Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
30.9.2009 | 13:36
Ríkisstjórnin er bráðfeig
Það er fátítt í íslenskum stjórnmálmum að ráðherra segi af sér embætti. Ég minnist þess ekki að ráðherra hafi áður sagt af sér hér á landi vegna málefnalegs ágreinings eins og Ögmundur gerir nú. Eins og við var að búast kemur Ögmundur hreint fram og heldur sínum hlutum til haga og heldur vopnum sínum og jafnvel nær fleirum með þeirri afstöðu sinni að segja af sér.
Ögmundur Jónasson og Steingrímur J. Sigfússon eru sterkustu menn VG og með brotthvarfi Ögmundar er ljóst að ríkisstjórnin er bráðfeig. Illa stóð hún áður.
Það er kaldhæðni örlaganna að Ögmundur Jónasson skuli segja af sér embætti nú vegna Icesave málsins. Icesave málið er í þeim hnút sem það er fyrst og fremst fyrir tilverknað formanns VG Steingríms J. Sigfússonar sem skipaði vini sína sem forustumenn samninganefndarinnar um Icesave, menn sem kunnu ekki til verka og komu með hræðilegan samning sem Steingrímur og Jóhanna skrifuðu strax undir án þess að kanna hvort þingmeiri hluti væri fyrir samþykkt ríkisábyrgðar á samningnum.
Ögmundur er því í raun að segja af sér vegna afleiðinga einkavinavæðingar flokksbróður síns og formanns Steingríms J. Sigfússonar. Útilokað er annað en Vinstri grænir verði að gera þessi mál upp innan flokksins. Hvernig ætlar Steingrímur að sitja áfram eins og ekkert hafi ískorist miðað við þessar aðstæður?
Ögmundur segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.9.2009 | 11:39
Ástæður efnahagshrunsins. Skilgreiningar Samfylkingarinnar
Það er athyglivert að lesa ræðu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar þar sem þau gera grein fyrir ástæðum efnahagshrunsins hér á landi fyrir ári síðan. Sérstaka athygli vekur að þau skilgreina ástæðurnar sitt með hvorum hætti.
Hvort skyldi nú vera hin opinbera stefna Samfylkingarinnar um efnahagshrunið. Það sem Jóhanna núverandi formaður Samfylkingarinnar segir eða það sem Össur fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segir.
Ég verð að viðurkenna það að mér finnst skilgreining Össurar vitrænni en skilgreining Jóhönnu. En Samfylkingin er greinilega ekki nein samfylking í þessu máli.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.9.2009 | 06:47
Af hverju ekki að gefa með sama hætti fyrir alla
Miðstjórn ASÍ hefur birt viðamiklar tillögur um aðstoð við fólk í greiðsluvanda. Þær tillögur eru margar góðra gjalda verðar. Hins vegar skiptir mestu að byggja upp þjóðfélag þar sem gefið er með sama hætti fyrir alla og eðlileg umgjörð er um efnahagssarfsemi fólks og fyrirtækja.
Við efnahagshrunið var forgangsatriði að taka verðtrygginguna úr sambandi og færa gengisbundnu lánin til viðmiðunargengis í ársbyrjun árið 2008. Þessi aðgerð hefði kostað innan við 200 milljarða eftir því sem komið hefur fram í fjölmiðlum eða minna en það sem veitt var til greiðslu til eigenda í peningamarkaðssjóðum föllnu bankanna.
Með þessum aðgerðum hefði verið skapaður grundvöllur fyrir nýrri endurreisn og möguleikum fyrir fólk til að skapa sér lífvænlega framtíð sem eignafólk. Að sjálfsögðu hefði jafnframt því þurft að vinda bráðan bug að því að fá trúveruga mynt.
Vandinn nú er að verklausa vinstri stjórnin veit ekki sitt rjúkandi ráð varðandi skuldavanda fólksins í landinu. Sá skuldavandi er tilkominn vegna sérstakra aðstæðna á íslenskum lánamarkaði. Vegna gengitryggðra lána og verðtryggðra. Það er eins og verklausa vinstri stjórnin hafi ekki skilið þessa staðreynt og það þurfi að bregðast við vegna þessa séríslenska lánakerfis.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2009 | 17:38
Ætla Vinstri grænir að drekkja landinu?
Mikið er ánægjulegt að ríkisstjórnin skuli hafa gefið Landsvirkjun grænt ljós á að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun.
En hvernig var það. Voru ekki Vinstri grænir á móti fleiri vatnsaflsvirkjunum. Talaði Steingrímur J. Sigfússon ekki um það að það væri verið að drekkja landinu með vatnsaflsvirkjunum?
Mikið er gott að Vinstri grænir skuli hafa áttað sig á að vatnsaflsvirkjanir eru góður kostur og vistvænar. En hvað hefur breyst? Var þessi belgingur í Steingrími og félögum gegn vatnsaflsvirkjunum e.t.v. bara til að geta frekar veifað röngu tré en öngvu?
25 milljarða stórvirkjun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2009 | 13:07
Bloggsíða veldur vanhæfi
Ég verð að sæta því að almennar skoðanir mínar á þjóðfélagsmálum eru taldar þess eðlis að ég sé ekki hæfur til að gegna starfi sérstaks saksóknara.
Í bréfi sem ég fékk frá Dómsmálaráðuneytinu varðandi umsókn mína um embætti sérstaks saksóknara kemur m.a. fram eftirfarandi:
"Eins og getið var könnuðum við sérstaklega hvort umsækjendur hefðu tekið þátt í opinberri umræðu eða umfjöllun um þjóðfélagsmál síðastliðið ár með tilliti til þess hvort á einhvern hátt mætti draga óhlutdrægni viðkomandi sem saksóknara ef skipaður væri með réttu í efa skv. g lið 6.gr. 26.gr. laga nr. 88/2008 og lög nr. 135/2008. Einn umsækjenda Jón Magnússon heldur hins vegar úti heimasíðu á veraldarvefnum jonmagnusson.blog.is. Þar hefur Jón ítrekað tekið til umfjöllunar málefni tengd atburðunum í október 2008 er ríkið tók yfir stjórn viðskiptabankanna þriggja. Hann hefur greint frá skoðunum sínum bæði á mönnum og málefnum í þeim mæli að hætt er við að verulega myndi reyna á álitaefni um sérstakt hæfi hans sem saksóknara í tengslum við þau mál sem embættið hefur til meðferðar."
Frestur var gefinn til dagsins í dag til að skila inn athugasemdum til ráðuneytisins.
Í framhaldi af því ritaði ég eftirfarandi bréf til ráðuneytisins:
DómsmálaráðherraRagna ÁrnadóttirDómsmálaráðuneytinu v. Arnarhvol Reykjavík, 14. september 2009. Vísað er til bréfs ráðuneytisins vegna umsagnar embættis sérstaks saksóknara og setts ríkissaksóknara vegna umsóknar minnar um starf saksóknara við embætti sérstaks saksóknara. Samkvæmt tilvitnuðu bréfi er sú eina athugasemd gerð við umsóknina að ég hafi haldið úti bloggsíðu og tekið þátt í opinberri umræðu, m.a. um málefni er tengjast þeim atburðum er ríkið tók yfir stjórn viðskiptabankanna. Er talið að vegna þessa gæti reynt á álitaefni tengdu sérstöku hæfi við möguleg störf mín sem saksóknari. Undirritaður mótmælir þessari athugasemd og bendir á að enginn sérstök ummæli eru tilgreind í bréfi ráðuneytisins, en slík framsetning getur vart talist málefnaleg stjórnsýsla og gerir það að verkum að ekki eru forsendur til að beita andmælareglu.Undirritaður telur sig í skrifum sínum hafa sett fram sjónarmið sem lúta að almennum viðhorfum og leitast við að halda þeirri grunnreglu á lofti að menn séu saklausir þar til sekt þeirra sé sönnuð. Hafa stærri orð fallið af hálfu einstaklinga sem tengjast rannsóknum sérstaks saksóknara án þess að gerðar hafi verið sérstakar athugasemdir. Virðast þær yfirlýsingar falla betur að pólitísku viðhorfi samtímans.
Eins og nefnt var þá er undirrituðum fyrirmunað að nýta andmælarétt sinn þar sem ekki er um málefnalega framsetningu að ræða. Jafnframt er ljóst að dómsmálayfirvöld hafa ekki áhuga á að nýta sér starfskrafta undirritaðs, langa lögmannsreynslu og reynslu af starfsemi fjármálastofnana, en leita að einstaklingi með þóknanlegri viðhorf. Af þeim ástæðum dreg ég umsókn mína til baka. Virðingarfyllst,Jón Magnússon, hrl.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
14.9.2009 | 08:05
Það á að afnema gjaldeyrishöftin
Gjaldeyrishöftin voru mistök frá upphafi. Á þeim tíma sem þau voru sett þá óttuðust stjórnvöld stóra gjalddaga jöklabréfa, en sá ótti var í raun ástæðulaus. Ekki hefði skipt máli þó að þeir sem áttu innistæður í jöklabréfum hefðu á sínum tíma fengið greitt í verðminni krónun.
Ísland er það land í heiminum sem byggir hvað mest á erlendum viðskiptum, innflutningi og útflutningi. Að setja á gjaldeyrishöft var því afar óeðlileg ráðstöfun og viðhald gjaldeyrishaftanna er röng stefna. Afleiðingin er sú að gjaldeyrir skilar sér ekki og erlendir fjárfestar halda að sér höndum.
Talsmenn ráðstjórnarirnnar með Seðlabankastjórann sem var aðstoðarmaður Ólafs Ragnars Grímssonar þáverandi fjármálaráðherra Alþýðubandalagsins gamla, segir það hins vegar fífldirfsku að afnema gjaldeyrishöftin og hótar harðari refsingu fyrir brot á haftastefnunni.
Þannig er það alltaf undir ráðstjórn. Höftin festast í sessi og þeim verður að viðhalda með stöðugt hraðari refsingum og meira eftirliti. Er ekki betra að feta brautina til frelsis í gjaldeyrisviðskiptum?
Eftirlit með gjaldeyri hert | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2009 | 10:58
Ekki benda á mig
Steingrímur J. Sigfússon hefur notað sér ofangreind orð úr ljóði Bubba Morthens, ekki benda á mig.
Japanskir fjárfestar beindu formlegu erindi um fjárfestingar hér á landi til fjármálaráðuneytisins í febrúar s.l. þegar Steingrímur J. Sigfússon var fjármálaráðherra. Erindið týndist í meðförum ráðuneytisins í rúmt hálft ár og Steingrímur vísar ábyrgðinni algjörlega frá sér og helst á honum að skilja að þetta sé á ábyrgð fyrrum fjármálaráðherra af því að Japanirnir komu fram óformlegri beiðni í tíð fyrri ríkisstjórnar og var þá sagt að beina formlegu erindi til ráðuneytisins síðar.
Það hefði verið meiri mannsbragur af því fyrir Steingrím J. Sigfússon að viðurkenna að mistök hefðu verið gerð í ráðuneytinu í hans ráðherratíð og gera sitt til að upplýsa það af hverju þessi mistök voru gerð. Það hvarflar ekki að mér að Steingrímur J. Sigfússon hafi persónulega klúðrað einhverju í málinu en einhver gerði það.
Það er alvarlegt mál þegar sterkir fjárfestar vilja koma til landsins og fjárfesta og þeim er ekki svarað. Uppbygging atvinnulífs og leiðin út úr kreppunni liggur m.a. í því að sterkir erlendir fjárfestar séu tilbúnir til að leggja fé í rekstur hér á landi. Þess vegna ganga svona vinnubrögð ekki.
En meðal annarra orða þá ber ráðherra ábyrgð á því sem gerist í ráðuneyti hans. Þó Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki persónulega klúðrað neinu þá gerðist það í hans ráðherratíð og hann ber ábyrgð og hann á að axla ábyrgð á því í stað þess að fara undan í flæmingi og ía að því að aðilar sem kemur máið ekki við beri ábyrgðina sem ráðherrann ber sjálfur og enginn annar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.9.2009 | 09:39
Fólk er enn að versla í búðunum þeirra
Egill Helgason bókmennta- og fjölmiðlamaður talaði um það í morgunþætti rásar 2 í morgun að fólk væri enn að versla í búðum þeirra feðga Jóns Ásgeirs og Jóhannesar eins og það væri rangt að gera það. Ég gat alla vega ekki skilið fjölmiðlamanninn með öðrum hætti.
Spurning er í því sambandi hvort það sé siðferðilega rangt að mati Egils Helgasonar að fólk versli í búðum þeirra Bónusfeðga eða hvort það eru aðrar ástæður sem ættu að leiða til þess.
Almenni mælikvarði neytanda er að versla með löglegum hætti þar sem hagkvæmast er að versla og kaupa þær vörur sem eru ódýrastar að þeim gæðum tilskyldum sem neytandinn leggur til grundvallar. Vill Egill Helgason að fólk noti önnur viðmið en þau?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
10.9.2009 | 10:53
Mannréttindabrot í boði ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur
Í athyglisverðri grein sem Þorvaldur Gylfason skrifar í Fréttablaðið í dag segir hann m.a. "Mannréttindabrotin halda áfram í boði ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur eins og ekkert hafi í skorist."
Í því sambandi vísar Þorvaldur til þess að ókeypis kvótaúthlutanir til sumra voru talin mannréttindabrot af Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna en hvorki fyrri ríkisstjórn né ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur gert neitt til að koma á mannréttindum í landinu og greiða þeim bætur sem Mannréttindanefndin sagði að ættu rétt á bótum.
Meðan ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gerir ekkert til að breyta reglum um fiskveiðar til að koma í veg fyrir mannréttindabrot þá bendir allt til þess að ríkisstjórnin ætli að hafa fiskveiðistjórnarkerfið óbreytt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.9.2009 | 13:50
Vel valið
Ég hefði viljað sjá Þorstein Pálsson sem formann íslensku samninganefndarinnar og hefði talið það pólitískt mjög sterkt. Fyrst Þorsteinn gaf ekki kost á sér eða vék sér undan eins og segir í fréttinni þá átti utanríkisráðherra varla kost á að velja betur en hann gerir með því að velja Gunnar Snorra Gunnarsson til formennsku sendinefndarinnar.
Rós í hnappagat Össurar en þó ekki kratarós.
Pressan: Gunnar Snorri stýrir viðræðum við ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.12.2009 kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 345
- Sl. sólarhring: 560
- Sl. viku: 4166
- Frá upphafi: 2427966
Annað
- Innlit í dag: 317
- Innlit sl. viku: 3853
- Gestir í dag: 302
- IP-tölur í dag: 281
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson