Færsluflokkur: Dægurmál
19.6.2009 | 11:30
Kjör aldraðra skert verulega en ekki hróflað við sendiráðunum.
Ríkisstjórnin með Steingrím J. Sigfússon í broddi fylkingar leggur til m.a. að kjör aldraðra verði skert verulega. Þær sjálfsögðu réttarbætur sem aldraðir fengu með lagabreytingum árið 2008 verða með þessu teknar allar til baka og rúmlega það. Þær réttarbætur sem aldraðir fengu með breytingu varðandi frítekjumark o.fl voru sjálfsagðar og það er fráleitt að krukka í kjör aldraðra með þeim hætti sem ríkisstjórnin leggur til.
Á sama tíma og ríkisstjórnin vegur að öldruðum og skerðir kjör þeirra þá koma ekki fram tillögur um að skera bruðlið í burtu af ríkisbákninu. Hvað með sendiráðin? Á áfram að reka öll sendiráð? Sé svo þá til hvers.
Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar er röng og það hefði verið spurning um hvort ekki hefði verið rétt við þessar aðstæður að hugsa stórt og breita velferðarkerfinu með þeim hætti að koma á svonefndum neikvæðum tekjuskatti þannig að þeir sem þyrftu á aðstoð frá hinu opinbera að halda fengju hann en aðrir ekki. Það mundi spara ríkissjóði stórfé á sama tíma og skjaldborg yrði slegið um velferðina.
Þá verður það að vera forgangsatriði að skera í burtu útgjöld sem eru óþörf á þessu stigi eins og hin útþanda utanríkisþjónusta. En þess í stað ætlar ríkisstjórnin að vega að öldruðum og ná fram sparnaði með því að láta eignir og mannvirki drabbast niður vegna skorts á viðhaldi. Hefði einhvern tíma verið ástæða til að skoða slíkar áætlanir og leggja fé í viðhald og endurbyggingu þá er það einmitt á atvinnuleysistímum.
![]() |
Skref til baka í réttindum aldraðra og öryrkja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.6.2009 | 21:12
Birtið Icesave samninginn á íslensku á netinu strax.
Ríkisstjórnin verður að birta Icesave samninginn á íslensku þannig að hann sé aðgengilegur fólkinu í landinu.
Það er óviðunandi að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Ríkisstjórn gagnsæisins sem lofaði að hafa allar upplýsingar upp á borðinu sé að pukrast með samninginn sem þau Jóhanna og Steingrímur skrifuðu undir fyrir hálfum mánuði og neiti þjóðinni að sjá þennan mikilvæga milliríkjasamning okkar við Breta og Hollendinga.
Þjóðin á rétt á að fá allar upplýsingar strax og þó fyrr hafi verið. Hvurs konar dónaskapur er það eiginlega að ætla Alþingi að samþykkja og þjóðinni að móta sér skoðun á samningi sem liggur ekki fyrir í heild sinni á móðurmáli okkar. Við erum þó altént aðilar að þessum samningi er það ekki svo?
Þetta Icesave mál er að verða hið versta klúður ríkisstjórnarinnar til þessa og er samt af mörgu að taka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.6.2009 | 11:19
Óttalegt rugl.
Það er ótrúlegt að ríkisstjórnin skuli ætla Alþingi að samþykkja samninginn um Icesave skuldbindingarnar án þess að þingmenn fái að sjá samninginn eða fái nauðsynleg gögn sem hann varðar. Nú er hálfur mánuður frá því að Jóhanna og Steingrímur skrifuðu undir en Alþingi hefur ekki mátt sjá það sem þingmenn eiga þó að taka afstöðu til, samþykkja, sitja hjá eða hafna. Þetta er með ólíkindum mikið rugl af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Hvernig ætlar ríkisstjórnin að rökfæra það að þingmenn fái ekki að sjá samning sem þeir eiga að taka afstöðu til. Hvernig ætlar ríkisstjórn að sýna fram á nauðsyn þess að alþingismenn fái ekki allt sem þeir telja nauðsynlegt og snýr að Icesave samningunum.
Það er e.t.v. rétt að minna á að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa talað um að með þessari ríkisstjórn yrði breyting og allt yrði upp á borðinu. Þá má minna á traustan málflutning félaga Ögmundar Jónassonar frá því s.l. janúar þegar hann talaði um nauðsyn þess að allar upplýsingar yrðu að vera uppi á borðinu og pukur væri ekki lengur ásættanlegt eða tækt af stjórnvöldum.
Skyldu þeirra eigin orð vera farin að þvælast fyrir ríkisstjórninni?
Getur það verið að við séum að horfa framan ríkisstjórn sem hefur öll einkenni ráðstjórnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2009 | 17:51
Vond skuldastaða vegna ónýts gjaldmiðils.
Athyglivert er að heyra það frá fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að staða fyrirtækja og sveitarfélaga sé verri en staða heimilanna í landinu. Franek Rozadowzki fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann staðfesti að slæm skuldastaða íslenskra heimila sé vegna verðtryggðra lána og slæm staða fyrirtækja og sveitarfélaga sé vegna þess að þau tóku mikil lán í erlendum gjaldeyri sem hafa margfaldast við hrun krónunnar.
Afleit skuldastaða og jafnvel bankahrun er gjaldið sem við greiðum vegna tilraunarinnar til að setja íslensku krónuna á flot í byrjun þessara aldar í stað þess að tengjast fjölþjóðlegri mynt. Einnig vegna þeirra afglapa að keyra stýrivexti Seðlabankans upp fyrir alla stýrivexti annarsstaðar í okkar heimshluta. Það gerði íslensku krónuna að lottómynt sem hækkaði og hækkaði án nokkurra forsendu nema vegna innflæðis peninga m.a. vegna þess að það var svo hagstætt að taka erlend lán. Nú brenna fyrirtækin og sveitarfélögin á því vegna gengishruns krónunnar.
Íslensk heimili eru illa skuldsett vegna verðtryggingarinnar sem hækkaði og hækkaði lánin jafnvel þó að íslenska krónan væri á tímabili sterkasti gjaldmiðill í heimi vegna spákaupmennsku.
Íslenska þjóðin hafði aldrei efni á því að vera með vondan gjaldmiðil þegar annar betri var í boði. Það er vont að taka versta kostinn þegar góðir kostir eru í boði.
Forgangsverkefni í stórnun landsins er að taka upp fjölþjóðlega mynt. Tryggja eðlileg lánakjör sem eru sambærileg því sem gerist í nágrannalöndum okkar og tryggja að íslenskir neytendur geti keypt vörur á sambærilegu verði og fólkið í nágrannalöndum okkar. Þetta er forsenda viðreisnar efnahagslífs þjóðarinnar.
![]() |
Stýra þarf skipinu af varfærni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2009 | 11:31
Nýtt Þjóðleikhús
Á forsíðu Fréttablaðsins er sagt frá því að Þjóðleikhúsið sé að hruni komið auk þess sem tækjabúnaður sé gamall úreltur og jafnvel hættulegur. Þá sé vinnuaðstaða ófullnægjandi og brunavörnum verulega áfátt.
Ekki er svo ýkja langt síðan kostnaðarsömum viðgerðum og endurbótum lauk á Þjóðleikhúsinu. Nú þarf marga milljarða í viðbót. Mér er ljóst að margir hafa viðkvæmar taugar til gamalla bygginga. Þjóðleikhúsið er þó ekki eldra en 59 ára sem telst ekki mikið þegar um hús er að ræða.
Ég tel mikilvægt að búa íslenskri leiklist góð skilyrði. Spurningin er þá hvernig á að gera það.
Er skynsamlegt að endurbyggja Þjóðleikhúsið?
Er e.t.v. skynsamlegt að skoða möguleika á samvinnu við Borgarleikhúsið?
Væri hugsanlega mesta þjóðráðíð að setja þá fjármuni sem ella færu í endurbyggingu og viðhald Þjóðleikhúss í músikhúsið við höfnina og gera það að Þjóðleikhúsi?
Ég er hræddur um óháð því hvaða tilfinningar fólk ber til Þjóðleikhúsbyggingarninar að það borgi sig ekki að halda áfram að tjasla upp á það. Aðrar lausnir séu líklegri til að hlúa að og örva gott og nútímalegt leiklistarstarf og listastarf í landinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.6.2009 | 10:24
Það besta sem komið hefur fram lengi.
Tillögur Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir vegna alvarlegs ástands í efnahagsmálum eru mjög góðar. Fátítt er að stjórnmálaflokkur í stjórnarandstöðu á Íslandi setji fram góðar heildstæðar tillögur eins og þær sem settar voru fram í gær en með þessu brýtur Sjálfstæðisflokkurinn þá neikvæðu stjórnmálahefð sem einkennt hefur íslenska stjórnarandstöðu um langt skeið.
Tillögurnar um að ríkið taki skatta af lífeyrisgreiðslum strax við greiðslu lífeyrisins í stað þess að lífeyrissjóðirnir fái peningana til sín eru frábærar. Með þeim hætti fær ríkið tekjur sem því ber skv. skattalögum í stað þess að lífeyrissjóðirnir séu í raun að valsa með þær. Það hefur líka þýðingu að fólk fái lífeyrinn sinn þegar byrjað er að taka lífeyri og allir skattar og gjöld hafi þá verið greidd þannig að fjárhæðin komi þá að fullu til fólksins.
Einhvern veginn finnst mér ég sjá handbragð Tryggva Þórs Herbertssonar á þessum tillögum sem sýnir ef rétt reynist að hann er að koma sterkur inn í þingflokk Sjálfstæðisflokksins
Ég hefði að vísu viðjað ganga lengra varðandi lífeyrismálin og hafa einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn sem að væri í vörslu, meðferð og á ábyrgð ríkisins. Núverandi lífeyrissjóðakerfi gengur ekki. Þar hefur sá sem borgar ekkert að segja. Hann ræður engu og fær síðan iðulega ekki nema hluta af peningunum sínum til baka.
Þessar tillögur Sjálfstæðismanna eru líka góðar vegna þess að með þeim þá má komast hjá nýrri skattheimtu. Stjórnendur þessa lands hafa því miður ekki áttað sig á því að aukin skattheimta getur virkað til þess að dýpka kreppuna og draga hana á langinn.
Ríkisstjórnin ætti að taka þessum tillögum fagnandi og vinna að því með Sjálfstæðisflokknum að hrinda þeim í framkvæmd
![]() |
Lýstu ánægju með tillögur sjálfstæðismanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2009 | 15:17
Ónýtur gjaldmiðill?
Þrátt fyrir hæstu stýrivexti í okkar heimshluta og þó víðar væri leitað er krónan í frjálsu falli. Þetta gerist þó að víðtæk gjaldeyrihöft hafi verið sett á. Í dag þarf meir en 180 krónur til að kaupa eina Evru.
Fyrir nokkrum árum sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þáverandi formaður Samfylkingarinnar að krónan væri ónýtur gjaldmiðill. Undir það tóku flokkssystkin hennar og margir fleiri.
Hrun krónunnar kom síðan á undan bankahruninu og átti drjúgan þátt í því banka- og efnahagshruni sem varð í október s.l.
Þrátt fyrir að öllum má nú vera ljóst að það er óðs manns æði að ætla að halda áfarm með krónuna þá er það samt gert og ekki örlar á því að ríkisstjórnin hafi markað eða ætli sér að marka peningamálastefnu sem leysir okkur úr þeim gríðarlega gjaldmiðilsvanda sem við erum í.
Ég flutti fyrir tæpu ári tillögu á Alþingi um upptöku fjölþjóðlegrar myntar og benti á þá möguleika sem við ættum í þeim efnum. Steingrímur J. virtist síðan gera sér grein fyrir því í stjórnarandstöðu að nauðsyn bæri til að taka upp aðra mynt. Hann er sennilega of önnum kafinn nú ti að geta snúið sér að þeim verkefnum.
Fátt er miklivægara að hafa starfhæfan gjaldmiðil sem er nothæfur í viðskiptum þannig að lánakjör séu með skaplegum hætti og hægt verði að afnema verðtrygginguna sem er einn versti óskapnaður sem upp hefur verið fundinn sem hækja ónýts gjaldmiðils.
Dansinn í kring um krónuna er hrunadans og við höfum heldur betur mátt finna fyrir því. Það er forgangsverkefni að alvöru peningamálastefna verði mótuð á grundvelli starfhæfrar myntar.
Fólkið í landinu getur ekki og má ekki una því að greiða krónuskattinn lengur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.6.2009 | 15:21
Hrunið
Ég lauk í gær við að lesa bók Guðna Th. Jóhannessonar "Hrunið. Mér fannst kærkomið að fá bók sem rekur atburðarásina með þeim hætti sem Guðni gerir. Þar koma fram margar gagnlegar upplýsingar um það sem gerðist bak við tjöldin þá örlagaríku daga sem liður frá bankahruninu 6. okbóber 2008 til stjórnarslitanna í lok janúar 2009.
Við lestur bókarinnar kemur glögglega í ljós hvað ríkisstjórnin var í raun ráðvillt um og eftir bankahrunið og hvað það hafði afdrifarík áhrif að formaður Samfylkingarinnar skyldi eiga við alvarleg veikindi að stríða.
Það er óhætt að mæla með þessari bók. Guðni lætur hjá líða að fella palladóma um það hverjir bera ábyrgð en rekur söguna með hlutlægum hætti að því er mér finnst.
Ég varð hins vegar fyrir vonbrigðum þegar ég las bók Ólafs Arnarssonar. Sú bók er að vísu læsileg en er hins vegar ekki trúverðug nema að litlu leyti vegna þess hvað höfundur tekur afgerandi afstöðu með banka- og útrásarmönnum gegn stjórnvöldum.
Helsti örlagavaldur bankahrunsins virðist manni vera Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóri samkvæmt bók Ólafs en lítið er gert úr hlut fyrirtækjanna sem skulda hundruði milljarða og geta ekki greitt eða með hvaða hætti bankastarfsemin var rekin.
En það á eftirt að segja miklu meira og upplýsa mun meira en nú hefur verið gert. Mér er nær að halda að sumir sem hafa verið úthrópaðir eigi eftir að rétta hlut sinn á meðan aðrir sem hafa verið minna í umræðunni m.a. vegna veldis þeirra í íslenskri fjölmiðlun eigi eftir að axla þá ábyrgð sem þeim ber.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.6.2009 | 16:26
Icesave samninganefndin. Hvar var sérfræðiþekkingin?
Samninganefnd ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu var undir forustu Svavars Gestssonar stúdents og var að öðru leyti skipuð starfsfólki í stjórnarráðinu.
Samfylkingarfólk og Vinstri grænir gátu ekki leynt hneykslun sinni í vetur yfir því að fjármálaráðherra væri dýralæknir og Seðlabankastjóri lögfræðingur. Ítrekað töluðu málpípur þeirra í fjölmiðlum um, að ein mesta meinsemdin í íslensku samfélagi væri skortur á sérfræðiþekkingu.
Í samræmi við það skipar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gamlan vopnabróður sinn úr Alþýðubandalaginu, Svavar Gestsson stúdent til að fara fyrir samninganefnd um flókin lögfræðileg, þjóðréttarleg og bankaréttarleg málefni vegna Icesave. Hvar skyldu VG og Samfylkingi hafa fundið viðunandi sérfræði hjá Svavari til að leiða samninganefndina eða næga sérfræðiþekkingu hjá nefndinni að öðru leyti. Gaman væri nú að heyra í fjölmiðlafólkinu sem mest hneykslaðist í vetur á skorti á sérþekkingu og þá sérstaklega Agli Helgasyni sem ítrekað fjallaði um málið.
Samningarnir um Icesave sem ríkisstjórnin hefur nú undirritað eru í samræmi við það sem við var að búast af jafn vanhæfri samninganefnd og um ræðir. Í fyrsta lagi þá virðist hafa láðst að taka tillit til löglausri beitingu Breta á hryðjuverkalögum gagnvart Íslandi sem hefur kostað okkur gríðarlega fjármuni. Í öðru lagi þá er vaxtaákvæði samningsins gjörsamlega frjáleitt. Greiðslutíminn er hins vegar góður og það er það eina.
Það er með ólíkindum að ríkisstjórin skuli hafa fallist á jafn slæma samninga fyrir Ísland. Góð samninganefnd skipuð góðum sérfræðingum og ríkisstjórn sem byggi yfir nauðsynlegri sérfræðiþekkingu hefði ekki gert slíkan samning. Fjölmiðlamennirnir sem hrópuðu hvað hæst í lok síðasta árs og byrjun þessa ættu að fjalla um málið út frá því sjónarmiði til að vera samkvæmir sjálfum sér.
24.5.2009 | 17:11
Lækkanir í Bretlandi. Hækkanir á Íslandi. Hvað veldur?
Ísland hefur búið við eitt sérstakasta efnahagskerfi síðustu ára. Verðtrygging og gjaldmiðill sem enginn treystir eru verstu orsakavaldar þeirra vandamála sem venjulegt fólk þarf að búa við á Íslandi í dag.
Fyrir nokkru benti ég á það sérkenni íslenska veruleikans að matarverð hefði hækkað síðustu mánuði um 20-30% það er með ólíkindum að slík hækkun skuli hafa orðið í kjölfar bankahruns og launalækkunar hjá almenningi. Ríkisstjórn sem leyfir slíku að gerast án þess að grafast fyrir um hvað valdi þessu sérkennilega þróunarferli á samdráttartímum og bregst við er ekki að vinna fyrir fólkið í landinu.
Bretland hefur gengið í gegn um svipaða hluti og við í sínu efnahagslífi m.a. bankahrun og gengisfall pundsins. Það mætti því ætla að það væru sambærilegir hlutir að gerast í efnahagslífinu hér og í Bretlandi og þess vegna hef ég fylgst vel með þróuninni þar. Fyrir nokkru kom fram að verðhjöðnun hefi verið mikil í Bretlandi undanfarna mánuði og munar þar mest um að íbúðarverð hefur lækkað verulega og vextir á veðlánum hafa lækkað m.a. vegna ákvörðunar Englandsbanka að lækka stýrivexti.
En það er fleira sem hefur lækkað í Bretlandi síðustu mánuði og þar má nefna m.a. að matarverð hefur lækkað, verð á rafmagni hefur líka lækkað svo dæmi séu nefnd.
Ég verð að viðurkenna það að mér finnst það vægast sagt nokkuð sérsakt að matarverð skuli lækka í Bretlandi á sama tíma og það hækkar á Íslandi um 20-30%. Kann einhver skýringar á því?
Miðað við aðstæður í þóðarbúinu hjá okkur þá ætti matarverð að lækka og hafa lækkað verulega en þess í stað hækkar það út úr öllu samhengi. Ríkisstjórn sem lætur slíkt gerast er ekki að vinna vinnuna sína. Alla vega ekki rétt.
Fólk á Íslandi getur ekki og á ekki að sætta sig við að búa við allt önnur skilyrði en fólk gerir annarssaðar í okkar heimshluta. Eins og nú háttar til þá er ekki hægt að láta verðtrygginguna brenna upp eignir fólksins og láta matvælaverð hækka og hækka meðan launin lækka og lækka.
Hefur ríkisstjórnin virkilega engin úrræði til hjálpar heimilinum í landinu?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 19
- Sl. sólarhring: 282
- Sl. viku: 3054
- Frá upphafi: 2550142
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 2750
- Gestir í dag: 19
- IP-tölur í dag: 17
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson