Leita í fréttum mbl.is

Heilagt ríki Allah

Bylting leiðir ekki endilega til niðurstöðu sem meiri hluti byltingarfólks vill. Byltingin í Íran 1979 er gott dæmi.

Þegar Khomeini erkiklerkur var að sundra þeim sem tóku þátt í byltingunni og taka sér alræðisvald, var búin til ný stjórnarskrá og þeir sem mótmæltu henni fengu þennan skammt frá Khomeini:

"Uppreisn gegn ríkisstjórn Allah er uppreisn gegn Allah og uppreisn gegn Allah er guðlast".

Að geðþótta Khomeini voru þeir sem voru ósammála klerkaveldinu drepnir og jafnvel sendir flugumenn á eftir þeim til annarra landa. Þetta var  "Persneska vorið" sem vinstri menn í Evrópu lofsungu.

Fólkið í Egyptalandi gerði uppreisn gegn einræðisherranum Mubarak. Á Vesturlöndum var talaði um lýðræðisþróun "arabíska vorið".

Eftir fall Mubarak fór einræðishópur Islamista, að taka völdin. Morsi forseti frá Múslimska bræðralaginu tók sér alræðisvald með tilskipun sem er mun harðari en nasistar birtu þegar þeir voru að mola stjórnarandstöðuna niður í Þýskalandi 1933 og ná alræðisvaldi með alþekktum afleiðingum.

Morsi vill breyta stjórnarskránni eins og alræðissinnar byrja á. Hann hefur sett sig yfir lög og dómstóla. Orð Morsi eru lög.

Óneitanlega minna ummæli Morsis á  Khomeiny þegar klerkarnir tóku völdin í Íran. Morsi segir  "Þetta er vilji Allah" um aðgerðir sínar. Sem þýðir, að þeir sem berjast gegn honum eru sekir um guðlast.

Fáir Egyptar gerðu sér grein fyrir því að Allah mundi blanda sér í pólitíska baráttu í landinu að Mubarak gengnum.  Morsi segist vera undir guðlegri handleiðslu við að koma á nýrri stjórnarskrá. Lýðræðissinnar  sem börðust fyrir nútímavæðingu þjóðfélagsins eiga því erfiða baráttu fyrir höndum.

Hætt er við að einræði hersins víki nú fyrir einræði klerkastjórnar í Egyptalandi ef þjóðin rís ekki upp strax.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Því miður Jón, er það svo, að þessir öfgatrúarmenn, komast áfram vegna  þess hvernig meirihluti þjóðarinnar eru illa læsir og menntun á svo lágu plani, að ekki er hægt að líkja því við neitt. Þetta vita þeir og þannig geta þeir æst upp múginn sem ekkert veit nema það eina sem þeim er kennt  í "Kóraninum"  Við erum farin að sjá þessa umbreytingu með menntun þeirra  í Evrópu. Þeir heimta að hafa sína skóla og sína dómstóla og skiptir þá engvu máli, siðir, trú eða hefðir í viðkomandi landi. Því miður erum við svo með fólk, sem finnst það sjálfsagt að við virðum þeirra hefðir á okkar kostnað. Við eigum að aðlagast þeim, en ekki öfugt. Sást best með moskuna í Öskjuhlið, þegar klerkurinn neitaði að taka í höndina á kvennmanni vegna hans trúar. Ungir VG héldu varla vatni yfir því hversu gott var að fá þessa "Nýju hefðir" til Íslands. Þvílík gæfa fyrir Íslenskt þjóðfélag, að fá þessar "Nýju hefðir" . Ekkert hefur heyrst í "Feministum" vegna þessa og þá hljóta þeir að vera samþykktir öllu því ofbeldi sem Islam býður uppá gagnvart kvenfólki.

M.b.kv

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 1.12.2012 kl. 17:20

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg rétt hjá þér Sigurður það er ótrúlegt að femínistar, kvennréttindafélagið og aðrir sem vaða hvað harðast fram fyrir réttindum kvenna skuli gleyma þeirri kvennakúgun sem viðgengst í heiminum og já líka í Evrópu í íslömsku samfélögunum. Ótrúleg þögn.  Ég minnist þess ekki að hafa heyrt æmt eða skræmt úr þessum hópum. En ég man eftir formanni Kvennréttindafélagi Íslands með slæðu á hausnum og undirgefni þegar hún heilsaði upp á múllana á sínum tíma. Ekki fer sögum af því hvort einhver karlmaður laut svo lágt að taka í hendurnar á henni og stallsystrum hennar við það tækifæri.

Jón Magnússon, 1.12.2012 kl. 18:33

3 identicon

Jólatréð í Brussel er gott dæmi um undirlæjuhátt gagnvart múslimum, enda er þess krafist af islam og virðist ganga vel. Í Svíþjóð er ekki lengur talað um jólagleði lengur, nú heitir það vetrargleði. Það má ekki styggja ofstækis múslimana og þeim er leyft að yfirtaka í rólegheitum.

Hvers vegna geta vesturlandabúar ekki sagt það sem þeir hugsa? Það eru ekki allir múslimar slæmir, en all flestir eru það og nýta sér aumingjaskap forráðamann á vesturlöndum.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.12.2012 kl. 19:42

4 Smámynd: Jón Magnússon

Það er ekki bara að það verði ekki lengur jólatré á Grand Place í Brussel vegna fjölmenningarsamfélagsins. Það er líka bannað í ákveðnum kommúnum í Danmörku þar sem Múllarnir eru í meirihluta eða hafa tök á sveitarstjórninni.  Pia Kærsgård var í sjónvarpinu í kvöld og segir að mikill meiri hluti aðstoðar fyrir jólin fari til Íslamstrúarfólks sem vilji síðan ekki sjá einu sinni jólatré.  Sem raunar er ekki kristið trúartákn heldur var germannskur siður með vísan í  "Ask Yggdrasils"

Jón Magnússon, 3.12.2012 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 100
  • Sl. viku: 3099
  • Frá upphafi: 2296097

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2851
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband