Leita í fréttum mbl.is

Ekki rétti staðurinn ekki rétti tíminn.

Ár: 1936.  Staður: Berlín. Atburður: Olympíuleikar.   

HitlerAdolf Hitler kanslari Þýskalands setur elleftu Olympíuleikanna eftir að keppnisliðin höfðu gengið undir fánum landa sinna inn á Olympíuleikvanginn. Sum keppnisliðin felldu ríkisfána sína í átt að  kanslarastúkunni  í virðingarskyni við kanslarann. Gríska og franska liðið  ásamt ýmsum öðrum heilsuðu með nasistakveðjunni þegar þau gengu framhjá Foringjanum. Allur undirbúningur leikanna var stórkostlegur. Sýningargluggi einræðisins var glæstur.  

Upplýst fólk vissi að það var ekki lýðræði í Þýskalandi. Allt upplýst fólk vissi að Gyðingar, Sígaunar og   ýmsir þjóðfélagshópar og andstæðingar voru ofsóttir. Hvaða máli skipti það?  Ríkisstjórn þjóðlega þýska verkamannaflokksins hafði skipulagt Olympíuleikanna af meiri glæsileika en áður hafði sést. Þjóðhöfðingjar og fyrirmenn þess tíma streymdu til Berlínar til að vera viðstaddir þessa sögulegu stund. Það var jú enginn maður með mönnum nema hann væri viðstaddur opnunarhátíð Olympíuleikanna í Berlín.  

Nokkrir fýlupúkar m.a. úrtölu- og vandræðamenn eins og Winston Churchill og Anthony Eden gerðu athugasemdir en þurfti nokkur að vandræðast með það. Olympíuleikarnir voru ekki rétti staðurinn til að hafa uppi  mótmæli. Auk heldur var ekki rétti tíminn árið 1936 á Olympíuleikum til að vera með mótmæli og mæta ekki við setningarhátíð Olympíuleikanna. Hvað með mannréttindi og líf nokkurra Gyðinga, Sígauna og pólitískra andstæðinga?  Á  slíkum “minni háttar” málum  varð að taka á síðar. Þar að auki var Þýskaland stórt og sterkt og miklir viðskiptahagsmunir gátu verið í húfi. Það voru önnur mál sem skiptu meira máli og alla vega var þetta ekki rétti staðurinn eða tíminn til að mótmæla. Þá höfðu Þjóðverjar auk heldur ekki ráðist á neina þjóð eða undirokað þjóð eða þjóðarbrot.  Það sem fýlupokarnir voru að tala um var innanríkismál hins stolta þjóðlega þýska ríkis.  Auk heldur sem sjálfsagt var að hafa sjónarmið fýlupokanna að  engu þá var það beinlínis móðgun við hina merku þýsku þjóð að fara að mótmæla við þetta tækfæri. 

Þrátt fyrir að Frakkar og Grikkir felldu fána sína og gæfu nasistakveðju í virðingarskyni við Foringjann þá dugði það ekki til að koma í veg fyrir að hersveitir hans réðust inn í lönd þeirra áður en kom að nýjum Olympíuleikum 

Ár. 2008.  Staður: Peking. Atburður Olympíuleikar

MaoKínverjar hafa svipt Tíbetbúa sjálfstæði og undiroka þjóðina og ýmis þjóðarbrot. Allir vita að kommúnistastjórnin í Kína virðir ekki mannréttindi Tíbetbúa og hefur svipt þjóðina frelsi. Allir vita að Kínverska ríkisstjórnin virðir ekki mannréttindi eigin þegna og hefur m.a. keypt þögn foreldra barna sem fórustu í jarðskjálftum nýverið til að sú handvömm stjórnvalda skyggi ekki á gleði langt aðkominna gesta eða komi í veg fyrir að tiginbornir gestir mæti við setningarathöfn Olympíuleikanna í Peking.  

Stjórnin í hinu stolta kommúníska Alþýðulýðveldi í Kína er óslitið framhald af stjórn Maó sem kostaði fleiri mannslíf í eigin landi en nokkur önnur ógnarstjórn fyrr eða síðar.  Hvaða máli skiptir það? Opnunarhátíðin verður glæsileg og þeir sem vilja vera heldra fólk með heldra fólki mætir á opnunarhátíð Olympíuleikanna. Það er hvort heldur ekki rétti staðurinn eða rétti tíminn til að vera með mótmæli við slíkt tækifæri.  Auk heldur þá eru það bara fáeinir fýlupokar sem mótmæla.

Forseti lýðveldisins og varaformaður Sjálfstæðisflokksins vita hvað á að gera, hvar og hvenær.  Þeim er ljóst að það er ekki rétti staðurinn og það er ekki rétti tíminn til að mótmæla við setningarhátíð Olympíuleikanna í Peking. Þess vegna mæta þau eins og annað heldra fólk.    

Ólafur RagnarÞorgerður Katrín

Birtist sem grein í 24 stundum 30.7.2008  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta er frábær grein í alla staði, nafni, og ég hef þegar hrósað henni að verðleikum (og hefði þó mátt taka enn dýpra í árinni) hér á vefsíðu minni – þeirri sem nú sést ekki í 'Umræðunni', en ég bendi lesendum þínum þess vegna á færsluflokk minn Tíbet, Kína, Taívan. En það hefði sannarlega verið betra að hafa þig sem íþróttamálaráðherra landsins nú um stundir heldur en suma ...

Jón Valur Jensson, 31.7.2008 kl. 11:45

2 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Jón Valur. Ég sá það að þú hafðir mælt með þessari grein og grein Paul Nikolov á síðunni þinni, þakka þér fyrir það. Ég tek undir það sem þú segir á síðunni þinni við eigum greinilega algjöra samleið í þessu máli.

Jón Magnússon, 31.7.2008 kl. 12:08

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Flott færsla. Það er auðveldara að brosa og taka í hönd einræðisherrans en að búa til vesen úr þessu. Ha, dó einhver í Tíbet? Ég þekki engan í Tíbet. Skál!

Villi Asgeirsson, 31.7.2008 kl. 13:27

4 identicon

Mér finnst það til algerrar skammar að fyrirmenn íslensku þjóðarinnar sýni sig þarna. Mér persónulega finnst að sem flestir eigi að sleppa að mæta á setningu og lokaathöfn enda er um að ræða stórkostlega áróðurssýningu. Af virðingu fyrir þá íþróttamenn sem hafa lagt á sig ómælt erfiði finnst mér ekki forsvaranlegt að ganga lengra en þetta. Að forsetinn og menntamálaráðherrann ætli að mæta finnst mér mjög miður og eyku alls ekki trú mína á þessa einstaklinga og hún var ekki mikil fyrir. Ég væri ánægaðstur ef setningunni og lokaathöfninni yrði EKKI sjónvarpað inn á hvert heimili á Íslandi. Við íslendingar getum nú alveg gert það sem í okkar valdi stendur til að sýna kúguðum Tíbetum smá samhug og stuðning. Ég veit að það verður alveg örugglega slökkt á sjónvarpinu á mínu heimili  meðan þessar áróðurssýningar fara fram.

þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 14:38

5 Smámynd: 365

Sæll Jón, eru til heimildir um það hvernig við heilsuðum kanslarastúkunni?

365, 31.7.2008 kl. 16:01

6 identicon

Athyglisvert, án þess að ég sé að mæla þessu bót, en hafið þið tekið eftir að ef kína væri ekki nefnt gæti þetta átt við bandaríkin og bretland líka.

þórhallur (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 16:10

7 Smámynd: Jón Magnússon

Heimild mín um hvernig liðin heilsuðu í Berlín 1936 er kvikmynd Leni von Riefenstal um Ólympíuleikana og þar fannst mér athyglivert að sjá hvað mörg lið heilsuðu með nasistakveðjunni m.a. Frakkar og Grikkir. Ég veit ekki til þess að íslenskir íþróttamenn hafi heilsað þannig.  Vandamálið er að afla sér upplýsinga vegna þess að það er svo margt sem er þagað um eða reynt að þagga niður frá nasistatímabilinu.

Jón Magnússon, 31.7.2008 kl. 18:33

8 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæll Jón, frábær færsla hjá eins og venjulega, er þér hjartanlega sammála.  Er bara svo fja löt við að commentera á blogginu.

Með vinarkveðju,

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 31.7.2008 kl. 19:10

9 Smámynd: Landfari

Sammála þér Jón Magnússon eins og svo oft áður, nema þegar þú bullar um verðtryggingu .

En við þurfum að vera tilbúin til að taka afleiðingunum af auknum mannréttindum í þeim löndum sem nú eru hálfgerðar þrælakistur. Auknum mannréttindum fylgja óneytanlega kröfur um hærri laun og þá fáum við ekki lengur ódýru tækin og tólin að austan.

Er ekki talið að stóran hluta bensínhækkunarinnar meigi rekja til stóraukinnar notkunar í Kína því almenningur þar sé í auknu mæli farinn að veitast sá munaður að eiga einkabíl. Hinn hluti hækkunarinnar stafar svo af spákaupmennsku.

Ef við kefjumst fullra mannréttinda til handa þessu fólki þá verðum við líka að vera tilbúin til að borga mannsæmandi laun fyrir vinnu þess.  Það er tvískinungur að krefjast þess að þau fái mannsæmandi laun fyrir sína vinnu en fara svo í mótmælagöngu af því að flatskjáirnir hafi hækkað of mikið.

Landfari, 31.7.2008 kl. 20:05

10 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Landfari, en ég bulla ekki um verðtrygginguna ég er á móti þessu óréttláta kerfi sem misbýður þeim sem taka langtímalán á Íslandi og gerir að verkum að lánin hér eru miklu dýrari en nokkursstaðar annarsstaðar í okkar heimshluta. Við verðum að geta boðið fólki upp á svipuð kjör og bjóðast í okkar heimshluta. Við höldum ekki í dugandi fólk ef því er endalaust boðið upp á okursamfélagið.

Krafa um mannréttindi er krafa um að þjóðir fari að mannréttindasáttmálum sem þær hafa undirritað t.d. Kínverjar. Aukin mannréttindi og meiri dýrtíð haldast ekki endilega í hendur. Hitt er annað mál að Kínverjar og margar aðrar þjóðir í Asíu hafa niðurgreitt gjaldmiðil sinn til að ná framleiðslu til sín og hefur gengið vel. Stjórnmálamenn einkum í Bandaríkjunum en líka í Evrópu hafa flotið sofandi að feigðarósi í þessum efnum. Afleiðingin er aukið atvinnuleysi. Þegar kreppir að þá skiptir máli að framleiðsla lands sé í lagi. 

Jón Magnússon, 31.7.2008 kl. 20:24

11 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta er dálítið vandmeðfarin umræða. Stærsta slysið var auðvitað að þiggja boð Kína um að halda þessa stærstu hátíð íþróttahreyfingarinnar. Ólympíueldurinn er tákn samstöðu og Ólympíuleikarnir eru tákn þess sama. Þar keppir fólk af öllum þjóðernum og þar eru knýtt vináttubönd yfir öll landamæri, jafnt í beinum sem yfirfærðum skilningi. Það má öllum vera ljóst að þessi hátíð er pólitískur loddaraleikur kínverskra harðstjóra. En hinn pólitíski skaði er skeður. Að þátttökuþjóðir efni til þögulla mótmæla eða sýnilegra inni á þessari hátíð er ekki við hæfi. Íslenska ólympíunefndin hefur ákveðið að senda okkar fremstu íþróttamenn til keppni þarna og þeir eru þar með orðnir gestir kínversku þjóðarinnar. Forseti Íslands og menntamálaráðherra hafa þegið boð um að heiðra þessa hátíð með nærveru sinni og heiðra þar með okkar glæsilegu fulltrúa sem við eigum öll að vera stolt af.

Ég fæ ekki séð að þau Ólafur Ragnar og Þorgerður Katrín þurfi að fyrirverða sig vegna þessarar ákvörðunar. Ég fæ ekki séð að með nærveru sinni séu þau að leggja blessun sína yfir mannréttindabrot kínverskra valdhafa.

Ég hygg að einhverjum brygði í brún ef kínversk stjórnvöld neituðu að senda keppendur á alþjóðlegt skákmót í Reykjavík vegna mannréttindabrota stjórnvalda okkar á íslenskum sjómönnum.

Og vel á minnst: Sendu ekki stjórvöld okkar sérsveitina til að passa að kínverski friðarpostulinn sæi ekki meðlimi Falun Gong og ekki gula borða í opinberri heimsókn hans hingað í boði þeirra?

Og klöppuðu ekki pólitíkusarnir fyrir listamanninum þegar hann söng O sole mio í Perlunni?

Bestu kveðjur! 

Árni Gunnarsson, 31.7.2008 kl. 21:07

12 Smámynd: Landfari

Það er ekkert óréttlátt við að ef að ég fæ lánað hjá þér, lífeyrirsjóði eða öðrum fyrir nýjum Bens þá borgi ég til baka upphæð sem dugar til kaupa á samskonar bíl auk þóknunar fyrir afnotin af peningunum.

Ég myndi ekki vera sáttur við að lána þér eða öðrum fyrir vörubíl en fá svo andvirði lítils pallbíls til baka. Þess vegna fengir þú ekki lán hjá mér eða öðrum upp á þau bíti. Þar af leiðir að þú getur ekki keypt vörubílinn og skapað þér auknar tekjur með auknum afköstum og heldur bara áfram að nota hjólbörurnar.

Aukin  áhætta þýðir hins vegar almennt að lánað er á hærri vöxtum. Hér er reynt að minnka þá áhættu með því að hafa vextina breytilega en ekki vildi ég taka lán á föstum vöxtum í dag til margra ára því væntanlega lækka vextir á komandi árum. Það getur því verið beggja hagur að vextir seú breytilegir á lánum.

Það er bara liðin sú tíð að þeir sem eru innundir hjá bankastjórum geti látið almenna sparifjáreigandur og lífeyririsþega borga niður sínar skuldir og kemur vonandi aldrei aftur.

Ég er ekki að mæla háum vöxtum bót, fjarri því. Persónulega finnst mér að allt fyrir ofan 5% raunvexti vera hálfgerðir okurvextir. Ef verðtryggingin yrði aflögð verður áhætta þeirra sem lána meiri og þess vegna krefðurst þeir hærri vaxta.

Ef hægt væri að snúa dæminu við og auka sparnað það mikið að offramboð yrði á sparifé er ljóst að vextir á útlanum myndu snarminnka.

Það sem hefur háð okkur Íslendingum er að við erum svo dugleg að eyða en slöpp í að spara. Þess vegna ráða þeir kjörunum á markaðnum sem hafa pening til að lána. Ef almenur sparnaður yrðri meiri, sem mikill hvati ætti að vera til núna með þessum háu vöxtum,  myndu þeir sem væru tilbúnir til að taka lán hafa meira um kjörin að segja.

Íslendingar virðast hafa verið tilbúnir til að kaupa næstum hvað sem er á hvaða verði sem er ef þeir fá lán fyrir því. Það er sá hugsunarháttur sem þarf að breyta og það verður ekki gert með boðum og bönnum og alls ekki með því að banna verðtrygginguna.

Þetta er hugsunarhátturinn sem hleypti hér húsnæðisverði upp í hæstu hæðir með skelfilegum afleiðingum.

Fyrirgefðu Jón minn að ég er að missa mig hérna í umræðu um allt annað en pistillinn þinn fjallar um. 

Landfari, 31.7.2008 kl. 21:46

13 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góð grein Jón.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 31.7.2008 kl. 23:27

14 Smámynd: Jón V Viðarsson

Verðtrygging er það besta sem við höfum hér á landi . Það er fólkið sjálft í landinu sem er að skemma fyrir sér með því að vera að taka lán fyrir öllu og skuldsetja sig upp fyrir haus . Hér áður fyrr þurfti fólk að safna fyrir hlutunum áður en það keypti eitthvað . Nú er búið að vera góðæri í nokkur ár og hefði fólk átt að notfæra sér það betur til þess að safna upp peningum og mæta þannig krepputímanum . Nei í staðin var bara verið að spreða og spreða út í loftið . Verðbílgan væri ekki svona há í dag ef við Íslandingar kynnum að spara .

Jón V Viðarsson, 1.8.2008 kl. 00:26

15 identicon

Mjög góð grein hjá þér Jón eins og flest þín skrif. Þorgerður Katrín fer reyndar til þessara hátíðahalda sem menntmálaráðherra en ekki sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Það er algjörlega óásættanlegt að menntamálaráðherra og forseti Íslands skuli ætla að fara til Kína á olympíuleikana.

Signý.

Signý (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 12:36

16 identicon

Góð grein og samanburðurinn fyllilega réttlætanlegur í alla staði.

Mannréttindabrotin og viðbjóðurinn er þvílíkur að það er engan vegin ásættanlegt að þjóðarleiðtogar loki augunum fyrir því sem að á sér stað. En!!! Svona gerast kaupin á eyrinni því miður

Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 29
  • Sl. sólarhring: 620
  • Sl. viku: 2970
  • Frá upphafi: 2294589

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 2707
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband