Færsluflokkur: Dægurmál
9.12.2010 | 10:54
Afvegaleidd umræða
Smám saman kemur betur í ljós hvað það var sem brást í aðdraganda hrunsins. Sú mynd á eftir að skýrast enn betur þegar Sérstakur Saksóknari fer að láta hendur standa fram úr ermum.
Í fréttum í gær var sagt frá rannsóknarskýrslu erlendra sérfræðinga um meint bókhaldsbrot endurskoðanda og forustumanna Glitnis banka og boðað er að sagt verði frá svipuðum hlutum varðandi sömu aðila í Landsbankanum þegar líður á daginn.
Þó svo að taka verði fréttum með fyrirvara og engin sé sekur þar til sekt hans er sönnuð, þá lá það nokkuð í augum uppi skömmu eftir hrunið að vafningarnir, viðskiptavildin og bullið sem fært var sem eigið fé banka og vogunarsjóða og flestra fyrirtækja í Kauphöllinni, hefði ekki getað verið fært með þeim hætti í bókhald þessara aðila án aðkomu endurskoðenda og æðstu stjórnenda þessara aðila.
Miðað við fréttir í gær þá gat það vart dulist stjórnendum Glitnis banka að hann var hruninn í ársbyrjun 2008. Samt sem áður höfðu helstu leikendur hrunsins sem höfðu markvisst sogið peninga út úr Glitni upp stór orð þegar Glitnir var yfirtekinn í september 2008 og kenndu því um að Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóri hefði horn í síðu eigenda bankans.
Síðan þá hefur umræðan verið markvisst afvegaleidd af hrunverjum með aðstoð nytsamra sakleysingja og pólitískra rugludalla. Ráðist var að stjórnmálamönnum og embættismönnum og þeir hraktir úr embættum. Fjölmiðlar spillingaraflanna, ríkisfjölmiðillinn og hluti Háskólasamfélagsins tók þátt í þessari herferð afvegaleiðingarinnar. Þessir aðilar bera mikla ábyrgð á þeirri bullkenndu umræðu sem hefur verið í landinu. Afvegaleiðing háskólasamfélagsins náði hámarki þegar sigurvegari í kosningum til stjórnlagaþings sagði að hrunið væri stjórnarskránni að kenna.
Í allri þeirri auðn pólitískra fúkyrða, öfugsnúninga sem einkennt hefur íslenska pólitík ekki síst fyrir tilverknað þeirra Jóhönnu og Stengríms með hjálp vinstri sinnaða Háskólasamfélagsins, var ánægjulegt að sjá til tilbreytingar vitræna og athyglisverða blaðagrein frá stjórnmálamanni. Þá grein skrifaði formaður Framsóknarflokksins í Morgunblaðið fyirr nokkru. Sú grein var góð tilbreyting frá innihaldsalusum kjaftavaðli og bulli sem einkennir almennt umræðuna. Fleiri forustumenn í íslenskum stjórnmálum ættu að taka formann Framsóknarflokksins sér til fyrirmyndar í þessu efni.
Það er löngu kominn tími til að fólk snúi sér að aðalatriðunum í umræðunni á rökrænan og vitrænan hátt.
6.12.2010 | 23:00
Ein versta fjármálastofnun landsins
Byggðastofnun hefur ítrekað tapað öllu eigin fé sínu og þurft að fá stuðning frá skattgreiðendum aftur og aftur. Stuðning í milljarðavís.
Byggðastofnun er lánastofnun sem ávallt hefur verið í eigu og umsjá ríkisins og nýtur þess vafasama heiðurs að vera sú lánastofnun íslensk sem oftast hefur þurft að bjarga frá gjaldþroti. Í starfi Byggðastofnunar hafa farið saman pólitísk spilling ásamt andvana hugmyndum byggðastefnu síðustu aldar.
Lánastofnanir í eigu ríkisins eru of margar og of miklu af peningum skattgreiðenda hefur verið sóað í gæluverkefni fjármálaráðherra. Tugir milljaða frá skattgreiðendum til VBS, Saga Capital, Sparisjóðanna, Sjóvár-Almennra trygginga og núna skal Byggðastofnun réttur örlítill milljarður svo enn eitt hrun fjármálastofnunar verði ekki að veruleika á vakt þessarar ríkisstjórnar.
Þeir sem tala um gildi opinberra lánastofnana og heimta slíkar ættu að kynna sér starfsemi Byggðastofnunar. Sporin hræða ekki síður en með eftirlitslausar stórar fjármálastofnanir í einkaeigu að stórum hluta á ábyrgð skattgreiðenda. Það er best að vera laus við hvoru tveggja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.12.2010 | 08:57
Ekkert
Ríkisstjórnin hélt blaðamannafund á föstudaginn og skrifaði þar ásamt forustumönnum lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja undir samning um ekki neitt nema þá helst að skattgreiðendur auki niðurgreiðslur vaxta fyrir fjármálafyrirtæki.
Niðurstaðan: Innheimtanlegar skuldir skulu innheimtar af fullri hörku. Ekki skal taka tillit til þess að hundruðir milljarða verðbætur hafa fallið á höfuðstóla verðtryggðra lána frá bankahruninu þó samdráttur hafi verið í þjóðarframleiðslu og eignvarverð hafi lækkað verulega. Þar af hafa lífeyrissjóðirnir fengið í sinn hlut 126 milljarða vegna verðtryggingar frá hruni.
Ríkisstjórnin viðheldur gjaldeyrishöftum til að verja krónuna og fjármálafyrirtækin. Ríkisvaldið ábyrgist allar innistæður fjármálastofnana á kostnað skattgreiðenda. Samt sem áður er viðhaldið gervigjaldmiðli verðtryggingar sem hækkar höfuðstóla lána þrátt fyrir hrun á verði eigna, minnkandi þjóðarframleiðslu og lækkunar launa. Er það virkilega svo að stjórnvöld, stjórnendur lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja átti sig ekki á að það er engin sanngirni í þessu heldur argasta óréttlæti.
Er það virkilega svo að meðan fjármálastofnanirnar eru varðar með gjaldeyrishöftum og ríkisábyrgð að þá sé ekki svigrúm til að fá fulltrúa þeirra til að fallast á afnám verðtryggingar og bakfærslu ránsfengsins. Ef það var ekki hægt þá átti að taka ránsfenginn af þeim. Það hefði verið sanngirni.
Norrænu velferðarstjórninni er sama um sanngirnina og hún hefur enga stefnu í skuldamálum heimilanna.
Staðreyndin er sú að hefði ríkisstjórnin ekkert gert þá væri flækjustigið minna í dag og heimilin betur stödd.
Með síðustu aðgerðum sínum hefur ríkisstjórnin endanlega tekið vonina frá fólki. Hún hefur enn einu sinni sýnt að hún er stefnu- og úrræðalaus og gerir þjóðinni mest gagn með því að segja af sér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2010 | 09:24
Hjálparhöndin
Ríkisstjórnin rétti út hjálparhendina 4.október s.l. og sagði að nú yrði eitthvað gert fyrir skulduga einstaklinga. En það var ekkert í hendinni. Ríkisstjórnin hafði enga stefnu og vissi ekki hvert átti að halda. Bjargráð Jóhönnu og Steingríms var þá að fá reiknimeistara til að reikna með hvaða hætti mætti rétta fram hjálparhendi til skuldara án þess að nokkuð væri í henni sem máli skipti.
Reiknimeistararnir reiknuðu og komust m.a. að þeirri merkilegu niðurstöðu að það mundi kosta meira en 100 milljarða að lækka skuldir á yfirveðsettum fasteignum niður í 110% verðmæti eignarinnar. Þannig sáu reiknimeistararnir það ljós að væri eign 50 milljón króna virði þá væri það sérstakt bjargráð og hjálp að bjóða eigendum eignarinnar að yfirtaka skuldir á eigninni á kr. 55 milljónir eða 5 milljónir umfram raunvirði eignarinnar. Samt sem áður spáir Seðlabankinn áframhaldandi lækkun fasteignaverðs.
Valdamestu menn landsins lífeyrisfurstarnir komu að bjargráðum ríkisstjórnarinnar með þeim yfirlýsingum að ekki mætti gefa eftir kröfur sem væru innheimtanlegar. Það sögðu lífeyrisfurstarnir að væri aðalatriðið í stöðunni. Í framhaldi af þessum yfirlýsingum var tilkynnt síðdegis í gær að samkomulag hefði náðst með ríkisstjórninni og lífeyrissjóðunum þá sennilega á grundvelli ofangreindra forsendna.
Nú bíða menn spenntir eftir því að sjá hversu galtóm hjálparhendi ríkisstjórnarinnar verður. Mun velferðar Jóhanna færa fólki þær gleðifregnir í jólamánuðinum að þrælarnir á skuldagaleiðu verðtryggingarinnar fái niðurskrifuð lán sín þannig að þeir sem skulda meira en nemur verði fasteignar þeirra fái eitthvað en hinir sem enn eiga eitthvað í eignunum haldi áfram að borga eins og lítið hafi í skorist.
Datt engum í hug að bakfæra ósiðlega hækkun verðtryggðra lána frá hruni til dagsins í dag. Datt heldur engum í hug að koma á lánakerfi eins og er hjá síðuðum þjóðum.
Átta stjórnendur þessa þjóðfélags sig ekki á að það er spurning um framtíð og heill íslensku þjóðarinnar að horfa á skuldamál einstaklinga með sanngirni en ekki síngirni.
Galeiðuþrælar í skiprúmi verðtryggingarinnar munu leggja frá sér árar og hafna því að þræla áfram nema þeir eygi von um frelsi undan skuldaánauðinni innan skynsamlegra tímamarka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.11.2010 | 10:24
Hinn þögli meirihluti hefur talað.
Mikill meiri hluti kjósenda hefur engan áhuga á Stjórnlagaþingi. Niðurstaða kosninganna liggur fyrir að því leyti. Um eða undir 40% kjósenda mættu á kjörstað. Það þýðir að 6 af hverjum 10 höfðu ekki áhuga á málinu. Sjálfur taldi ég nauðsynlegt að hvetja fólk til að nýta kosningaréttinn þó ég hafi frá upphafi verið á móti þessari leið og bent á aðra heppilegri.
Frá upphafi hef ég talið þessa leið hið mesta óráð og hrapað væri að máli sem fella yrði í annan farveg. Vinstri sinnaða háskólaelítan, ásamt mörgum fjölmiðlamönnum og lukkuriddurum töldu breytingar á stjórnarskrá hins vegar það mikilvægasta sem gera þyrfti í framhaldi af bankahruninu. Nú hefur þjóðin talað með því að sitja heima og neita að taka þátt í kosningunum. Hinn þögli meiri hluti hefur því tjáð sig þannig að ekki fer á milli mála.
Þann 6.október 2008 við afgreiðslu neyðarlaganna talaði ég um það sem væri mikilvægast að gera í framhaldi af falli bankanna. Það voru atriði eins og að koma lánamálum í eðlilegt horf. Fella niður verðtryggingu, lækka stýrivexti og útlánavexti, auka fiskveiðiheimildir, virkja í neðri hluta Þjórsár og hefja markvisst starf varðandi atvinnuppbyggingu. Mér fannst þá eins og nú þessi atriði skipta mestu máli.
Ríkisstjórnin setti Stjórnlagaþing í forgang. Sennilega sjá það flestir nú að heppilegra hefði verið að einhenda sér í það sem skipti máli, en það er ekki Stjórnlagaþing.
Enn eru öll þau mál óleyst sem ég taldi 2008 og tel enn vera forgangsverkefni til að leysa þá kreppu sem er í landinu. Þess vegna verður kreppan lengri og illvígari en hún hefði orðið ef réttir hlutir hefðu verið settir í forgang.
27.11.2010 | 11:46
Persónuleikalausar kosningar
Óskaplega er leiðinlegt að fylla út kjörseðilinn við kosningar til stjórnlagaþings. Fjórar tölur í fyrsta reit og síðan koll af kolli og maður man ekki lengur hvaða persóna stendur á bak við töluna þegar neðar dregur á kjörseðilinn. Kosningin er persónuleikalaus og vekur upp minningar úr framtíðarskáldsögum þar sem einstaklingurinn er aukaatriði.
Umbúnaður þessara kosninga er allt annað en það sem kjósendur þekkja og skilja. Í stað þess að kjósa einstaklinga og fylgja hefðbundnum talningareglum um að sá sem fær flest atkvæði í fyrsta sæti er kosinn og sá sem fær flest atkvæði í fyrsta og annað sæti er kjörinn o.s.frv. var búið til kerfi sem er illskiljanlegt öðrum en innvígðum. Hætt er við að það valdi því að vilji kjósandans komi síður til skila en fengi kjósandinn að kjósa á grundvelli þeirra leikreglna sem hann þekkir og skilur.
Ég vona að þetta verði fyrstu og síðustu kosningarnar þar sem kjósandinn þarf að lúta lögmálum stjörnustríðsmyndanna þar sem Svarthöfði stjórnar, en í framtíðinni geti kjósandinn kosið einstaklinga á grundvelli þeirrar germönnsku nafnhefðar sem við höfum tileinkað okkur í landinu í meir en þúsund ár.
Dægurmál | Breytt 13.12.2010 kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.11.2010 | 09:36
Stjórnlagaþing
Hugmyndin um sérstakt stjórnlagaþing í framhaldi af bankahruninu 2008 var ófullburða. Hún var knúin áfram að hluta til af vanþekkingu og lýðskrumi. Að hluta var hún einnig knúin áfram á grundvelli kröfu um aukið og beint lýðræði og vilja til að breyta æðstu stjórn ríkisins til að gera hana betri og skilvirkari.
Áhugafólk um breytingar á stjórnarskránni hefði átt að geta gert sér grein fyrir að kosning stjórnlagaþings við þær aðstæður sem við erum í núna var ekki líklegasta leiðin til að skila þjóðinni breytingum á stjórnarskránni. Auk þess kostar stjórnlagaþing óafsakanlega mikla fjármuni einmitt á þeim tímum sem beita þarf aðhaldi og sparnaði.
Sú þjóð sem hefur farið auðveldustu og bestu leiðina við breytingar á stjórnarskrá sinni eru Svíar. Ég hef hvatt til að við færum sömu leið og þeir. Því miður varð það ekki ofan á að þessu sinni en gæti orðið það þegar fólk áttar sig á hvað litlu þessi leið mun skila.
Hvað svo sem líður afstöðu til Stjórnlagaþings, þá liggur fyrir að mikið af heiðarlegu og góðu fólki gefur kost á sér til kjörs og það ber að sýna því fólki fulla virðingu. Það ber ekki ábyrgð á með hvaða hætti til er stofnað af hálfu meiri hlutans á Alþingi. Þess vegna er nauðsynlegt að sem flestir kjósi. Með því að kjósa ekki erum við að greiða götu þeirra sem við hugsanlega síst viljum að verði kosnir. Þannig er það alltaf þegar kjósandinn neitar sér um að nýta réttindi sín.
Ég hvet því alla til að kjósa á morgun og reyna að gera eins gott úr málinu og unnt er. Það verður hvort eð er ekki aftur snúið þetta stjórnlagaþing verður haldið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.11.2010 | 22:41
RÚV og Pravda
Sú var tíðin að austur í Sovét höfðu menn fréttamiðla sem sögðu alltaf það sem stjórnendurnir vildu. Þar var alræðið og Pravda fréttastofa Sovétstjórnarinnar flutti alltaf þann boðskap og fréttir sem foringjar Kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna vildu. Þannig er það víða enn í alræðisríkjum að ríkisfjölmiðlarnir flytja bara það sem stjórnendunum er þóknanlegt.
Fyrir nokkru varð opinbert að fjármálaráðherra hafði sent þáverandi félagsmálaráðherra hálfgerð hótunarbréf til að tryggja greiðslur með ákveðnum hætti til kjósenda sinna í Árbót í Þingeyjarsýslu. Málið fékk þóknanlega afgreiðslu félagsmálaráðherra án þess að málið fengi að því er virðist eðlilega stjórnskipulega meðferð.
Fram kom að þingmenn kjördæmisins höfðu fjallað um málið á fundum sínum þar sem helst virðist rætt um með hvaða hætti megi koma sem mestu af skattfé borgaranna heim í hérað.
Það var nokkuð sérstakt þegar RÚV notaði tækifærið til að ræða Árbótarmálið í Kastljósi að fá til þess tvo þingmenn kjördæmisins annan úr Sjálfstæðisflokknum en hinn úr Vinstri grænum. Ekki gekk hnífurinn á milli Þingmannanna. Skoðanalega féllust þeir í faðma. Ekki var annað að skilja en Árbótarmál væri hið eðlilegasta í alla staði hvernig svo sem því yrði snúið eða endastungið. Óneitanlega beið ég eftir því að pólitíski brúðkaupsvalsinn yrði leikinn þegar þessir samherjar og verjendur Steingríms J. Sigfússonar gengu í andlegu bandalagi úr sjónvarpssal.
Í síðdegisútvarpinu í dag var síðan talað við lögmann Árbótarfólksins sem skýrði mál sitt ágætlega eins og hans er von og vísa. Vel má vera að Árbótarfólkið hafi átt skilið að fá þær greiðslur sem um ræðir en hvorki ég né aðrir útvarpshlustendur höfum forsendur til að dæma um það út frá þeim forsendum sem RÚV hefur boðið upp á. Hvar voru fulltrúar þeirra sem hafa gert athugasemdir við afgreiðslu málsins? Af hverju voru þeir ekki í Kastljósi eða í síðdegisþættinum?
RÚV hefur kosið að slá varnarmúr um Árna Pál og Steingrím J. til að dusta rykið af aðkomu þeirra að Árbótarmálinu.
Af hverju má ekki allur sannleikurinn koma í ljós. Af hverju að standa svona strangan vörð um Steingrím J og stjórnmálalega samspillingu þeirra sem að bera ábyrgð á afbrigðilegri afgreiðslu málsins.
Pravda sannleikurinn heldur aldrei endalaust. En hann getur ruglað fólk tímabundið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2010 | 12:23
Árni Páll ber stjórnskipulega ábyrgð
Jafnvel þó fjármálaráðherra hafi beitt sér með ótilhlýðilegum hætti til að færa fjármuni frá skattgreiðendum til kjósenda sinna í Árbót í Aðaldal og einhverjir þingmenn kjördæmisins hafi verið áfram um að misfarið yrði með ríkisins fé, þá ber Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra stjórnskipulega og pólitíska ábyrgð á málinu.
Árni Páll Árnason heldur því fram að eðlilega hafi verið að málum staðíð af sinni hálfu og það hafi verið ráðlegging sinna embættismanna að ganga frá málinu með þeim hætti sem gert var þ.e. greiða 30 milljónir umfram skyldu. Eðlilegt er að Árni Páll verði krafinn svara um það hvaða embættismenn ráðlögðu honum þetta og á hvaða forsendu. Raunar er hæpið að ráðherra sé að segja satt, vegna þess að framkvæmdin er andstæð góðri stjórnsýslu.
Árni Páll sagði einnig að óþarfi hafi verið að leita eftir áliti Ríkislögmanns þar sem hann væri sjálfur lögfræðingur og gæti því dæmt um það hvort greiða ætti bætur í svona máli eða ekki, en bætir svo við að hann hafi ekki tekið neinar ákvarðanir í málinu og einungis gert það sem sínir embættismenn hafi lagt til. Hvað kom menntun hans sem lögfræðings þá málinu við?
Fyrir liggur að fjármálaráðherra skrifaði þáverandi félagsmálaráðherra Árna Páli nánast hótunarbréf vegna málsins. Í einu orðinu segist Árni Páll hafa dæmt um málið sjálfur út frá lögfræðiþekkingu sinni. Í hinu orðinu að hann hafi í raun ekki gert það heldur það sem embættismenn hans lögðu til.
Hvaða rökræna samhengi er í svona málflutningi ?
Alla vega þegar öllu er á botninn hvolft þá var ekki leitað til rétts aðila í ríkiskerfinu, Ríkislögmanns, til að fjalla um málið. Fram hjá því komast hvorki Árni Páll Árnason né Steingrímur J. Sígfússon
Nú verður ekki hjá því komist miðað við ummæli Árna Páls að þeir embættismenn komi fram eða verði nafngreindir sem Árni Páll segir að hafi í raun afgreitt málið. Verði ekki vísað á neinn eða nokkur gefi sig fram þá eru líkur fyrir því að ráðherra sé ekki að segja satt. Það er raunar ekki einsdæmi með viðskiptaráðherra að þeir geri það.
Eftir stendur hvað sem hótunarbréfi Steingríms J. líður og áliti embættismanna að Árni Páll Árnason ber stjórnskipulega ábyrgð á þessari vafasömu bótagreiðslu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.11.2010 | 19:17
Var Ögmundur fjarstaddur?
Á foringjaráðsfundi Vinstri grænna um síðustu helgi var samþykkt að beina því til dómsmálaráðherra að málsókn gegn stjórnleysingjunum sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi yrði felld niður.
Nú hefur Ögmundur ráðherra upplýst foringjaráðið og landsmenn alla að hann geti ekki gripið fram fyrir hendur dómstóla í þessu máli eða öðrum. Spurning er þá hvort dómsmálaráðherra var þetta ekki ljóst á foringjaráðsfundinum um helgina eða vitsmunalega fjarstaddur.
Foringjaráðinu mátti vera þetta ljóst. Af myndum af fundinum að dæma þá sóttu fundinn aðallega núverandi eða fyrrverandi þingmenn flokksins og gamla Alþýðubandalagsins.
Mörgum sýnist að þessi samþykkt sverji sig í sömu ætt og krafa Björns Vals Gíslasonar alþingismanns og skipstjóri hjá Brim. Björn lætur eins og hann viti ekki um gildandi lög um rétt útlendinga til fjárfestingar í íslenskum fyrirtækjum. Að sjálfsögðu vissi Björn vel um þetta og að sjálfsögðu vissi foringjaráð Vinstri Grænna að samþykktin um níumenningana var glórulaus vitleysa eins og ummæli Björns.
Svona er þetta þegar stjórnmálaflokkur telur betra að veifa röngu tré en engu. Skyldi Steingrímur Árbót J.Sigfússon formaður Vinstri grænna ekki hafa vitað um þessi grundvallaratriði stjórnarskrár og laga? Sennilega ekki því annars hefði hann sagt foringjaráðinu frá því og sagt samþingmanni sínum að hann færi með bull. Ef til vill hefur Steingrímur þó talið ágætt að hafa í frammi svona lýðskrum og rugl til að dreifa athyglinni frá aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 65
- Sl. sólarhring: 305
- Sl. viku: 3505
- Frá upphafi: 2547601
Annað
- Innlit í dag: 55
- Innlit sl. viku: 3252
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 52
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson