Leita í fréttum mbl.is

Stjórnlagaþing

Hugmyndin  um sérstakt stjórnlagaþing í framhaldi af bankahruninu 2008 var ófullburða. Hún var knúin áfram að hluta til af vanþekkingu og lýðskrumi.  Að hluta var hún einnig knúin áfram á grundvelli kröfu um aukið og beint lýðræði og vilja til að breyta æðstu stjórn ríkisins til að gera hana betri og skilvirkari.

Áhugafólk um breytingar á stjórnarskránni hefði átt að geta gert sér grein fyrir að kosning stjórnlagaþings við þær aðstæður sem við erum í núna var ekki líklegasta leiðin til að skila þjóðinni breytingum á stjórnarskránni.  Auk þess kostar stjórnlagaþing óafsakanlega mikla fjármuni einmitt á þeim tímum sem beita þarf aðhaldi og sparnaði.

Sú þjóð sem hefur farið auðveldustu og bestu leiðina við breytingar á stjórnarskrá sinni eru Svíar. Ég hef hvatt til að við færum sömu leið og þeir. Því miður varð það ekki ofan á að þessu sinni en gæti orðið það þegar fólk áttar sig á hvað litlu þessi leið mun skila.

Hvað svo sem líður afstöðu til Stjórnlagaþings, þá liggur fyrir að mikið af heiðarlegu og góðu fólki gefur kost á sér til kjörs og það ber að sýna því fólki fulla virðingu. Það ber ekki ábyrgð á með hvaða hætti til er stofnað af hálfu meiri hlutans á Alþingi.  Þess vegna er nauðsynlegt að sem flestir kjósi. Með því að kjósa ekki erum við að greiða götu þeirra sem við hugsanlega síst viljum að verði kosnir.  Þannig er það alltaf þegar kjósandinn neitar sér um að nýta réttindi sín.

Ég hvet því alla til að kjósa á morgun og reyna að gera eins gott úr málinu og unnt er. Það verður hvort eð er ekki aftur snúið þetta stjórnlagaþing verður haldið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Tek heils hugar undir þessa hvatningu þína, Jón. Hún finnst mér þó eiga alltaf við - maður á ekki að fara í fýlu og sitja heima, því þá er maður að skerða möguleika þess fólks sem við viljum koma á framfæri.

Það er svo spurning hvort nokkru skipti hvaða stjórnarskrá eða aðrir lagabálkar eru settir á blað ef ekki er farið eftir þeim hinum sömu statútum.

Flosi Kristjánsson, 26.11.2010 kl. 10:58

2 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er sammála þér Flosi að öllu leyti. En við búum í réttarríki þó að það séu ekki allir altaf sátti við túlkun laganna. Lögmenn verða sennilega oftar fyrir vonbrigðum eða óvæntri ánægju vegna túlkunnar dómstóla á lögunum.

Jón Magnússon, 26.11.2010 kl. 13:45

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér Jón og Flosa, gesti þínum líka.

En það er líkast til sama hversu góða stjórnarskrá við hefðum,  hún væri aldrei meira virði en virðingin fyrir henni.  Fyrir lágvöxnum lögreglumanni með byssu er borin meiri virðing en fyrir hávöxnum með stórar hendur.  Allt þarf vörn og stjórnarskrá líka.

Hrólfur Þ Hraundal, 27.11.2010 kl. 08:49

4 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alveg rétt Hrólfur. En þess vegna þarf líka stjórnarskrá til að lágvaxni lögreglumaðurinn með byssuna taki ekki öll völd í sínar hendur.

Jón Magnússon, 27.11.2010 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 625
  • Sl. viku: 2947
  • Frá upphafi: 2294566

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 2684
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband