Leita í fréttum mbl.is

Danir opna á morgun- Af hverju ekki við?

Dönsk yfirvöld hafa ákveðið að heimila á ný að margvísleg atvinnustarfsemi verði leyst úr viðjum C-19 lokunnar. Fjarri fer því að danir hafi ekki beitt ýtrustu varfærni í samskiptum við þessa veiru og gengið ef eitthvað er lengra en við.

Hárskerar,hárgreiðsla, sjúkraþjálfarar og margar fleiri starfsgreinar verða opnar og til þjónustu frá og með morgundeginum 20.apríl skv. tilkynningu frá dönsku ríkisstjórninni. Skilyrt er að gætt verið ákveðinna leiðbeiningarreglna.

Þar sem samfélagslegt smit hér á landi er komið niður í lágmark er spurning af hverju á að meina þessum starfsstéttum hér að hefja störf næsta hálfa mánuðinn?

Er einhver vitræna glóra í því að halda við stífri lokun til 4. maí og gera höggið á efnahagskerfið enn þyngra en það þyrfti að vera? Er ekki hætta á því að fólk í auknum mæli hætti að vera "almannavarnir" ef samskiptareglur og atvinnustarfsemi er lokað mun lengur en nokkur skynsemi er til að gera það?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Danir hafa því miður engin góð rök fyrir opnun samfélagsins. Á að fórna mannslífum fyrir "efnahagserfið".

FORNLEIFUR, 19.4.2020 kl. 17:01

2 identicon

Stjórnarandstaðan vildi vinna sér inn punkta hjá kjósendum. Létu ekki laust við fast fyrr en þeir fengu þetta í gegn. Ekki samkvæmt ráðlegginum fagfólks. Sjáum hvernig fer hjá þeim áður en við rjúkum til. Skiptar skoðanir eru meðal þeirra sem mega opna og margir ætla ekki að gera það. 

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 19.4.2020 kl. 18:31

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þegar upp verður staðið, munu varnir gegn veirunni hugsanlega kosta fleiri mannslíf en veiran sjálf. Ekki endilega í Evrópu, en í Asíu, Suður-Ameríku og Afríku mun mannfall verða slíkt, að engin fordæmi eru fyrir slíkum hörmungum. Vörnin er að verða meira böl en veiran  í þessum landssvæðum og kominn tími til að menn endurhugsi taktikína. 

 Ferðamannaiðnaðurinn verður rjúkandi rústir næstu tvö árin. Það er staðreynd. Eins gott að fólk geri sér grein fyrir því í dag, en þumbist ekki við að fara fram á endalausar bætur í atvinnugrein sem er búin að vera um sinn. Vonandi rís hún úr öskustónni með tíð og tíma.

 Ekkert verður sem fyrr, en því lengur sem þetta dregst, dregst batinn a langinn.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 19.4.2020 kl. 23:15

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er nú að halda að ráðstjórnin hafi hönd í bagga með þessu fyrirkomulagi.Það helgast af reynslu minni af hverskonar tilskipunum sem öll lúta að vilja ESB.,þótt látið sé líta út að landsmenn græði heilsufarslega á því.

Helga Kristjánsdóttir, 20.4.2020 kl. 00:27

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þegar búið er að banna hluti er komið á ástand sem er embættismönnum að skapi. Því eru þeir afar tregir til að leyfa þá aftur. Það liðu áratugir frá því að heimskulegu áfengisbanni var komið á hérlendis, þar til fólk mátti aftur drekka bjór. Í sjálfu sér væri vel hægt að hafa rakarastofur einfaldlega lokaðar það sem eftir var á grunni "lýðheilsusjónarmiða". Því þótt þú fáir ekki kórónuveiru í klippingu gætir þú alveg fengið kvef. Þú gætir líka farið þér að voða á leiðinni til rakarans ef því er að skipta.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.4.2020 kl. 10:48

6 Smámynd: Jón Magnússon

Fornleifur þetta er alltaf spurning um mat á heildarhagsmunum. Ef lokun stendur lengi þá er hætt við að hún bitni fljótlega á heilbrigðiskerfinu vegna þess að það verða minni peningar til að fæða það og hætt við líka að lokunin muni þá leiða til manntjóns. 

Jón Magnússon, 20.4.2020 kl. 16:32

7 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þér Halldór. 

Jón Magnússon, 20.4.2020 kl. 16:32

8 Smámynd: Jón Magnússon

Ég óttast það Þorsteinn. Hið opinbera sleppir almennt ekki þeim völdum sem það nær. 

Jón Magnússon, 20.4.2020 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 626
  • Sl. viku: 2959
  • Frá upphafi: 2294578

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 2696
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband