Færsluflokkur: Mannréttindi
4.6.2016 | 11:41
Einkunnir og palladómar RÚV spyrla í umræðum forsetaframbjóðenda
Umræður frambjóðenda til forseta á RÚV í gærkvöldi voru athyglisverðar um sumt. Einkum vakti þáttur stjórnenda RÚV athygli.
Í fyrsta lagi þá nálguðust stjórnendurnir frambjóðendur með mismunandi hætti:
Davíð þú ert nú svo umdeildur áttu þú eitthvað erindi og telur þú þig geta verið sameiningartákn þjóðarinnar?
Ástþór þú hefur nú ekki haft erindi sem erfiði af hverju ertu að bjóða þig fram?
Andri Snær þú ert umhverfissinni og vilt gæta viðkvæmrar náttúru landsins?
Guðni þú mælist langhæst í skoðanakönnunum hverju þakkar þú það?
Sturla þú hefur beitt þér fyrir hagsmunum fátæka fólksins hverju breytir það að þú verðir forseti?
Aðrir fengu líka sína dóma. Eins og Halla hrunverji og hinar konurnar þrjár hvers vegna ertu að þessu eiginlega? Í sjálfu sér spurning sem hefði þá átt að vera inngangsspurning hjá öllum án einkunnagjafa
Hér eru týnd til nokkur dæmi um ávirkar og skoðanamótandi spurningar stjórenda umræðuþáttarins. Þær eru til þess fallnar að gefa ákveðna sýn á frambjóðendur. Davíð er umdeildi maðurinn sem stendur ekki fyrir neitt jákvætt. Ástór er paufarinn sem er endalaust að berjast við einhverju sem á enga skírskotun. Andri Snær stendur fyrir jákvæð gildi náttúruverndar og Guðni er fyrirfram sigurvegari. Sturla er alþýðuhetjan í uppleggi þáttastjórnenda.
Annað vakti líka athygli. Sumir frambjóðendur voru nánast stöðvaðir strax af stjórnendunum eins og t.d. Ástþór hvað eftir annað, en aðrir eins og t.d. Andri Snær máttu láta móðan mása án inngripa þeirra.
Aldrei hef ég séð hvorki hér á landi né erlendis eins ávirka palladóma frá stjórnendum umræðuþáttar fyrir kosningar. Það verður að gera þá kröfu til RÚV að það sinni þeirri lágmarksskyldu við lýðræðið í landinu að velja hæft fólk til að stjórna mikilvægum umræðuþáttum frambjóðenda eins og þessum. Fólk sem kann, skilur og veit og gefur ekki palladóma en lætur fólkinu í landinu það eftir að móta sér skoðun á frambjóðendum á lýðræðislegum grundvelli óháð skoðunum og palladómum stjórnenda.
29.5.2016 | 10:55
Sýndargóðmennskan
Frans páfi flaug til eyjunnar Lesbos og náði í 12 flóttamenn, en skyldi 1000 aðra eftir í flóttamannabúðunum. Hann hvatti aðra til að vera jafn góðir og hann. Frans páfi þarf ekki að óttast atvinnumissi þó flóttamenn streymi inn, þó það e.t.v. grafi undan stofnuninni sem hann veitir forstöðu. Hann þarf ekki að búa í hverfum innflytjenda þar sem lögreglan fer ekki inn í nema þungvopnuð.
Í nýafstöðnum kosningum til forseta í Austurríki sameinaðist elítan til hægri og vinstri til að koma í veg fyrir að frambjóðandi með aðrar áherslur í pólitík en Evrópska uppgjafarstefnan næði kjöri. Litlu munaði þó, þrátt fyrir að Afturhaldið, Íhaldið, Vinstrið, Græningjar og aðrir sameinuðust gegn honum. Það sem hins vegar var athyglisvert er að Nobert Hofer var frambjóðandi verkalýðsins. Hann naut stuðnings um 80% verkalýðs Austurríkis, en velferðarfarþegar ríkisins,sem eru áskrifendur að laununum sínum kusu nánast án undantekningar fulltrúa Græningja, Afturhalds og Sósíalista.
Inn í Evrópu hafa streymt innflytjendur hundruðum þúsunda saman. Flutningur fólks frá Afganistan, Sýrlandi, Norður Afríku og víðar frá til Evrópu er blómlegur atvinnuvegur sem skilar fólkinu sem sér um flutningana gríðarlegum fjármunum. Eftir sitja þeir verst eru settu sem hafa ekki peninga til að borga.
Þegar elítan í Evrópu ber sér á brjóst með Fransis páfa í broddi fylkingar og krefst þess að landamærin verði opnuð þá er það af sýndargóðmennsku. Fjármunirnir mundu nýtast betur til að aðstoða þá mörgu sem á þurfa að halda í námunda við heimkynni þeirra.
Einn Sýrlendingur flytur á annan tug barna með sér og danskir skattgreiðendur þurfa að standa undir velferðarframlögum til þeirra. Þau framlög ein mundu duga til að sjá tug ef ekki hundrað sýrlenskra flóttafjölskyldna í Tyrklandi fyrir mannsæmandi lífskjörum. En sýndargóðmennskunni verður að þjóna.
Elítan sem knýr á um viðhald sýndargóðmennskunnar nýtur þess með mismunandi hætti. Sumir geta nýtt sér ódýrt vinnuafl sem lækkar laun þeirra lægst launuðu. Aðrir fá hálaunavinnu sem sérfræðingar vegna elítustefnu opinna landamæra. Ekkert af þessu fólki þarf að þola þá áþján og lífskjaraskerðingu sem margir venjulegir borgarar þurfa að líða vegna þessa í formi versnandi lífskjara, verra velferðarkerfis, öryggisleysis og hruns fasteignaverðs þar sem innflytjendur setjast að í stórum stíl.
Í öllum fréttatímum RÚV er fjallað um hvað margir flóttamenn hafi farist þann daginn á Miðjarðarhafinu eða verið bjargað. Eina leiðin til að koma í veg fyrir að flóttamenn farist á Miðjarðarhafinu er að loka fyrir þá aðkomuleið og snúa öllum til baka sem koma á lekahripum í þeirri von að tekið verði á móti þeim opnum örmum. Það er sú leið sem Ástralir fóru með góðum árangri. En með óbreyttri stefnu munu fleiri farast og fleirum verða bjargað og aukinn fjöldi koma inn í Evrópu með þeirri lífskjaraskerðingu, auknu öryggisleysi almennra borgara og eyðileggingu velferðarkerfisins sem því óhjákvæmilega fylgir.
Við Íslendingar eigum að gera góðir við þá sem eiga um sárt að binda. En við eigum ekki að gera það á grundvelli sýndargóðmennsku Fransis páfa, Angelu Merkel og pótintáta af þeirra tegund. Við eigum að verja myndarlegum fjárhæðum til hjálparstarfs fyrir flóttafólk og styðja það í nágrenni við heimili sitt eins og raunar flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna byggir á.
Við eigum að taka stjórn á eigin landamærum. Við eigum að vísa ólöglegum innflytjendum burt innan 48 klukkustunda eftir að þeir kemur til landsins og tryggja að þeir fari ekki út af móttökustað.
Í stað þess erum við með rútubílafarma af ólöglegum innflytjendum sem Útlendingastofnun bagsar með svo mánuðum skiptir allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda og valsa þessir ólöglegu innflytjendur um að eigin vild eftirlitslausir. Auk þess fá þessir ólöglegu innflytjendur meira frá íslenska ríkinu en innlendir öryrkjar eða aldraðir almennt. Svo ranglega er nú skipt hinum veraldlegu gæðum í ríki sýndargóðmennskunnar.
Við höfum skyldum að gegna við framtíðina við börn okkar og barnabörn. Viljum við að þau fái að njóta þess sem við höfum notið? Öryggis, mannréttinda, velferðar? Sé svo þá skulum við forðast að eyðileggja velferðar- og öryggisnet íslensks samfélags á grundvelli sýndargóðmennskunnar.
27.5.2016 | 09:35
Lýðræði er bara fyrir möppudýrin í Brussel
Sjálfumglaða sídrukkna kossageitin Jean-Claude Juncker forseti Evrópusambandsins og aðrir forustumenn þess sambands hafa ítrekað gefið út yfirlýsingar um að þeir viðurkennin ekki lýðræðislegan rétt kjósenda í aðildarríkjum ES til að vera ósammála þeim. Þeir segja að kjósendur megi ekki kjósa ákveðna frambjóðendur og Evrópusambandið muni beita lönd viðurlögum ef kjósendur gera annað en elítan í Brussel ákveður.
Í gær réðst Jean-Claude á Boris Johnson fyrrum borgarstjóra í London og sagði hann ekki hafa raunveruleikaskyn. Aðstoðarmaður hans gekk skrefinu lengra og réðst að Donald Trump, Marine Le Pen,hinn ítalska Grillo auk Boris Johnson og hvatti til þess að barist yrði gegn þessu fólki og gaf í skyn að Boris Johnson væri nýfasisti.
Áður hafði kossageitin Juncker hótað því að Austurríkismenn yrðu beittir harðræði ef þeir leyfðu sér að kjósa Nobert Hofer sem forseta Austurríkis og skipti þá engu þó það embætti sé nánast valdalaust. Strákarnir í Brussel segja vér einir vitum eins og einvaldskonungar forðum og klerkastjórnin í Íran, ef þið farið ekki að því sem við segjum kjósendur góðir þá er okkur að mæta.
Evrópusambandið hefur þróast út í það að vera andlýðræðislegt samband þar sem möppudýrin í Brussel telja sig umkomna að stjórna því hverja kjósendur eiga að kjósa og hverja ekki.Breska stórblaðið, Daily Telegraph líkir lýðræðisást möppudýranna í Brussel við: "Þið getið kosið eins oft og þið viljið svo fremi að þið kjósið á endanum eins og við viljum.
Möppudýrunum í Brussel er um megn að viðurkenna að skynsamt fólk geti verið ósammála þeim. Hver sá sem dregur í efa eða spyr spurninga varðandi "kyrrstöðupólitík" Evrópusambandsins er öfgamaður.
Er ekki komið út fyrir öll þau mörk að Ísland eigi nokkra samleið með þessu lýðræðisvana kyrrstöðusambandi, Evrópusambandinu, sem aðildarríki.
26.5.2016 | 16:00
Þekking og meðvituð vanþekking
Þekking er forsenda upplýstrar umræðu. Það tekur tíma að afla sér þekkingar og sumir veigra sér við að taka þátt í opinberri umræðu af því að þeir telja sig ekki hafa næga þekkingu. Aðrir láta skeyta að sköpuðu og umræðan verður þá því marki brennd. Enn aðrir neita að afla sér þekkingar af því að þeir hafa fyrir fram mótaðar skoðanir sem þeir telja stórasannleik og vilja ekki heyra neitt sem gæti breytt því.
Fólk ræður því hvað það vill vita eða ekki vita. Það er hins vegar alvarlegt þegar stjórnmálafólk og fréttafólk hefur þá afstöðu að það hafi höndlað stóra sannleikann og vilja ekki heyra neitt sem gæti breytt því.
Fréttaelítan og pólitíska elítan á Íslandi og víðar hefur höndlað stóra sannleikann varðandi hælisleitendur og Íslam og neitar að kynna sér staðreyndir sem gætu breytt þeim viðhorfum. Þetta fólk neitar að kynna sér og viðurkenn að íslam er mótað á rasisma. Það neitar að kynna sér að Íslam byggir á kenningakerfi sem er fjandsamlegt grundvallarmannréttindum eins og þau eru skilgreind í íslensku stjórnarskránni. Það neitar að viðurkenna að herhvöt íslamistanna í dag er til höfuðs einstaklingnum og einstaklingsbundnum réttindum hans.
Í gær var fundur með norska rithöfundinum Hege Storhaug, sem hefur kynnt sér Íslam og skrifað bækur um það efni m.a. bókina "Þjóðaplágan Íslam". Hege rekur í bókinni staðreyndir um undirgefnina, heildarhyggjuna, rasismann, kvennfyrirlitninguna og fleira í Íslam. Hege er í þeirri kjörstöðu að vera hvorki hvítur kristinn karlmaður né til hægri í pólitík. Hefðbundnir merkimiðar frétta og stjórnmálaelítunnar gagnvart henni duga því ekki.
En þá er þá hægt að þegja hana í hel.
Á fjölmennum fundi sem haldinn var í gær með Hege Storhaug, gerði hún grein fyrir rannsóknum sínum á Íslam. Engin kjörinn fulltrúi á þjóðþingi Íslands eða borgarstjórn Reykjavíkur mætti. Fjölmiðlafólkið af RÚV var heldur ekki sjáanlegt. Þóra Arnþórsdóttir gætti þess vel að óæskilegar skoðanir Hege Storhaug, sem gætu upplýst fólk um hvers konar fyrirbrigði Íslam er fengi ekki rúm í Kastljósi undir hennar stjórn. Það er óneitanlega nöturlegt að fólk sem hefur kynnt sér málin og sér hvað það eru alvarlegir hlutir á ferðinni varðandi Íslam og að hér er á ferðinni hættuleg heildarhyggja andstæð persónufrelsi og einstaklingsfrelsi, skuli jafnan vera sakað um rasisma, fasisma eða eitthvað álíka af fjölmiðla- og stjórnmálaelítunni. Þær nafngiftir sýna betur en nokkuð annað að þekking þessarar elítu á hvað um er að ræða er engin og það er skelfilegt að verða vitni að því.
Þessi sama elíta stjórnmála- og fréttafólks vegur stöðugt að vestrænum og kristilegum lýðræðisgildum og herpist við að viðhalda vanþekkingu sinni á Íslam. Þar virðist sama vera upp á teningnum hvort heldur fólk skilgreinir sig til hægri eða vinstri í þessari elítu. Þegar allt kemur til alls þá er sami grauturinn í öllum skálunum. Það er sú skeflilega staðreynd sem þjóðin verður að horfast í augu við og bregðast við.
12.5.2016 | 08:36
Fáráðar
Sennilega á ekkert orð betur við um helstu stjórnmálamenn Evrópusambandsins en orðið "fáráðar". Þeim koma fá haldbær ráð í hug, en þeim sem þeim kemur þó í hug eru slæm. Þeir hafa enga hugmyndafræðilega tengingu við eitt eða annað en að hanga á völdunum. Framtíðarsýnin nær ekki lengra en til næsta kjördags.
Angela Merkel og Francois Hollande eru flaggskip ömurleika Evrópskra stjórnamálamanna. Þau hafa engar lausnir. Þau stjórna því frá degi til dags. Eftir hundruði funda þar á meðal fjölda neyðarfunda hefur vandi Grikkja ítrekað verið leystur. En aðeins til bráðabirgða. Framtíðarlausn er engin og ný fundarsería er væntanleg varðandi efnahagsvanda Grikkja.
Evrópskir leiðtogar höfðu ekki yfirsýn eða skilning á því hvaða máli það skiptir fyrir öryggi og efnahagslega framþróun Evrópu að stjórna landamærunum, en láta ekki innflytjendur flæða yfir stjórnlaust. Með því settu þeir velferðarkerfið í Evrópu í uppnám og öryggi eigin borgara.
Þegar einræðisherrann í Tyrklandi Erdogan ýtti hundruðum þúsunda fólks yfir til Evrópu höfðu leiðtogar Evrópu engin önnur ráð en að semja við einræðisherrann. Leggjast í duftið og biðja hann vægðar Bjóða honum marga milljarða Evra, ef hann yrði góður. Auk þess gæti hann sent alla Tyrki til Evrópu að vild.
Nálegri sendinefnd á fund Tyrkjasoldán hefur aldrei farið úr Evrópu til Miklagarðs.
Stjórnmála- og fréttaelítan í Evrópu gerir engar athugasemdir við að einræðisherrann í Tyrkalandi útrými tjáningarfrelsinu og handtaki alla sem gagnrýna hann. Þeir gera heldur ekki athugasemd við að fjöldamorð hans á Kúrdum. Merkel setur kíkinn fyrir bæði blindu augun, en telur rétt að höfða mál gegn grínista sem vogaði sér að gera grín að Erdogan einræðisherra.
Nú hótar Erdogan að senda nýja bylgju "flóttamanna" til Evrópu nema hann fái meiri pening.
Á sínum tíma var einræðisherra í landinu sem Merkel ríkir nú. Hann vildi losna við Gyðinga og útrýma öðrum en eigin skoðunum. Forustumenn Evrópu brugðust ekki við og neituðu að taka við Gyðingunum þó þeir vissu að það þýddi dauðadóm yfir þeim fyrr eða síðar. Þá lokaði stjórnmála- og fréttaelítan augunum og þaggaði niður í hatursáróðursmönnum eins og Winston Churchill sem krafðist þess að brugðist yrði við til verndar mannréttindum og lýðfrelsi.
Sagan endurtekur sig nú. Stjórnmála- of fréttaelítan í Evrópu þar á meðal á Íslandi dansar eftir flautuleik Erdogan einræðisherra. Fjölmiðlar Evópu tíunda harmleikina sem verða þegar Erdogan sendir lekahripin yfir hafið með ótölulegum fjölda fólks og margir farast. Fjölmiðlaelítan kennir stjórnmálamönnum í Evrópu um í stað þess að benda á einræðisherrann sem er valdur að þessu.
Hér á landi er stjórnmála- og fréttaelítan svo heltekin af uppgjafarheilkenninu að hún ræðst gegn öllum þeim sem vara við opnum landamærum og skefjalausum innflutningi fólks úr framandi menningarheimum. Lítt virðist stoða að benda á víti hinna Norðurlandanna til varnaðar. Þetta stjórnmála- og fréttafólk tekur undir með Merkel í uppgjafarsöngnum gagnvart gjörspilltum illum einræðisherra sem stendur fyrir fjöldamorðum á Kúrdum en gegn heilbrigðri skynsemi, öryggi og velferð eigin borgara. Ábyrgðarlausara lið fáráða hefur ekki sést fyrr hvorki á innlendum vettvangi né Evrópskum.
Meðal annarra orða. Eigum við samleið með Tyrkjum í Nato. Fara öryggishagsmunir okkar og þeirra saman. Hvað er þá til ráða. Reka Tyrki eða við yfirgefum sakomuna?
11.5.2016 | 07:46
Lýðræðissinni eða úlfur í sauðagæru.
Sadiq Khan frambjóðandi Verkmannaflokksins, var kjörinn borgarstjóri í London um síðustu helgi. Sonur strætisvagnabílstjóra og saumakonu innflytjenda frá Pakistan. Saga Sadiq er sagan um drenginn sem ólst upp í fátækt, lagði sig fram, vann af hörku og náði árangri eða meikaði það eins og sumir mundu segja á engilsaxnesku skotinni íslensku.
Sadiq er múslimi og mörgum óar við því að múslimi skuli kosinn í þetta embætti. Hann hefur verið sakaður um hentistefnu, en þó það sem verra er að hafa haft samskipti við og talað á fundum með öfgafullum Íslamistum. Sadiq hefur þó bent á það að stjórnmálamenn ráði ekki alltaf hverjir tali ásamt þeim á fundum.
Trúarskoðanir Sadiq einar og sér geta ekki verið forsenda þess að honum sé hafnað í kosningum í lýðfrjálsu landi. Þar koma frekar til spurningar eins og fyrir hvað stendur hann og fyrir hverju berst hann. Telji fólk að múslimar komi ekki til greina sem stjórnmálamenn í fremstu röð í vestrænum lýðræðisríkjum þá er verið að mismuna fólki eftir trúarskoðunum. Slíkt er andstæða þess lýðræðiskerfis jafnræðis, sem við byggjum hugmyndir lýðræðisþjóðfélagsins á.
Þær skoðanir sem Sadiq hefur staðið fyrir eru í andstöðu við öfga Íslam m.a. samþykkir hann rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband. Sem lögmaður hefur hann þó iðulega varið fólk sem mundi flokkast í þann hóp, en lögmaður þarf ekki að samsama sig með skoðunum þeirra sem hann vinnur fyrir.
Sadiq hefur gagnrýnt formann sinn Jeremy Corbyn fyrir samband hans við Hamas og Hezbollah og gagnrýnt þá sem standa fyrir and Gyðinglegum sjónarmiðum í breska Verkamannaflokknum. Svo það sé heimfært yfir á íslenskar aðstæður þá er hann í fullri andstöðu við and Gyðingleg sjónarmið fólks eins og Össurar Skarphéðinssonar, Dags B. Eggertssonar og Semu Erlu Serdar.
Nú reynir á hvort að sonur strætisvagnastjórans og saumakonunnar muni stjórna London í samræmi við almannahagsmuni og vera borgarstjóri allra eins og hann lofar eða hvort önnur og ógeðfelldari mynd muni birtast þegar hann hefur náð völdum. Það er rangt að gefa sér það fyrirfram að hann muni stórna í andstöðu við lýðræðishefðir Bretlands eingöngu vegna þess að hann er múslimi. Þeir sem eru þeirrar skoðunar segja í raun, að múslimar geti aldrei og séu ekki hæfir eða bærir til að gegna opinberum stöðum óháð því hvaða skoðanir þeir standa fyrir að öðru leyti. Gengur slíkt í lýðræðisríki?
Venjulegt fólk hefur og stendur fyrir margvísleg gildi. Sadiq hefur sjálfur bent á að hann sé ekki bara múslimi, hann sé líka Englendingur af asískum uppruna, faðir, eiginmaður og stuðningsmaður Liverpool í fótbolta (sérkennilegt fyrir borgarstjóra London)
Nú reynir á það hvort að nýkjörinn borgarstjóri sýnir það að hann sé í andtöðu við öfgaöfl Íslamska heimsins sem hafa skekið Vesturlönd. Mun kona hans halda áfram að klæða sig á vestrænan hátt eða mun hún smeygja sér undir fald blæjunar nú þegar maður hennar hefur náð kjöri. Mun Sadiq taka á og standa gegn öfga Íslamistunum og þeim sem krefjast þess að tekin verði upp Sharia lög í Bretlandi. Þessum spurningum og mörgum fleiri er ósvarað eins og raunar gildir um alla stjórnmálamenn sem taka við völdum.
Í sögu Evrópu eru mörg dæmi þess að múslimar og kristnir áttu farsælt samstarf og þróuðu þjóðfélög fram á við til hagsældar og jákvæðrar fjölmenningar. Slík viðhorf og sjónarmið eru hins vegar í fullri andstöðu við þau einmenningarsjónarmið sem Alluah Akbar öfga Íslamistarnir standa fyrir.
Sýni Sadiq það í verki að hann fordæmir öfga Íslam af fullri einurð og stendur með lýðræðislegum gildum þá er hann happafengur í stjórn London. Reynist hann hins vegar úlfur í sauðagæru þá hefur sú von brugðist því miður og það mun einungis valda harðari átökum milli fólks sem stendur vörð um Vestræn og kristileg gildi og arfleifð og Íslamistanna- enda kemur þá ekki annað til greina. Evrópa getur ekki gefið eftir þau mannréttindi og lýðfrelsi sem hefur gert Evrópuríki að forusturíkjum á sviði mannréttinda, viðskipta, menningar og lista.
7.5.2016 | 22:06
Ritskoðun og þöggun Mál og menningar
Bókin "Þjóðaplágan Íslam" eftir norska rithöfundin og mannréttindafrömuðin Hege Storhaug fór í 5. sæti íslenska metsölulistans í vikunni þrátt fyrir að bókin hefði ekki verið nema innan við helming vikunnar í sölu í bókabúðum.
Þrátt fyrir þessar góðu viðtöku lesenda hefur starfsfólk sumra bókaverslana reynt að fela bókina og stilla henni t.d. ekki upp með öðrum metsölubókum. Sérstaklega hefur kveðið rammt að þessu í bókabúð Máls og menningar.
Bókabúð Máls og menningar hefur geymt bókina ofan í skúffu og gætt þess vandlega að engin viðskiptavinur sæi hana en þá sjaldan að einhver sem um spurði fékk hana keypta þá var hún til sölu á um 40% yfir viðmiðunarverði. Þessar aðferðir einnar stærstu bókabúðar landsins er fordæmanleg. Þetta er ritskoðun og yfirverðlagning í því skyni einu að koma í veg fyrir að fólk kaupi bók sem er þegar metsölubók hér á landi og hefur verið á metsölulistum í Noregi frá því að bókin kom út í nóvember.
Höfundur bókarinnar spyr á facebókar síðu sinni vegna þessa. Hvað hefur eiginlega komið fyrir sögueyjuna og bókaþjóðina Ísland þegar ein af stærstu bókabúðunum beitir svona aðferðum til að koma í veg fyrir tjáningarfrelsið. Fróðlegt verður að sjá hvort einhver íslenskur fréttamiðill mun fjalla um þetta dapurlega og neytendafjandsamlega atferli Máls og menningar.
Þessi bók kemur fljólega út í Svíþjóð og útgefandinn þar býst við að hún fari beint í efri sæti metsölulistans. Hann veit ekki til þess að nokkur af stærri bókabúðum í sjálfri hinni heilögu vandlætingasömu Svíþjóð muni úthýsa henni eða yfirverðleggja til að neytendur eigi þess síður kost að kaupa hana.
Er virkilega svo komið hér á landi að þöggunaröflin vilji ekki að Íslendingar fái að vita um hryllingin sem er í gangi í Evrópu. Já á Norðurlöndum vegna Íslamistanna sem flutst hafa til okkar heimshluta.
Gæti verið að sá gleðileikur sem fréttamiðlar ríkisins og aflandsfurstans,flytja daglega um mikilvægi þess að hafa opin landamæri yrði með því opinberaður sem hálfsannleikur í besta falli en þó nær ef grannt er skoðað helber lygi.
Af hverju má fólk ekki lesa um staðreyndir ágætu eigendur Máls og menningar. Hvar fór þetta merka fyrirtæki sem gaf út "Söngva Satans" eftir Salman Rushdie á sínum tíma út af veginum og ofan í þöggunarholuna með hinum strútunum. Er ekki tími til komin að þið biðjið neytendur afsökunar á fjandskap ykkar við tjáningarfrelsið og takið til hendinni við að kynna bók Hege Storhaug og seljið hana helst undir viðmiðunarverði. Álagning ykkar yrði góð fyrir því.
1.5.2016 | 09:26
Umdeildur stjórnmálaflokkur
Fréttastofa RÚV sagði í kvöldfréttum í gær að aðgerðarsinnar hefðu beitt ofbeldi til að koma í veg fyrir að fulltrúar á landsfundi "umdeilds stjórnmálaflokks" í Þýskalandi kæmust á Landsfund flokksins.
Staðreyndirnar á bak við frétt eru, að Alternative für Deutschland heldur Landsfund í Stuttgart. Kommúnistar veifandi rauðum fánum og aðrir vinstri öfgamenn reyndu að koma í veg fyrir að fulltrúar gætu komist á fundarstað. Vinstri öfgamennirnir beittu ofbeldi til að koma í veg fyrir lýðræðisleg fundarhöld.
Það vígorð vinstri öfgamannanna sem óneitanlega var umfram allt sem boðlegt er í siðaðri umræðu fólks í lýðræðisríki var lítt dulbúin hótun um morð og/eða líkamsmeiðingar fólgin í vígorðinu "við munum ná ykkur öllum"
Framganga vinstri öfgafólksins var slík að lögregla varð að handtaka um helming mótmælenda af því að þeir beittu ofbeldi.
Þetta er fréttin. Af hverju er hún ekki sögð svona af RÚV?
Hvað er "umdeildur stjórnmálaflokkur"? Eru ekki allir stjórnmálaflokkar umdeildir?
Er ástandið að hefðbundnu stjórnmálaflokkar aðgerðarleysisins eru ekki lengur umdeildir af því að þeir eru eins og lindýr og standa ekki fyrir neitt sérstakt annað en að vilja tryggja business as ususal og þægileg hálaunastörf fyrir forustufólkið.
24.4.2016 | 11:17
Adolf Hitler og Recep Tayyip Erdogan
Þann 31.október 1934 kvað Hæstiréttur Íslands upp dóm í máli valdsstjórnarinnar gegn Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi og dæmdi hann í 200 króna sekt fyrir þá landráðasök, að hafa móðgað kanslara Þýskalands, Adolf Hitler með því að kalla hann blóðhund. Þáverandi dómsmálaráðherra höfðaði málið að kröfu þýskra stjórnvalda.
Þann 15. apríl 2016 ákvað Angela Merkel Þýskalandskanslari, að höfða mál á hendur grínistanum Jan Böhmerman að kröfu Tyrkneskra stjórnvalda fyrir að móðga forseta Tyrklands með því að segja að hann kúgaði minnihlutahópa, Kristið fólk og Kúrda.
Þann 26. September 2015 var ráðstefna í danska þinghúsinu í Kaupmannahöfn. Fjallað var um Múhameðsteikningarnar í Jótlandspóstinum og tjáningarfrelsið. Liðin voru 10 ár frá birtingu þeirra. Rithöfundurinn og blaðamaðurinn Henryk Broder flutti þar erindið Say good bye to Europe Aðspurður eftir erindi Broder, hvernig mér hefði fundist það, svaraði ég, að þetta hefði nú verið meira svartagallsrausið. Í erindi sínu vék Broder að takmörkun tjáningarfrelsis í Evrópu sérstaklega þegar vikið væri að Íslam. Hann sagði m.a.
að Evrópa hefði framið sjálfsmorð á grundvelli hugmynda um frið, umburðarlyndi og fjölmenningu. Heigulsháttur og hugmyndafræðileg uppgjöf Evrópu væri í dularklæðum umburðarlyndis.
Þann 25.október 2015 sá ég að Broder hafði rétt fyrir sér. Þá virti Sjálfstæðisflokkurinn ekki tjáningarfrelsið og kom í veg fyrir málefnalega umræðu um málefni flóttamanna og hælisleitenda. Þegar flokkur sem kennir sig við einstaklingsfrelsis og einstaklingshyggju virðir ekki tjáningarfrelsið, þá stendur hann ekki lengur fyrir þær hugsjónir sem hann var stofnaður til að standa vörð um. Heigulsháttur og hugmyndafræðileg uppgjöf birtist þar í dularklæðum umburðarlyndis.
Angela Merkel hefur ákveðið, að ríkisstjórn Þýskalands skuli ráðast gegn tjáningarfrelsinu og ákæra listamann fyrir grín um Tacip Erdogan Tyrklandsforseta að ósk hans. Erdogan hefur fangelsað alla blaða- og fréttamenn Tyrklands, sem hafa vogað sér að gagnrýna hann og benda á staðreyndir um stjórnarfarið í Tyrklandi. Ákvörðun Merkel um að ríkið ákæri listamann að kröfu Erdogan er tekin, þrátt fyrir að Erdogan hafi sjálfur höfðað mál gegn listamanninum fyrir saksóknara í Mainz. Frægasti sonur Mainz erJohannes Gutenberg sem fann upp prentvélina, sem varð upphaf nútímalegrar tjáningar. Óneitanlega sérstæð tilviljun.
Það er dapurlegt, að svo skuli komið fyrir Kristilegum demókrötum í Þýskalandi, flokki Konrad Adenauer, sem nasistar sviptu embætti og komu í útlegð, skuli standa fyrir aðför að tjáningarfrelsinu. Á sama tíma fordæma Græningjar í Þýskalandi Merkel og segja að hún hefði átt að gera Erdogan það ljóst, að það sé tjáningarfrelsi í Þýskalandi og segja honum að virða tjáningarfrelsið heima hjá sér. Formaður Sósíaldemókrata í Þýskalandi fordæmir ákvörðunina, hún samrýmist ekki nútímalýðræði.
Flokkar hægra fólks í Evrópu stóðu vörð um tjáningarfrelsið þegar sótt var að frelsi og mannréttindum á grundvelli heildarhyggju kommúnismans. Nú er sótt að frelsi og mannréttindum á grundvelli heildarhyggju Íslam. Þá bregðast helstu flokkar hægra fólks í Þýskalandi og Íslandi. Málefnalegar umræðu um Íslam og málefni innflytjenda eru ekki heimilaðar og Kristilegi demókrataflokkurinn í Þýskalandi stendur fyrir pólitískri ákæru á hendur listamanni að kröfu blóðhundsins Tacip Erdogan Tyrklandsforseta. Hugmyndafræðileg uppgjöf stjórnenda þessara flokka er alger.
Fyrir tíu árum vísaði Anders Fogh Rassmusen þá forsætisráðherra Dana sendimönnum Íslam út, þegar þeir kröfðust þess að hann bannaði Múhameðsteikningarnar í Jótlandspóstinum og þeim yrði refsað sem bæru ábyrgð á gerð þeirra og útgáfu. Anders Fogh benti þessum kauðum á að í Danmörku væri tjáningarfrelsi og ríkisstjórnir legðu ekki hömlur á það.
Tjáningarfrelsið er mikilvægustu mannréttindi á hugmyndafræðilegu markaðstorgi lýðræðisþjóðfélaga. Reynt er að vega að því með margvíslegum hætti. Íslamistar og taglhnýtingar þeirra ákæra, fólk eins og Oriönu Fallaci, sem nú er látin, Mark Steyn, Geert Wilders o.fl. o.fl., sem staðið hafa fyrir málefnalegri umfjöllun um Íslam.
Ruglaðasti hópur stjórnmála- og háskólaelítunnar úthýsir málefnalegri umræðu m.a. með því að rugla hugtakið hatursumræða og banna eða útvísa umræðu um mikilvæg þjóðfélagsmál . Innanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins skipar sérstakan lögreglufulltrúa, til að koma í veg fyrir málefnalega umræðu fari hún yfir þau geðþótta mörk sem þöggunarsinnar telja heimila.
Skoðanalögregla Reykjavíkurborgar lúsles skrif borgarstarfsmanna að næturþeli og veitir þeim tiltal að geðþótta.
Lýðræðissinnar hvar í flokki sem þeir standa verða að rísa upp gegn þeirri ógn sem sóknin gegn tjáningarfrelsinu er. Sókn sem vegur að mikilvægustu mannréttindum og lýðfrelsi. Það verður að gera á sama grundvelli og lýðræðissinnar brugðust við heimsyfirráðastefnu kommúnismans. Nú snýst málið um heimsyfirráðastefna öfga Íslam.
Grein eftir mig sem birtist í Morgunblaðinu 23.apríl 2016
23.4.2016 | 10:46
Að hafa forskot
Margir andstæðingar sitjandi forseta og mótframbjóðendur hans kveinka sér undan því að hann hafi forskot á aðra frambjóðendur. Einhver sagði að þetta væri eins og að keppa í 100 metra haupi þar sem Ólafur Ragnar hefði 60 metra forskot.
Í frjálsu þjóðfélagi keppir fólk oftast við einhverja sem hafa forskot hvort heldur það er í einkalífinu eða í viðskiptum. Kaupmanninum,sem ætlar að opna nýja verslun í samkeppnisrekstri er ljóst að þeir sem fyrir eru hafa forskot. Sama er með iðnaðarframleiðandann sem veit að hann verður að ná ákveðinni markaðshlutdeild frá þeim sem fyrir eru á markaðnum.
Kóka Kóla er fyrirtæki sem hefur mikið forskot. Þegar það var stofnað höfðu önnur fyrirtæki mikið forskot. Einn stofnanda Kóka Kóla, óaði við forskoti annarra og hann seldi alla hluti sína í Kóka Kóla og keypti hluti í fyrirtækinu Strawberry Kóla sem hafði algert forskot á Kóka Kóla. Veit einhver um fyrirtækið Strawberry Kóla í dag?
Það er ekki málefnalegt hjá andstæðingum sitjandi forseta og illyrmum í hans garð að tönnlast á því að hann hafi forskot. Forsetinn hefur vissulega farið í gegn um stormasamt kjörtímabil þar sem hann hefur komist vel frá þeim verkefnum sem hann hefur þurft að leysa. Mótframbjóðendur hans verða að sýna að þeir geti leyst slík verkefni betur en sitjandi forseti til að kjósendur telji þá eiga erindi. Flóknara er það ekki.
Annað atriði sem væri meiri ástæða til að gefa gaum en meint forskot Ólafs Ragnars, er hvort einhverjir frambjóðendur til forsetakjörs njóti sérstakra styrkja og þá hverra. Sérstaklega þarf að skoða hvort að einstakir frambjóðendur njóti sérstakrar velvildar aflandsbaróna eða barónessa "með einum eða öðrum hætti".
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 98
- Sl. sólarhring: 678
- Sl. viku: 3200
- Frá upphafi: 2515945
Annað
- Innlit í dag: 92
- Innlit sl. viku: 2936
- Gestir í dag: 92
- IP-tölur í dag: 91
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Ívar Pálsson