Leita í fréttum mbl.is

Amen og Awoman

Meþódistapresturinn demókratinn Emanuel Cleaver leiddi opnunarbæn 117 þingárs Fulltrúardeildarinnar í Bandaríkjunum og lauk henni með því að segja

"Amen and awoman".

Bíðum nú við. Var maðurinn að reyna að vera fyndinn? eða taldi hann amen vísa til einhvers kynræns e.t.v. brimbrjót feðraveldisins. 

Jafnvel kristnir kennimenn eins og Emanuel þessi,  sem vilja samsama sig með "góða fólkinu" eða vera góðir ybbar eða woke eins og heiti frávitaliðsins er í henni Ameríkunni mega ekki heyra orðið maður án þess að reyna að finna eitthvað mótvægi. 

Tillaga liggur fyrir Bandaríkjaþingi um að þurrka út kynrænt gildishlaðin orð eins og maður, kona, móðir, faðir, hann og hún. Emanuel taldi sig því þurfa sem góður og gegn Demókrati að ljúka þingsetningarbæninni með algjöru kynhlutleysi og segja awoman á eftir  amen.

Óþægilegt fyrir prest, að vita ekki að amen hefur enga kynjaskírskotun að neinu leyti en útleggst með orðunum "Svo skal vera" eða "verði svo". 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég held þýðing orðsins standi í Biblíunni. Emanuel hefur ekki fest þetta á minnið þegar hann lærði til prests.

Helga Kristjánsdóttir, 5.1.2021 kl. 21:09

2 Smámynd: Jón Magnússon

Nei greinilega ekki. Nema hann hafi viljað vera svona ofur merkilegur í augum "góða fólksins" "ybbana" og "woke" liðsins.

Jón Magnússon, 6.1.2021 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 625
  • Sl. viku: 2956
  • Frá upphafi: 2294575

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 2693
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband