Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2023
30.7.2023 | 10:42
Vaxtaokur og dýrtíð
Afkomutölur viðskiptabankanna og ávöxtun eigin fjár þrátt fyrir ofurlaun og bruðl, sýna að bankarnir eru með óeðlilega háa vexti og óeðlilega mikinn vaxtamun. Ástæða þess er takmörkuð samkeppni og skortur á aðhaldi.
Þegar um takmarkaða samkeppni er að ræða ber ríkisvaldinu að gæta hagsmuna neytenda bæði sparifjáreigenda og lántakenda, en það gerist ekki og enn og aftur bregðast stjórnvöld neytendum.
Stýrivaxtahækkanir Seðlabanka Íslands eiga ekki að leiða til hærri vaxta bankanna eða meiri vaxtamunar en sem því nemur. En íslensku bankarnir hafa alltaf kunnað það fag með miklum ágætum, að nýta hækkun stýrivaxta til að taka meira af kökunni til sín en eðlilegt er.
Sé vilji fyrir að ná verðbólgunni niður, þá þarf að bregðast við á öllum sviðum til að stöðva það gegndarlausa okur sem viðgengst í þessu þjóðfélagi einkum þar sem samkeppni er takmörkuð.
Af hverju virkja stjórnvöld ekki almannasamtök eins og Neytendasamtökin og fleiri með myndarlegum fjárframlögum, til að sinna því þjóðhagslega mikilvæga hlutverki að berjast gegn verðbólgu og fyrir eðlilegum viðskiptaháttum? Það kostar minna og er þjóðhagslegra hagkvæmara en að láta einokunarfyrirtækin og okrið vaða yfir samfélagið.
29.7.2023 | 11:38
Gölluð vara í boði ríkisstjórnar og olíufélaga.
Allir söluaðilar bensíns tilkynntu, að þeir hygðust hefja sölu á gölluðu bensíni. Bensínið er blandað etanoli, orkan er minni og veldur skemmdum á vélum bíla. Gölluðu vörunni á að troða upp á neytendur hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Á sama tíma og olíufélögin hefja sölu á gallaða bensíninu er venjulegt bensín tekið af markaðnum og er ekki í boði lengur. Neytandinn fær ekki sjálfur að velja.
Einokunarkaupmennirnir á 18.öld voru frægir fyrir að selja maðkað mjöl. Nú hafa olíufélögin ákveðið að feta í fótspor þeirra.
Af hverju fá neytendur ekki sjálfir að ráða hvort þeir vilja venjulegt bensín eða þetta lélega? Af hverju eru olíufélögin og ríkisstjórnin að svindla á neytendu og koma í veg fyrir valfrelsi þeirra með þvingaðri neyslustýringu.
Er einhver furða þó mörgu Sjálfstæðisfólki þyki lítið leggjast fyrir forustu flokksins í ríkisstjórn þegar frelsinu og almennum markaðslögmálum er vikið ítrekað til hliðar og víðtæk neyslustýring er tekin upp?
28.7.2023 | 10:47
Óttastjórnun
Þega vindurinn gnauðar og frostið bítur, er spurt hvar er þessi hnattræna hlýnun. Prestar umhverfiskirkjunnar segja þá, að þetta sé bara veður og hafi ekkert með hlýnun eða kólnun að gera. En hitabylgjur sumars eru ekki bara veður heldur váboði, sem þýðir að við munum öll stikna í hel.
Samt er ekkert að gerast í náttúrunni sem ekki hefur gerst áður nema ef vera skyldi, að búið er að koma hitamælum loftslagsstofnunar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fyrir víða í borgum m.a. við enda flugbrauta og biðstöðvar almenningsvagna þessvegna mælist stöðugt hærra hitastig en áður og klerkar loftslagskirkjunnar fagna.
En það er ekkert sérstakt að gerast. Í Evrópu koma hitabylgjur yfirleitt þrisvar á sumri og standa mislengi. Ein slík og sú fyrsta hefur nýlega riðið yfir í Suður Evrópu óvenju seint, en langvinn á meðan það hefur verið tiltölulega kalt í Norður Evrópu. Í Bandaríkjunum hefur líka verið hitabylgja.
Engin talar um það sem skiptir þó miklu veðurfyrirbrigðið "El Nino", sem hefur víðtæk áhrif á veður um allan heim.
Af því að fólk sér að það er ekkert óvenjulegt að gerast, þá verða spámenn loftslagskirkjunnar að kyrja hamfaraspár sína sem óðast og af stöðugt meira móði. Nú er sagt að mælist hlýjustu mánuðir í sögu mannlífs á jörðu. Sú sérstæða della sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir kommúnistinn Guterres er til þess fallin að hræða stjórnvöld í Evrópu til að herða enn meir að neytendum og skattgreiðendum.
Samt er það svo þegar farið er yfir sögu mannkyns, að mannlíf blómstrar best og hefur alltaf gert á hlýskeiðum en kreppa, sjúkdómar og mannfellir verður á kuldaskeiðum. Sbr. um 1.200 f.kr. samanborið við hlýskeiðið 1000 árum síðar. Sögulausu vísindamennirnir hefðu gott af því að lesa bókina 1177 B.C árið sem menningin hrundi.
Það er nú einu sinni þannig að hamskipti í veðri hafa orðið oft í veraldarsögunni og við þessi litlu peð mannfólkið, höfum lítið með það að gera.
Við gætum ekki einu sinn slökkt í eldgosinu við Litla Hrút þrátt fyrir alla okkar tækni hvað þá að stjórna veðurfari í heiminum sem er margfallt margbrotnara og flóknara verkefni.
25.7.2023 | 11:11
Gegn vinnandi fólki
Svokallaðir vinstri flokkar, sem kenna sig við almannahagsmuni, hafa á nokkrum árum skipt algerlega um áherslur. Þeir berjast ekki lengur fyrir hagsmunum vinnandi stétta, hinn almenna verkalýð. Ekki manninn sem Steinn Steinar orti um í ljóði sinu "Verkamaður"
Barátta meintra verkalýðsflokka, nýja vinstrisins snýst ekki um kaup og kjör heldur að troða hælisleitendum inn í landið á kostnað skattgreiðenda. Kolefnisjöfnun með hækkun skatta og verðlags og koma í veg fyrir möguleika vinnandi fólks til að ferðast. Á sama tíma fara auðmennirnir hvert sem þeir vilja á einkaþotum án þess að nýja vinstrið hafi neitt við það að athuga.
Gæluverkefni vinstra fólksins er að banna arðskapandi atvinnu ef hún er þeim ekki að skapi eins og hvalveiðar og strandveiðar. Fjöldi alþýðumanna er sviptur lífsviðurværi en það skiptir ný-vinstrið engu máli og transhyggja hinna örfáu og kynræna sjálfræðið er að þeirra mati aðalatriði ásamt því að skipta um þjóð í landinu.
24.7.2023 | 11:38
Hefði hann verið hælisleitandi
Frásögn systur af andláti Ólafs Ögmundssonar bróður síns er átakanleg. Mikill dugnaðarmaður þurfti að þola það í ellinni, að vera hent út úr leiguíbúð eftir að heilsan gaf sig og konan hans lá banaleguna.
Ég þekkti Ólaf sem mikinn dugnaðarmann, greindan, skoðanafastan og ákveðinn. Mér finnst átakanlegt að heyra hvernig staða hans var, en hann kunni ekki að kvarta. Samt sem áður lá fyrir hver staða hans var, en kerfið hafði engum skyldum að gegna við hann. Fjársöfnun honum til stuðnings bar nokkurn árangur en þó ekki nægan.
Hefði Ólafur sem var geðþekkur og góður maður með mikla réttlætiskennd verið hælisleitandi, hefði honum verið útveguð íbúð og læknishjálp.
Svona er nú misskipt mannanna gengi á landi hér. Þannig er Ísland í dag.
23.7.2023 | 10:56
Þjóðernissinnaður hægri flokkur
Í dag eru þingkosningar á Spáni. Fréttastofa RÚV hefur fundið sinn óvin þar, VOX flokkinn, sem RÚV segir öfgahægri flokk.
Fréttastofa RÚV andskotaðist út í flokk Melloni á Ítalíu vegna sömu ávirðinga. Eftir að Melloni varð forsætisráðherra sést, að ríkisstjórn hennar er sú besta á Ítalíu um áratuga skeið.
En hver er þessi VOX flokkur á Spáni?
VOX byggir á kristnum gildum, virðingu fyrir einstaklingnum og er andstæðingur fasisma, nasisma og kommúnisma. VOX er á móti kynrænu sjálfræði og vill loka moskum öfgamúslima. Þeir berjast fyrir lægri sköttum og gegn útþennslu ríkisbáknsins.
VOX telur að lög Spánar eigi að gilda umfram lög Evrópusambandsins(ES)og er sammála okkur, sem erum á móti tillögu utanríkisráðherra um að ES lög gildi umfram íslensk.
VOX stendur fyrir einstaklingshyggju,valddreifingu, kristin gildi og mannréttindi. Þessvegna kærðu þau Kóvíd ráðstafanir stjórnar sósíalista, til stjórnlagadómstóls Spánar og unnu sigur.
RÚV greinir ekki frá því að Sósíalistar hafa staðið fyrir árásum á frambjóðendur VOX. Þessir vinstriöfgamenn, sem saka VOX um fasisma eru þeir einu sem beita frambjóðendur annarra flokka ofbeldi og reyna að koma í veg fyrir lýðræðislega starfsemi andstæðinga sinna.
VOX er róttækur þjóðernissinnaður hægri flokkur, sem vill ekki að það sé skipt um þjóð á Spáni og leggur fram tillögur um að stemma stigu við straumi hælisleitenda til landsins. Þeir vilja verja einingu Spánar og andæfa gegn grænu öfgahyggjunni.
Athyglisverð eru ummæli eins helsta forustumanns VOX fyrir nokkru varðandi innflytjendastrauminn, en hann sagði: "Það eru bara þeir ríku sem geta veitt sér þau lífsgæði að eiga ekki föðurland." Þeir ofurríku, berjast nú flestir fyrir glópalisma og alheimsstjórn með Davos sem höfuðborg sína. Gegn þjóðríkinu og hefðbundnu lýðræði.
Við lýðræðissinnar sem viljum venda þjóðríkið, valddreifingu og réttindi einstaklinganna verðum að vera í varðstöðu gagnvart þeim öflum. Raunverulegu lýðræði og þjóðríkinu stafar hætta frá auðkýfingunum í Davos, en ekki frá þeim sem vilja vernda hefðbundið lýðærði og fullveldi þjóðríkisins.
21.7.2023 | 10:09
Léleg vinnubrögð og hræðsluáróður.
Fréttastofa RÚV er ein lélegasta fréttastofa Evrópu. Fréttir af heimsviðburðum eru takmarkaðar og fréttaskýringar iðulega litaðar pólitískum áróðri og/eða vanþekkingu.
Tvennum fréttum sinnir fréttastofan þó af mikilli alúð en það eru fréttir af eldgosinu, sem fréttastofan gerir vel og áróður um ofurhita í suðurhluta Evrópu,en sérstakur þáttur er um þessi atriði dag hvern.
Sagt er að um 60 þúsund manns muni deyja úr hita í Evrópu á þessu ári. Ekki er sagt frá því að um 200 þúsund manns deyja úr kulda í Evrópu á ári hverju. Ekki er gerð grein fyrir því að nú er í gangi veðurfyrirbrigðið El Nino í Kyrrahafi, sem veldur miklum átökum í veðri um allan heim og hugsanlega þeim staðbundnu hlýindum sem nú er í Evrópu. Ekki er stuðst við sambærilegar mælingar ári til árs o.s.frv. Allt þetta veldur því að þessar fréttir eru áróður fyrir meintri hnattrænni hlýnun af mannavöldum í stað þess að vera hlutlæg fréttamennska.
Hve lengi ætla alþingismenn að láta það viðgangast að fólk sé neytt til að borga til áróðursmiðstöðvar RÚV við Efstaleiti. Frjálsir borgarar hljóta að krefjast þess að fá að nýta þá fjölmiðla sem þeir vilja og borga fyrir það, en séu ekki neyddir til að borga fyrir fjölmiðil, sem er orðin að þjóðmálahreyfingu og lítur á hlutverk sitt sem slíkt.
20.7.2023 | 10:05
Skoðanir eru hættulegar
Skoðanir eru hættulegar. Sérstaklega ef þær eru ekki í samræmi við samhljóma kór meirihlutans. Þær skoðanir sem bera í sér hvað mesta hættu fyrir fólk á Vesturlöndum eru efasemdir um hamfarahlýnun af mannavöldum. Andstaða gegn því að skipta um þjóðir í löndum Evrópu, varnaðarorð gagnvart Íslam svo ekki sé talað um efasemdir varðandi aðgerðir stjórnvalda í Kóvíd og þöggun varðandi ofstopann og fasismann í því sambandi.
Coutts bankinn í Englandi hefur rekið stjórnmálamann úr viðskiptum vegna skoðana hans, en á sama tíma er bankinn með einræðisherra, rússneska olicarcha, morðingja og nauðgara í viðskiptum.
Skoðanir eru greinilega hættulegri en glæpir.
En í sambandi við þetta allt saman, þá hefur komið í ljós, að þeir sem hafa afskipti af stjórnmálum eða þessvegna láta skoðanir í ljós eru á válista banka um allan hinn "frjálsa" heim. Lýðræðissinnar þurfa heldur betur að vera á verði gagnvart grímuklæddum fasisma "góða fólksins."
19.7.2023 | 11:46
Ofbeldi "hinna réttlátu" endurtekur sig
Þegar Ralph Nader helsti baráttumaður neytenda í Bandaríkjunum skrifaði greinina "Unsafe at any speed" um bílategundina Chevrolet Corvair, hóf Chevrolet fyrirtækið ofsóknir gegn honum í stað þess að reyna að lagfæra gallaða vöru. Dreift var óhróðri og lygi um Nader. Nader fór í mál við fyrirtækið og hafði frækinn sigur.
Þegar Nigel Farage fyrrum þingmaður á Evrópuþinginu og pólitískur forustumaður hélt því fram, að bankareikningi hans hjá Coutts bankanum hefði verið lokað vegna pólitískra skoðana hans, þá sagði bankinn það rangt, reikningnum hefði verið lokað vegna ófullnægjandi innistæðu "insufficent funds".
Breska stórblaðið DT birtir í dag frétt, sem sýnir að yfirlýsingar bankans eru lygi. Reikningi Farage var lokað vegna skoðana hans, sem sagðar eru ógeðfelldar og andstæðar skoðunum meirihlutans í þjóðfélaginu. Farage sýni útlendingahatur og sé rasisti. Skoðanir hans varðan varðandi meinta hamfarahlýnun er þó það sem réði úrslitum.
Skýrslan sýnir að næg inneign var á bankareikningi Farage.
Reikningi Farage var lokað án skýringa og bankinn reyndi að fela af hvaða ástæðum það hafði verið og laug til um ástæðuna. Í skýrslunni segir, að Farage hafi ekki haft uppi óviðukvæmileg ummæli við starfsfólk heldur sýnt góða framkomu og starfsólki kurteisi. Geta fyrirtæki krafist meira af viðskiptavinum? Eiga viðskiptafyrirtæki að hafa leyfi til að gera upp á milli viðskiptavina eftir skoðunum þeirra? Sé það svo, þá er illa komið í frjálsu þjóðfélagi sem byggir á hugmyndafræði tjáningarfrelsisisins.
Getur og má Þjóðfélag sem byggir á skoðanafrelsi, tjáningarfrelsi og ekki sé gert upp á milli borgaranna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, samþykkt að gert sé upp á milli borgaranna vegna skoðana þeirra á loftslagsmálum, innflytjendamálum eða öðrum mikilvægum þjóðfélagsmálum.
Tjáningarfrelsið er hjóm eitt, ef þeir sem hafa minnihlutaskoðanir geta átt það á hættu að vera sviptir lífsafkomu sinni, stöðu og viðskiptum vegna skoðana sinna.
16.7.2023 | 10:03
Almenn skynsemi og þorskhausar.
Er það svo, að það sitji 63 þorskhausar á Alþingi eins og Kári Stefánsson heldur fram? Fjarri fer því.
Það er sjálfsagt og eðlilegt í lýðræðisþjóðfélagi, að menn deili um menn og málefni, raunar forsenda þess að gott og framsækið lýðræðisþjóðfélag sé við lýði. Það er gaman að hlusta á pólitískar umræður, þar sem vegist er á með rökum, skarpskyggni, góðri dómgreind og vitrænum hætti. Því miður gefst það sjaldan á Alþingi, en kemur þó fyrir.
Þeir sem sitja á Alþingi eru upp til hópa ágætlega viti bornir einstaklingar og verða þeir að eiga það með réttu.
Þegar einstaklingur fellir palladóma um alþingismenn og telur álíka vit í hausum þeirra og þorskhausa, þá er sá hinn sami að hreykja sér upp á grundvelli fjarstæðukenndrar yfirlýsingar.
Ummælin voru á mótmælafundi strandveiðisjómanna, en þar lofaði þorskhausa ræðumaðurinn kvótakerfið. Það kerfi veldur því að strandveiðisjómenn þurfa nú að sigla í land og mótmæla. Breyta þarf kvótakerfinu til að strandveiðisjómenn geti haldið áfram veiðum.
Þetta er mergurinn málsins og því erfitt að sjá hvaða vitræna samhengi er í svona málflutningi ræðumannsins og hvað afsakar þessa samlíkingu ræðumannsins.
63 þorskhausar inni á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 300
- Sl. sólarhring: 683
- Sl. viku: 4121
- Frá upphafi: 2427921
Annað
- Innlit í dag: 276
- Innlit sl. viku: 3812
- Gestir í dag: 267
- IP-tölur í dag: 256
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson