Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
30.3.2009 | 11:56
Gæfuspor stigið með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu.
Í dag eru 60 ár liðin frá því að Alþingi samþykkti aðild að Atlantshafsbandalaginu. Með því skipuðum við okkur í hóp vestrænna lýðræðisþjóða og tókum afstöðu gegn ógnarstjórnum kommúnista sem þá ógnuðu frelsi og öryggi fólks og þjóða í Evrópu. Fáir fjölþjóðasamningar hafa haft jafn mikilvæg og jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og aðildin að NATO.
Fyrir 60 árum þegar Alþingi ræddi aðild að NATO efndu kommúnistar til óspekta á Austurvelli og aðfarar að lýðræðislega kjörnum fulltrúum í því skyni að reyna að koma í veg fyrir að Alþingi samþykkti aðild að NATO sem betur fer mistókst sú aðför. Hefði hún tekist er hætt við að staða Íslands hefði orðið önnur og verri.
Á 60 ára afmæli aðildar að Atlantshafsbandalaginu þá ætti að minnast þess sérstaklega þegar Ísland tók afstöðu með frelsi gegn helsi. Með frjálsum þjóðum gegn einræðinu. Með mannréttindum gegn ógnarstjórnum.
Það er óneitanlega sérkennilegt að forseti Alþingis skuli ekki sjá neina ástæðu til að minnast þessara merku tímamóta en hópur kommúnista skuli ítreka andstöðu sína gegn NATO með mótmælafundi á Austurvelli. Fólkið sem hefur sannanlega haft rangt fyrir sér í utanríkismálum í 60 ár.
23.3.2009 | 17:14
Lánastofnun litla kapítalistans líður undir lok.
Kaupmenn við Laugaveginn stóðu fyrir stofnun Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á sínum tíma. Markmiðið var að sparisjóðurinn þeirra gæti verið lánveitandi og bakhjarl smáatvinnurekenda og einyrkja í atvinnurekstri. Í tímans rás gleymdu stjórnendur SPRON þessu markmiði og breyttu sér í fjárfestingabanka sem veðjaði á lottómarkaðnum.
Hefðu stjórnendur SPRON gætt þess að vinna í samræmi við upphafleg markmið væri SPRON öflugasta bankastofnunin í dag.
Á sínum tíma vildu framsýnir menn steypa lánasjóðum atvinnuveganna saman í einn banka til að greiða fyrir útlánum og fjárhagslegum stuðningi við atvinnufyrirtæki í landinu og sprotafyrirtæki. Fiskveiðisjóður, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður mynduðu Fjárfestingabanka atvinnulífsins. Sá fjárfestingabanki átti að vera öflugur bakhjarl til eflingar íslenskra atvinnufyrirtækja. Því miður varð sá banki fyrstur til að fara út á lottómarkaðinn og það áður en bankarnir voru einkavæddir. Einkavæðingin olli því ekki þeim straumhvörfum sem urðu í bankamálum þjóðarinnar öfugt því sem að Steingrímur J og félagar halda fram. FBA rann inn í Íslandsbanka og saman urðu þeir að Glitni og fjármunir lánasjóða atvinnulífsins urðu að engu.
Þessi einföldu dæmi sýna hvað það var mikið óráð að hverfa frá markaðshyggju smákaupmannsins og halda að markaðshyggja Wall Street gæti verið þjóðinni lyftistöng.
Er ekki kominn tími til að endurreisa gömlu gildin í lánamálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.3.2009 | 11:09
Afnám verðtryggingar
Ég hef barist fyrir því um árabil að verðtrygging verði afnumin og samfara því að íslenska krónan yrði tengd alþjóðlegri mynt eða tekinn upp fjölþjóðlegur gjaldmiðill. Lengst af hefur mér fundist ég vera eins og hrópandinn í eyðimörkinni því að fáir hafa tekið undir með mér. Ég hef flutt ítrekað tillögur um málið á Alþingi en þær hafa dagað uppi í viðskiptanefnd og aldrei komið til efnislegrar afgreiðslu. Þó var ljóst að fyrri viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson hafði ákveðinn áhuga á málinu.
Bjarni Benediktsson sem gefur kost á sér í formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum hefur nú tekið undir þessa kröfu um afnám verðtryggingar. Í viðtali við Fréttablaðið í dag segir Bjarni "Því tel ég að við eigum að stefna að afnámi verðtryggingarinnar" Mér þykir því líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn geri það að stefnumáli sínu að verðtrygging verði afnumin.
Færa má gild rök fyrir því að orsök efnahagshrunsins og bágrar fjárhagsstöðu margra sé vegna hrunadansins í kring um sjálfstæða mynt og verðtrygginguna.
Lífskjör á Íslandi verða að vera sambærileg við það sem gerist í löndunum í næsta nágrenni við okkur. Þess vegna verða lánakjör að vera það líka og við verðum að búa við stöðugleika í myntkerfinu.
Það er kominn tími til að breyta og afnema verðtrygginguna.
19.3.2009 | 09:29
Of lítil lækkun
Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru allt of háir og eru að kyrkja atvinnulífið í landinu og fjárhag einstaklinganna. Það eru ekki ný sannindi.
Nýi Seðlabankastjórinn fylgir greinilega sömu stefnu og forverar hans og ríkisstjórnin virðist ekki tala nægjanlega skýrt um nauðsyn þess að gera þurfi grundvallarbreytingar á vaxtakerfinu í landinu.
En við erum greinilega enn í landi ofurvaxtanna og lítil fyrirheit um að breyting verði á því.
Hvernig á að bjarga fjárhag heimila og fyrirtækja með því að fylgja þessari vaxtastefnu áfram?
Stýrivextir lækkaðir í 17% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2009 | 10:02
Úrslit liggja fyrir.
Ég vil nota þetta tækifæri hér til að þakka þeim fjölmörgu sem studdu mig og greiddu mér atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík nú um helgina. Niðurstaðan liggur fyrir og kjósendur hafa kveðið upp sinn dóm og þeim dómi verður að una hvort sem frambjóðendum eða stuðningsmönnum þeirra líkar það betur eða verr.
Ég vissi það allan tímann frá því að ég gaf kost á mér í prófkjörinu að það yrði á brattan að sækja. Bæði var það að ég var nýkominn inn í flokkinn eftir 18 ára fjarveru og hafði engin tengsl inn í flokkskerfið í Reykjavík. Það kom í ljós að það skipti máli.
Ég hef lagt áherslu á að byggja Sjálfstæðisflokkinn upp sem víðsýnan fjöldaflokk og ég tel að það sé mikið verk að vinna til að ná því marki og hef fullan hug á að taka þátt í því uppbyggingarstarfi.
Stefnulega verður Sjálfstæðisflokkurinn að taka ákvörðun um verðtryggingu og íslensku krónuna. Aðildarumsókn að Evrópusambandinu eða ekki og hvort flokkurinn vill óbreytt fiskveiðistjórnarkerfi svo nokkur dæmi séu nefnd.
Ég óska vinum mínum og félögum sem skipa efstu sætin á í prófkjörinu í Reykjavík til hamingju með árangurinn og óska þeim allra heilla í starfi sínu. Þau eiga mikið og vandasamt verkefni fyrir höndum í þeim erfiðu Alþingiskosningum sem framundan eru.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
14.3.2009 | 14:06
Nýtum atkvæðisréttinn.
Það skiptir máli að sem flest Sjálfstæðisfólk kjósi í prófkjöri til að vilji kjósenda komi sem best fram. Ég vil hvetja allt Sjálfstæðisfólk til að kjósa og nýta þannig lýðræðislegan rétt sinn til að hafa áhrif á það hverjir skipa framboðslista flokksins í næstu Alþingiskosningum.
Það hefur sjaldan skipt eins miklu máli og nú að Sjálfstæðisflokkurinn nái að skipa lista sína frambjóðendum sem eru líklegir til að laða fylgi að flokknum og byggja upp breiðan víðsýnan og öflugan Sjálfstæðisflokk.
Ég hef boðið mig fram í 3. sæti í prófkjörinu í Reykjavík. Ég vonast eftir því að fá gott fylgi en það eru kjósendur sem ráða og hver frambjóðandi verður að sætta sig við þau úrslit sem koma í lýðræðislegum kosningum. Hvernig sem gengi mitt verður í þessum kosningum mun ég gera mitt besta til að vinna Sjálstæðisstefnunni fylgi í Alþingiskosningunum sem framundan eru og síðan í framhaldi af því að reyna að hafa áhrif á stefnu flokksins og byggja hann upp.
Stöndum saman. Nýtum lýðræðislegan rétt okkar, kjósum og stuðlum að sigri Sjálfstæðisflokksins í næstu Alþingiskosningum.
13.3.2009 | 13:52
Nokkur atriði sem ég hef lagt áherslu á.
Á grundvelli einstaklingsfrelsis legg ég höfuðáherslu á lækkun skatta, lækkun opinberra útgjalda og opinber afskipti af einstaklingunum verði sem minnst. Hver einstaklingur á í eins ríkum mæli og unnt er að taka sínar eigin efnahagslegu ákvarðanir og ákveða hvaða lífi hann vill lifa. Ég vil samfélag umburðarlyndis, réttlætis og jafnræðis þar sem borgararnir geta verið virkir þáttakendur og bera ábyrgð á sjálfum sér. Jón Magnússon Stefnumótun til framtíðar nóv. 2007
Auk þess geri ég þá kröfu að verðtrygging á lánum verði felld niður og við búum við gjaldmiðil sem hægt er að treysta í öllum viðskiptumJón Magnússon S.l. 15 ár.Það er andstætt öllum hugmyndum markaðshyggjunnar að maður sem fer í áhættufjárfestingu geti velt áhættunni yfir á annan aðila en sjálfan sig. Það kerfi sem hér hefur verið við lýði varðandi bankanna er ekki markaðshyggja heldur það sem ég hef kallað velferðarkerfi atvinnuveganna Jón Magnússon Mars 2009
Markaðshyggja eða kapítalismi er í hugum flestra köld og fráhrindandi peningahyggju. Stefnuna tengja margir þjóðfélagslegri mismunun og fátækt. Staðreyndin er þó sú að með sókn markaðshyggjunnar tókst mannkyninu í fyrsta skipti að vinna sigur á örbirgð og hungri og ná fram meira félagslegu réttlæti en áður hafði þekkst. Mannúðlegamarkaðshyggjan varð til og á rætur í kristilegum hugmyndum vesturlandabúa.Jón Magnússon blaðagrein Nóv 2007
Nýja Ísland þarf að byggja á kostum mannúðlegrar markaðshyggju. Þar sem fólkið fær sem mest frelsi til nýsköpunar og arðsköpunar. Þar sem náttúruauðlindir þessa lands eru nýttar fyrir alla í almannaþágu. Þar sem lánakjör eru með því besta sem þekkist í okkar heimshluta og þar sem við byggjum á réttlátu skattkerfi og víðtæku öryggisneti fyrir þá sem þurfa á aðstoð og hjálp að halda. Það er engin önnur farsæl leið út úr vandanum.Jón Magnússon útvarpserindi Mars 2009.
Aðild að Evrópusambandinu eða ekki er spurning um yfirvegað rökrænt hagsmunamat. Hvað er íslensku þjóðinni fyrir bestu í bráð og lengd? Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn, aðrir flokkar né einstakir stjórnmálamenn geta eða mega leyfa sér að skorast undan því að ræða eða taka heiðarlega afstöðu á grundvelli almennrar skynsemi hvers og eins þegar um jafn mikilvæga þjóðarhagsmuni er að tefla. Jón Magnússon Úr greininni Almenn skynsemi haust 2008.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2009 | 21:58
Baugur gjaldþrota
Þegar efnahagshrunið varð þá bjóst ég við að Baugur og flest fylgifélög Baugs yrðu fljótlega gjaldþrota. Mér virðist sem sumum finnist það gleðiefni að Baugur skuli nú hafa verið tekið til gjaldþrotaskipta. Ég skil ekki slík viðhorf því hagur þjóðarinnar er að fyrirtækin gangi vel hvaða nafni sem þau nefnast. En fyrirtæki sem hafa ekki rekstrargrundvöll, eru skuldsett upp fyrir rjáfur og eiga enga peninga þau fara eðlilega í þrot.
Það virðist flest benda til þess að Baugur og skyld félög hafi á undanförnum árum fengið ótrúlega bankafyrirgreiðslu og ég hef ekki heyrt sennilega skýringu hjá þeim sem stýrðu þessu viðskiptaveldi á réttmæti þeirra risalána sem fyrirtæki þeirra fengu. Það stoðar lítið núna að vandræðast með það að Baugur skuli ekki geta verið 100 ár í greiðslustöðvun þegar fyrirtækið skuldar meir en hundrað milljarða umfram eignir. Einn milljarður er mikið fé hvað þá hundrað. Mér finnst satt að segja frekar dapurlegt að hlusta á þá síbylju að fyrirtækið fái ekki tíma til að vinna sig út úr vandræðum. Með hvaða hætti ætluðu forráðamenn Baugs að vinna sig út úr vandræðum. Var einhver skynsamleg áætlun í gangi.
Það er óvirðing við skynsemi fólks að halda því fram að Baugur eða skyld fyrirtæki séu knúin í þrot og ekki hafi verið gefinn eðlilegur tími til að vinna úr vandanum, þegar ekki er gefin nein trúverðug skýring á því hvað stjórnendur gjaldþrota fyrirtækisins ætluðu að gera til að bjarga því.
Meðan skýringarnar koma ekki er þá hægt að taka mark á því að vondir kröfuhafar séu að eyðileggja verðmæti?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.3.2009 | 14:02
Kirkjan komi að velferðarmálum með ákveðnari hætti.
Á fundi sem var á kosningaskrifstofu minni í hádeginu kom fram sú hugmynd frá einum fundargesta að þjóðkirkjan ætti að beita sér í auknum mæli í velferðarmálum fólks t.d. koma að hjálparstarfsemi og opna sérstaka neyðaraðstoð fyrir þá sem á þurfa að halda. Mér finnst þetta góð tillaga og kirkjunnar fólk ætti að taka þetta til sérstakrar skoðunar.
Það eru margir sem þurfa á aðstoð að halda og ég tel að tvær þjóðfélagsstofnanir eigi nú að bregðast við sérstaklega en þá er ég að tala um kirkju og kristilega söfnuði og verkalýðshreyfinguna. Það er mikilvægt að við vinnum að því að komast út úr kreppunni og einstaklingsbundnum erfiðleikum með virkri samhjálp.
Eða eins og segir á einum stað í Nýja Testamentinu: "Berið hvers annars byrðar."
11.3.2009 | 00:06
Össur telur sinn tíma kominn.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur undanfarið skemmt sér við að blogga með þeim hætti sem honum einum er lagið. Í síðasta bloggi sem ég las eftir þennan helsta ritsnilling þjóðarinnar þá kallar hann mig ýmist tundurspillaforingja eða skæruliðaforingja. Tilefnið eru málefnalegar umræður sem ég hef haldið uppi um þau dagskrármál þingsins sem hafa verið til umræðu síðustu tvo daga. Annars vegar séreignasparnaðinn í gær og illa ígrundað frumvarp til breytinga á stjórnarskrá í dag.
Á máli utanríkisráðherra þá heita málefnalegar umræður á Alþingi málþóf. Raunar fór besti ræðumaður Samfylkingarinnar að utanríkisráðherra frátöldum mikinn í ræðustól á Alþingi í dag og vildi fá sérstakar skýringar á hugtakinu málþóf. Í sjálfu sér ekki óeðlilegt þar sem þessi háttvirti þingmaður Mörður Árnason hefur verið og er e.t.v. enn ritstjóri orðabókarinnar. Eðlilegt að hann vilji fá sem gleggstar skýringar á því hvað felst í hugtakinu málþóf. Raunar skýrði hann það sjálfur og hélt því fram að Sjálfstæðismenn væru að beita málþófi.
Málþóf er viðurkennd aðferð stjórnarandstöðu og eitt af þeim fáu tækjum sem stjórnarandstaða hefur og það þekkir Mörður Árnason og Össur Skarphéðinsson foringi hans og leiðtogi vel. Þeir þekkja það vel með hvaða hætti þeir vörðu Baugsmiðlana á sínum tíma þegar fjölmiðlafrumvarpið var til umræðu og komu í veg fyrir að málið fengi farsælan framgang. Þá stóðu þeir félagar Mörður og Össur fyrir því að halda Alþingi í gíslingu málþófs svo dögum skiptir. Skrýtið að Mörður skyldi þurfa að spyrja að því á Alþingi í dag hvað hugtakið málþóf þýðir. Fáir ættu að geta skýrt það betur en hann ef hann kastar af sér pólitíska hamnum og fer í þann fræðilega.
En Össur telur sinn tíma kominn enda veit hann það jafnvel og ég að hann er mesti þungavigtarmaður Samfylkingarinnar bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 339
- Sl. sólarhring: 571
- Sl. viku: 4160
- Frá upphafi: 2427960
Annað
- Innlit í dag: 313
- Innlit sl. viku: 3849
- Gestir í dag: 299
- IP-tölur í dag: 278
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson