherra og ríkisbankana þungum sökum.
Lilja Mósesdóttir er formaður Viðskiptanefndar Alþingis. Hún sagði á Alþingi að Viðskiptanefnd hafi komist að raun um að bankarnir fari ekki að samræmdum lögum og reglum sem gilda varðandi endurskipulagningu fyrirtækja og hefur boðað viðskiptaráðherra á fund nefndarinnar á morgun.
Ummæli Lilju Mósesdóttur sýna fram á óþol gagnvart viðskiptaráðherra. Það er alvarlegt þegar formaður Viðskiptanefndar Alþingis segir að bankarnir starfi ekki eftir lögum og reglum. Ábyrgðina á því ber viðskiptaráðherra en hann eins og ríkisstjórnin hafa vanrækt að móta samræmdar reglur um starfsemi bankanna og gæta þess að þar sé farið að lögum. Þegar formaður Viðskiptanefndar segir nefndina hafa komist að raun um lögbrot bankanna þá liggja slíkar upplýsingar fyrir hjá Viðskiptaráðherra sem greinilega gerir ekkert í málinu. Viðskiptaráðherra var sá sem talaði hvað hæst um það á sínum tíma að aðrir tækju sinn poka og öxluðu ábyrgð. Hvað segir hann nú um sína ábyrgð?
Það verður óneitanlega fróðlegt að sjá hvernig þetta mál verður leyst á kærleiksheimili ríkisstjórnarinnar og stuðningsflokka hennar.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/25/bankar_fara_ekki_ad_reglum/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.11.2009 | 09:04
Hvað vill Arion banki?
Arion banki hefur ráð stærstu smásölukeðjunar í höndum sér. Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður talsmaður hóps sem vilja kaupa keðjuna segir að stjórnendur bankans vilji ekkert tala við sig af viti. Á sama tíma er sagt frá því að Aríon banki sé í viðræðum við þá sem nú stjórna keðjunni. Svo virðist sem stjórnendur Arion vilji ekki tala við aðra.
Íslensk verslun er sú óhagkvæmasta og dýrasta í okkar heimshluta. Þar ræður mestu hvernig Hagar reka verslanir sínar vegna þess að þeir eru markaðsráðandi. Stjórnendur Arion banka virðast staðráðnir í að halda þessari óhagkvæmu og samkeppnishamlandi skipan. Af hverju ekki að nýta tækifærið og brjóta keðjuna upp og reka í hagkvæmari einingum og leyfa einstaklingsfrelsinu og athafnafrelsinu að njóta sín. Gæti það ekki verið góður kostur fyrir neytendur.
Áður fyrr fóru einstaklingar og fyrirtæki á hausinn og gátu síðan byrjað upp á nýtt eins og dæmi er um marga íslenska athafnamenn í upphafi síðustu aldar. Þetta reyndist vel og ekki var svínað á samkeppnisaðilum. Af hverju má ekki fara að í samræmi við þessa eðlilegu leikreglu markaðssamfélagsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
20.11.2009 | 23:15
Félagsmálaráðherra fagnar
Helmingur lánþega Íbúðalánasjóðs sagði nei takk við greiðslujöfnunarleið Félagsmálaráðherra. Í framhaldi af því sagðist Félagsmálaráðherra fagna þeirri niðurstöðu. Sú Ráðstjórnarleið sem farin var að krefjast þess að fólk afþakki þennan meinta greiða Félagsmálaráðherra er með ólíkindum. Hún gengur þvert á þá lánasamninga sem fólk hefur gert. Vandséð er að gera megi breytingar á lánasamningunum nema með samþykki skuldara.
Getur verið að Félagsmálaráðherra sé svo veruleikafirrtur að hann telji sig bjóða skuldurum upp á ásættanlegar tillögur þegar helmingur þeirra afþakkar? Óvíst er með hinn helmingin hvort allir þar samþykkja í raun þá breytingu sem Félagsmálaráðherra leggur til.
Þrátt fyrir að Félagsmálaráðherra neiti að horfast í augu við það þá liggur nú fyrir að þessi tillögusmíð hjálpar ekki og er ekki sú skjaldborg um heimilin í landinu sem lofað var.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2009 | 17:27
Kalli vinur minn vill líka fá lán
Kalli vinur minn sagðist eiga í erfiðleikum með að greiða laun starfsmanna fyrirtækisins en það væri allt í lagi. Hann ætlaði að fá lán hjá viðskiptabanka fyrirtækisins fyrir rekstrarkostnaði. Ég spurði Kalla hvort hann hefði einhver veð. Kalli sagðist hafa veð í fyrirtækinu sem væri all nokkuð þar sem allir starfsmenn félagsins væru sérfræðingar og ómetanlegir fyrir íslenska þjóð. Já sagði ég en Kalli þetta er meir en milljarður er þetta ekki svolítið 2007.
Nei sagði Kalli þetta er einmitt 2009. Ríkisbankarnir fella niður milljarða og Landsbankinn lánaði Decode einn og hálfan milljarð í byrjun ársins til að borga laun og annan rekstrarkostnað og fékk sambærilegt veð og ég er að bjóða. Já sagði ég en þú ert búinn að reka fyrirtækið í mörg ár með bullandi tapi Kalli og skuldar ofboðslega mikið. Skiptir engu sagði Kalli það var Kári Stefánsson og Decode líka. Er ekki jafnræði í þjóðfélaginu?
Hvernig er það annars er ekki ríkisábyrgð á ríkisbönkunum? Borga skattgreiðendur ekki allar niðurfellingar, vitlausar lánveitingar og rugl í bönkunum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
18.11.2009 | 18:28
Uppgjöf ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur ekki mótað neinar marktækar tilraunir til að draga úr ríkisútgjöldum. Afleiðingin er sú að hækka á skatta á fólkið í landinu. Ríkisstjórnarskatturinn er hluti af aðgerðarleysiskostnaðinum sem Mats Josefsson ráðgjafi ríkisstjórnarinnar benti á fyrir nokkru að mundi gera kreppuna hér verri og dýpri en hún hefði þurft að vera.
Fólk sem horfir fram á gríðarlegar skattahækkanir spyr sig eðlilega að því af hverju ríkisstjórnar- og embættismannabruðlið heldur áfram eins og ekkert sé.
Hvað með að leggja niður Varnarmálastofnun, sendiráð, sameina ríkisbanka????
Nei Steingrímur ætlar að koma á fót nýjum ríkisstofnunum. Væntanlega næst ríkissparisjóðum þegar þrír ríkisbankar eru til staðar í landinu.
Ríkisstjórn sem hefur þær einu tillögu að skattpína fólkið í landinu þarf að víkja,
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.11.2009 | 10:47
Skilur Hæstiréttur Íslands ekki neitt?
Brynjar Níelsson hrl fjallar um nýgenginn dóm Hæstaréttar í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn stjórnarmönnum í Glitni á bloggi sínu í Pressunni í gær, en þau sjónarmið sem hann setur fram var löngu tímabært að fá fram.
Í umfjöllun fjölmiðla þá sérstaklega í fréttum ríkisfjölmiðilsins og umræðuþáttum hefur helst mátt skilja að í Hæstarétti Íslands sætu dómarar sem bæru almennt lítið skynbragð á lög og rétt í landinu auk þess sem þeim væri fyrirmunað að skilja málefni sem varða viðskiptalífið auk þess sem þeir væru almennt á móti lítilmagnanum.
Ég hafði ekki kynnt mér umrætt mál þangað til dómur gekk og vonaðist til þess að Vilhjálmur Bjarnason hefði sigur í málinu. Svo fór ekki og við skoðun á málinu gat ég ekki séð að Hæstiréttur hefði getað komist að annarri niðurstöðu. Hvað sem því leið þá var umfjöllun fréttastofu Ríkisútvarpsins bæðí óeðlileg og hlutdræg.
Í samræmi við þá hlutdrægu umræðu sem RÚV hefur haldið uppi um málið var eðlilegt að um málið væri fjallað einhliða í helsta umræðuþætti ríkissjónvarpsins. Ekki verður annað séð en í frétta- og umræðuþáttum ríkisfjölmiðilsins hafi verið fjallað um þennan dóm Hæstarréttar af fólki sem hefur álíka færni í að meta dóma Hæstaréttar og lögfræðingur til að stunda heilaskurðlækningar.
Ég átti von á því að Lögræðingafélagið,Lögmannafélagið eða jafnvel félög laganema í þeim of mörgu háskólum landsins þar sem lögfræði er kennd mundu láta frá sér heyra um þessa hlutdrægu og ómálefnalegu umfjöllun ríkisútvarpsins um dóm Hæstaréttar. Þögn þessara aðila er óskiljanleg vegna þess að sé það rétt sem haldið hefur verið fram í fréttum og fréttatengdum þáttum Ríkisútvarpsins þá þyrftu viðkomandi dómarar Hæstaréttar að segja af sér. Þeir væru þá gjörsamlega vanhæfir.
Það má e.t.v. benda vandlæturum Ríkisútvarpsins og þeim fjölmörgu hagfræðingum og viðskiptafræðingum sem um dóminn hafa fjallað á það að eðlilegra er að beina reiði sinni að Alþingi fyrir að hafa afgreitt lög sem gera Hæstarétti ekki kleyft að dæma með öðrum hætti en þeim sem um ræðir. Hvað þá að gera ekkert í málinu þegar fyrir liggur túlkun Hæstarréttar á þessu lagaákvæði.
Slóðin inn á grein Brynjars Níelssonar hrl.:
http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Brynjar/rettlaeti-og-sanngirni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
11.11.2009 | 11:04
Ó hve margur yrði sæll
Ó hve margur yrði sæll // og elska mundi landið heitt //Mætti hann verða í mánuð þræll //og moka skít fyrir ekki neitt.
Ég er ekki viss um að ég fari alveg rétt með þessa vísu en það geta vonandi einhverjir sem vita betur leiðrétt mig. En þetta var kveðið þegar til stóð að skylda allt ungt fólk til að vera einn mánuð í þegnskylduvinnu.
Nú horfir hins vegar þannig við að verði ætluð skattaáform ríkisstjórnarinnar að lögum að þá mun þjóðin þræla frá janúar fram í ágúst til að hafa ofan í samneyslu ríkis og sveitarfélaga. Síðan tekur lífeyrissjóðurinn einn mánuð.
Verðum við ekki að hugsa þetta upp á nýtt. Eigum við ekki að draga úr samneyslunni og gefa fólki kost á því að ráða meiru um það með hvaða hætti það lifir og ver peningunum sínum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 22
- Sl. sólarhring: 432
- Sl. viku: 4238
- Frá upphafi: 2449936
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 3949
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson