Færsluflokkur: Evrópumál
14.8.2014 | 16:19
Það er svo auðvelt að líta undan
Þessa daganna er verið að fremja svívirðileg hryðju- og níðingsverk á minnihlutahópum og fleirum í Írak. ISIS samtökin ráðast m.a. á kristið fólk, jasida og shia múslima allt vegna trúarskoðana.
Þúsundir eru innikróaðir á flótta undan glæpamönnunum. ISIS liðar hafa þegar framið fjöldamorð á kristnum, jasídum og shia múslimum og nauðgað og selt kristnar konur í ánauð og stolið öllu.
Hver eru viðbrögð hins svonefnda frjálsa heims? Dögum saman sat Obama Bandaríkjaforseti aðgerðarlaus og það gerði Cameron, Merkel, Hollande og aðrir Evrópuleiðtogar einnig. Svo var farið í takmarkaðar aðgerðir með hangandi hendi.
Skortur á viðbrögðum hins svokallað frjálsa heims við verstu mannréttindabrotum, þjóðar- og fjöldamorðum á þessari öld eru okkur öllum til skammar.
Í göngu samkynhneigðra síðustu helgi, mannréttindagöngu eins og það heitir, var ekki minnst á þessa svívirðu og hefði þó sumum átt að renna blóðið til skyldunar því að dauðarefsing er lögð við samkynhneigð af hálfu ISIS liða.
Ekkert heyrist frá biskupnum yfir Íslandi eða öðrum prelátum værukæru þjóðkirkjunar. Kemur þeim þetta ekki við? Íslenskir stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn segja ekkert. Ekki er boðaður fundur í utanríkismálanefnd Alþingis til að fordæma hryðjuverkin og kalla eftir aðgerðir eins og í mörgum öðrum minni háttar málum. Þetta mál er greinilega svo minni háttar að það er ekki einnar messu virði hvorki meðal andlegra né veraldlegra leiðtoga þjóðarinnar.
Kristnir Írakar voru nokkrar milljónir þegar Bandaríkjamenn hófu herhlaup sitt inn í Írak. Þeim hefur flestum verið útrýmt eða þeir flúið land. Þetta hefur í engu raskað værukæru makráðu þjóðkirkjunni hér á landi. En biskupinn yfir Íslandi leggur lykkju á leið sína til að hafa skoðun á og fordæma ýmislegt annað sem skiptir kristni þó litlu eða engumáli. Í þessu máli ríkir þögn. Grafarþögn.
Þessi afstaða minnir á það sem gerðist í Þýskalandi upp úr 1930. Þá lánuðu þýskir bankastjórar af Gyðingaættum stjórnmálamanni að nafni Adolf Hitler og flokki hans verulegar fjárhæðir í þeirri von að Adolf og níðingar hans létu þá og fjölskyldur þeirra í friði skítt með það hvað yrði um hina trúbræður þeirra. Þessir sömu bankastjórar lentu síðar í bræðsluofnum útrýmingabúða nasista ef þeim tókst ekki að flýja land.
Sagan kennir okkur hvað ber að varast. Lærdómurinn er sá að standa alltaf af öllu afli gegn öfgahópum og hvika hvergi í baráttunni gegn þeim sem brjóta grundvallarmannréttindi.
Það verður eftir því tekið ágætu stjórnmálamenn og kirkjunar þjónar hvort og hvernig þið látið í ykkur heyra í þessum málum.
10.8.2014 | 09:58
Hryðjuverk og heimsmeistarakeppni.
Á sama tíma og vestræn ríki beita viðskiptaþvingunum gegn Rússum fyrir að styðja landa sína í Úkraínu þá finnst þeim sjálfsagt að ríkið sem styður hryðjuverk og uppreisnir í fjölmörgum löndum haldi heimsmeistaramót í knattspyrnu árið 2022.
Bandaríkjamenn vildu fá að halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2022 og sendu fyrrverandi forseta sinn Bill Clinton til að vinna að því. Sagt er að þegar hann heyrði að af öllum ríkjum hafi Quatar verið tilnefnt hafi hann gjörsamlega misst stjórn á skapi sínu farið úr salnum og upp á hótelherbergið sitt og grýtt þar styttu í spegil með þeim afleiðingum sem jafnan verða þegar slíkt gerist.
Hitastig í Quatar í júní og júlí er milli 40 og 50 stig. Flott að keppa í fótbolta við slíkar aðtæður.
Quatar lætur peningana vinna og þeir fengu meirihluta gjörspilltra stjórnenda FIFA á sitt band. Quatar eru helstu stuðningsaðilar veðreiða og þess vegna er emírnum í Quatar boðið að fara í útreiðatúr með bresku konungsfjölskyldunni. Það er ein hliðin á krónunni en hin er dekkri sem varðar samskipti Quatar og alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka.
Quatar er eina landið sem enn styður hryðjuverkasamtökin Hamas og leiðtogi þeirra Khaled Meshaal lifir þar í vellystingum á kostnað Quataríska ríkisins. Þar er líka einn helsti leiðtogi fjármögnunaraðili hryðjuverkasamtakanna Al Kaída, Omeir al-Naimi fyrrum forseti knattspyrnusambands Quatar. Quatarar borga fyrir flugskeytin sem Hamas liðar skjóta á Ísrael. Quatarar hafa veitt uppreisnarmönnum í Sýrlandi víðtækan stuðning. Í dag er Quatar helsti stuðningsaðili hryðjuverkasamtaka í heiminum.
Þó íslendingar séu lítils megnugir á alþjóðavettvangi þá gæti íslenska knattspyrnusambandið tekið þetta mál upp og krafist þess að heimsmeistaramótið í knattspyrnu verði ekki haldið í landi þar sem blóð og spillingarfnykur drýpur af gríðalegum fjárframlögum landsins til hryðjuverka og gagnslausu stéttanna í Evrópu, sem voru því miður ekki settar endanlega til hliðar með frönsku byltingunni. Með því mundum við leggja góðum málstað lið auk þess að sýna siðræna reisn. Vilji FIFA ekki láta segjast þá eigum við að gangast fyrir því að evrópsk knattspyrnusambönd tilkynni að þau muni ekki taka þátt í heimsmeistarakeppni í landi sem styður alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi.
9.8.2014 | 10:35
Af hverju ekki við
Stjórnmálamenn reyna eftir mætti að vekja athygli á sér og sínum málstað. Þeir eru á kjósendamarkaði og þurfa að auglýsa eins og pylsugerðarmenn, sápuverksmiðjur og bankar svo nokkur dæmi séu nefnd. Auglýsingar eru af misjöfnum toga eins og gengur.
Eftir að hugsjónir hurfu að mestu úr vestrænni pólitík hefur persónuleg auglýsingamennska stjórnmálamanna aukist og sumir hafa jafnvel lítið annað fram að færa en að dásama kökurnar hennar ömmu eða grjónagrautin og steikurnar hennar mömmu að ógleymdum viðtökunum hjá Stínu frænku. Ekkert af þessu er til skaða og fellur sjálfsagt vel að þeim tíðaranda þess gleðileiks sem margir telja að stjórnmál eigi að snúast um.
Sumar auglýsingar stjórnmálamanna eru misheppnaðar og dæmi um það var útspil Katrínar Jakobsdóttur í gær þar sem hún krafðist þess að fá að vita af hverju við fengjum ekki að vera með í Evrópuklúbbnum þegar Rússar beittu gagnaðgerðum vegna refsiaðgerða gegn þeim. Ekki var annað að skilja en formaður Vinstri grænna væri vonsvikin.
Þrátt fyrir að þetta væri nauða ómerkileg tilraun til að vekja á sér athygli af hálfu formanns Vinstri grænna, þá brá svo við að fréttamenn á RÚV fannst þetta vera ein merkasta frétt dagsins. Meira var um þetta fjallað en t.d. nauðung kristins fólks og annarra minnihlutahópa í Írak.
En hvaða nauðsyn er á að fá að vita af hverju Rússar líta á okkur með jákvæðari augum en t.d. frændur okkar Norðmenn. Getum við ekki verið ánægð með það. Má ekki reyna að leita einfaldra skýringa í stað þess að blása eitthvað upp sem gæti haft verulegt tjón í för með sér fyrir land og þjóð.
Svo illa er nú komið fyrir Vinstri grænum að þeir kveinka sér undan því sérstaklega þegar Ísland fær ekki að vera með í hópi trylltustu NATO og Evrópusambandsþjóða og fyrrum fyrirheitna land alþýðunnar útskúfar okkur ekki.
8.8.2014 | 09:53
Eigi víkja
Eigi víkja var vígorð þeirra sem börðust fyrir sjálfstæði Íslands. Vígorðið vísaði til þess að menn ættu hvergi að hvika þegar hagsmunir íslensku þjóðarinnar væru í húfi. Nú vilja Ólafur Stephensen og Gunnar Bragi Sveinsson fórna íslenskum hagsmunum og vilja hvergi víkja hvað það varðar.
Ritststjóri Fréttablaðsins og utanríkisráðherra bíta í skjaldarrendur og segja að beita beri Rússa refsiaðgerðum jafnvel þó að þeir svari í sömu mynt og hætti að kaupa íslenskar vörur.
Gagnaðgerðir Rússa ef þeir beita þeim við þvingunaraðgerðum ríkisstjórnar Íslands sem skipta Rússa engu máli, koma til með að kosta okkur nokkra milljarða. Það finnst Ólafi og Gunnari Braga ásættanlegur fórnarkostnaður í baráttu sinni við vindmyllurnar.
Ritstjórinn og utanríkisráðherrann geta galað eins og hanar á haugi, af því að þeir munu halda áfram að fá launin sín óháð gagnaðgerðum Rússa. Fiskverkafólkið,stjórnendur og eigendur þeirra fyrirtækja sem hafa komið á viðskiptasamböndum við Rússa og ræktað þau taka hins vegar höggið. Sumir missa vinnu og fyrirtæki gætu farið í gjaldþrot.
Það er auðvelt að kasta steinum úr glerhúsi einkum þegar grjótkastið á móti lendir á öðrum.
23.7.2014 | 13:23
Hin heilögu landamæri
Obama Bandríkjaforseti og David Cameron forsætisráðherra Bretlands hafa farið hamförum vegna þeirrar ógæfu, þegar farþegaflugvél var skotin niður fyrir mistök yfir Úkraínu. Þeir hafa reynt að nýta sér þetta hörmulega slys til að ná sér niðri á Rússum og knýja á um hertar refsiaðgerðir gegn þeim.
Cameron hefur m.a. krafist þess að Frakkar hættu vinnu við og afhendingu orustuskipa sem þeir eru að smíða fyrir Rússa. Franska forsætisráðherranum var nóg boðið og benti á að Bretar ættu þá frekar að taka á rússnesku oligörkunum sem væru hvergi fleiri en í London í stað þess að gera kröfur um að Frakkar stæðu að aðgerðum sem mundu kosta þúsundir manna atvinnuna.
Sumir fjölmiðlar bjuggu til vandamál úr því að uppreisnarmenn í Úkraínu komu líkum úr flugvélinni fyrir í kældum vögnum í stað þess að láta þau liggja óhreyfð á víðavangi í ofsahita. Þessar fréttir voru rugl frá upphafi til enda, en til þess fallnar að valda óþægindum og sorg hjá nánum ættingjum þeirra sem höfðu misst ástvini sína í þessu hörmulega slysi. Einnig til að reyna að koma höggi á Rússa. Þetta sýnir hversu gagnrýnislausir fréttamiðlar á Vesturlöndum eru orðnir og hvað illa þeir vinna fréttir og taka við tilbúnum áróðursfréttum leyndra eða augljósra ríkisstofnana í Bandaríkjunum.
Hatrammur áróður gegn Rússum byrjaði nokkru eftir að þeir veittu Snowden hæli. Snowden var hundeltur af útsendurum Obama fyrir að bera sannleikanum vitni. Í framhaldi af niðurlægingu Obama og Cameron í Sýrlandsdeilunni, þegar þeir vildu ganga í lið með Al Kaída liðum og ISIS og hefja lofthernað gegn löglegum yfirvöldum í Sýrlandi en fengu ekki stuðning þjóðþinga sinna og þeim fannst þeir niðurlægðir af Putin harnaði áróðurinn gegn Rússum til muna. Áróðurinn gegn Rússum náði þá m.a. til Íslands þar sem Rússar voru allt í einu orðnir sekir um að vera mestu hatarar samkynhneigðra í heiminum þó það sé fjarri öllum sanni.
Þegar uppreins í Úkraínu heppnaðist fyrir tilstyrk Bandaríkjanna og Evrópusambandsins bjuggu þeir Cameron og Obama til þá kenningu að landamærum mætti ekki raska hvergi í heiminum óháð því hvernig þau væru tilkomin. Slík stefna hefur iðulega leitt til styrjalda sem hefði mátt komast hjá hefðu stjórnendur haft sögulega þekkingu, yfirsýn og víðsýni. En þeir Obama og Cameron virðast ekki búa yfir slíkri þekkingu eða hæfileikum.
Þegar Sovétríkin féllu og járntjaldið féll vonaðist ég til að Vesturlönd og fyrrum kommúnistaríki gætu náð saman til að skapa betri heim. Eftir árásirnar á tvíburaturnana bauð Putin fram alla þá aðstoð sem Rússar gætu veitt. Því miður tóku Vesturlönd ekki í þá útréttu sáttarhönd. Tveir lítt hæfir Bandaríkjaforsetar og forsætisráðherrar Bretlands hafa valdið gríðalegu tjóni í alþjóðamálum og komið í veg fyrir alla vega tímabundið að hægt væri að skapa alþjóðlegt skipulag og frið í heiminum því miður. Engum öðrum verður frekar um það kennt.
5.6.2014 | 09:51
Fasismi,kynþáttahyggja og lýðskrum.
Undanfarið hefur ítrekað verið vísað til fasískrar kynþáttahyggju af forustufólki á fjölmiðlum og í stjórnmálum. Samt sem áður var fasistaflokkur Ítalíu ekki kynþáttahyggjuflokkur miðað við þann tíma frekar en breski Verkamannaflokkurinn á sama tíma. Það var ekki fyrr en ítalskir fasistar lentu undir hælnum á þýsku nasistunum sem kynþáttahyggjan náði tökum í þeim flokki.
Annað rangnefni er að tala um "fasískan hægri flokk". Fasistar voru sprottnir upp úr sósíalista- og kommúnistaflokki Ítalíu og stofnandi flokksins Benito Mussolini var áður vinstri sinnaður sósíalisti og pennavinur byltingarmannsins Lenin. Fasistar vildu alræði ríkisins og voru á móti einstaklingshyggju.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna var ekkert mál sem kallaði á jafnmikla athygli fjölmiðlafólks og ummæli um lóð fyrir mosku í borginni. Sú umræða á vettvangi fjölmiðlanna er einsleit og fjarri því að uppfylla skilyrði eðlilegrar og hlutlægrar fréttamennsku. Fréttastofa RÚV gjaldfellir sjálfa sig ítrekað með síbylju um málið. Á sama tíma miðað við rétttrúnaðarsjónarmiðin fitnaði púkinn á fjósbitanum, sem er Framsóknarflokkurinn í þessu tilviki, að mati þessa pólitíska nauðhyggjufólks.
Byggingar trúfélaga eru víðar dreilumál en í Reykjavík og fyrir nokkrum árum greiddi meirihluti kjósenda í Sviss atkvæði gegn því að kallturnar spámannsins yrðu á alfaraleiðum í landinu.
Viðurkennd trúfélög njóta stjórnskipulegrar verndar stjórnarskrár og annarra íslenskra laga og eiga að gera það. Þar með eiga þau að njóta jafnræðis að því marki sem unnt er þegar um er að ræða þjóðkirkju. Rússneska rétttrúnaðarkirkjan, Múslimar, Búddatrúar og aðrir eiga því sama rétt til að byggja samkomuhús, helgistaði eða kirkjur. Hvort heldur einhverjum líkar betur eða verr.
Á sama tíma og það er réttur trúfélaga að geta komið sér upp trúarlegum griðarstað þá hafa aðrir borgarar líka rétt. Ég þarf t.d. ekki að sætta mig við það að mannréttindi mín séu ekki virt af því að trúarhópur hafa uppi hávaða eða háreysti á timum sem einstaklingarnir eiga að njóta kyrrðar og friðar samkvæmt lögum.
Af hverju má aldrei ræða þessi mál öfgalaust án þess að hengja merkimiða öfga, fasisma, lýðskrums, hægri öfga og rasisma á þá sem ræða málin þó þeir geri það e.t.v. með klaufalegum hætti miðað við "political newspeak" (pólitískt nýmál) eins og George Orwell lýsti réttrúnaðarríkinu í bók sinni 1984.
Fjölmiðlum sést hins vegar yfir e.t.v. af ástettu ráði að helsti lýðskrumsflokkurinn Samfylkingin náði mestu fylgi með loforðinu um 2.500-3000 nýjar leiguíbúðir. Við skulum fylgjast með því hvernig staðið verður að efndum þess lýðskrumsloforðs.
6.4.2014 | 17:22
Abba og menningarelítan
Það eru 40 ár frá því að Abba vann söngvakeppni Evrópu með laginu Waterloo. Fáir trúðu því þá að Abba ætti eftir að verða vinsælasta dægurlagahljómsveitin að Bítlunum undanskildum.
Meðlimir Abba höfðu reynt árum saman áður en þeir sigruðu með Waterloo að ná frægð og frama. Ári áður reyndi Abba að komast í Evrópsku söngvakeppnina með laginu "Ring Ring" en náðu ekki árangri, en þar sem lagið seldist vel annarsstaðar en í Svíþjóð og varð ofurvinsælt átti Abba greiðari leið árið eftir.
Þó Abba ynni sigur var vinstri sinnaða sænska menningarelítan ekki ánægð með hljómsveitina hvorki fyrir né eftir. Einn sænskur gagnrýnandi talaði um að Abba væri dæmi um "fársjúkt kapítalískt þjóðfélag" þar sem fólki væri svo ofgert með vinnu að það hefði ekki orku til að hlusta á annað en lágmenningartónlist Abba.
Ef þeir einu sem njóta styrkja frá almenningi vegna listsköpunar sinnar kæmust áfram þá hefði Abba aldrei náð vinsældum og þannig er um marga fleiri topplistamenn fyrr og síðar.
Hvað sem öður líður þá hefur tónlist Abba verið einstök og það er hægt að þakka Abba fyrir að hafa auðgað tilveruna síðustu 40 ár og því viðeigandi að segja "Thank you for the music."
1.4.2014 | 17:17
Kæmi til greina að þú verslaðir í Krónunni?
Nokkrum sinnum hafa aðilar sem hugsa sér að stofna ný stjórnmálasamtök látið kanna afstöðu fólks til slíkra samtaka með því að spyrja hvort það gæti hugsað sér að styðja samtökin undir forustu ákveðins einstaklings. Stór hluti fólks svarar að jafnaði með jái. Reynslan sýnir þó að aðeins lítið brot af jásvarendum greiðir slíku framboði atkvæði sitt.
Fólk er jákvætt með sama hætti og væri spurt hvort það gæti hugsað sér að versla í Krónunni.
Aðilar sem hafa látið kanna stuðning með þessum hætti hafa orðið fyrir vonbrigðum þegar talið var upp úr kjörkössunum. Aðrir horft á fylgið gluða í burtu þegar stjórnmálasamtökin voru stofnuð sbr. Lilja Mósesdóttir á síðasta kjörtímabili.
Niðurstaða úr skoðanakönnunum sem bjóða upp á valkostina: "Kæmi til greina að" eða "Gætir þú hugsað þér að" gefa mjög takmarkaðar vísbendingar um raunverulegan stuðning við framboð.
Hópur fólks sem vill að íslendingar gangi í Evrópusambandið hefur hug á því að stofna "hægri" flokk sem hefði það sem eitt helsta baráttumál. Hvorki er ljóst í hverju hægrað á að vera fólgið né hvaða önnur stefnumál flokkurinn muni beita sér fyrir auk þess að ganga í samband sem gerist stöðugt sósíalískara með hverju árinu sem líður.
Norðmenn kusu tvisvar um aðild að Evrópusambandinu. Þar áttaði fólk sig á því að stuðningur eða andstaða við Evrópusambandið fer ekki eftir hefðbundnum markalínum stjórnmálanna. Þess vegna stofnuðu t.d. Hægra fólk í Noregi og Verkamannaflokksfólk samtök með og móti og þegar atkvæðagreiðslunni var lokið var þetta ágreiningsmál úr sögunni og já og nei fólk úr hvorum flokknum fyrir sig sameinuðust í flokkum sínum án nokkurra vandamála.
Aðild að Evrópusambandinu er spurning um hagsmuni þjóðarinnar og þess vegna getur engin sagt það með vissu hvort það séu hagsmunir þjóðarinnar að við göngum í bandalagið. Grundvöllur stjórnmálastamtaka sem hefði það sem helsta baráttumál að ganga í Evrópusambandið er því vægast sagt veikur.
Forusta Sjálfstæðisflokksins og sjálfstæðisfólk þarf hins vegar að skoða það hverju sætir að ákveðinn hópur fólks sem hefur stutt Sjálfstæðisflokkinn alla sína tíð skuli nú vinna að stofnun nýrra stjórnmálastamtaka á vægast sagt vafasömum forsendum og telur sér ekki lengur vært innan vébanda Sjálfstæðisflokksins.
Á sama tíma þarf að huga að því hvernig á því stendur að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hvorki það fylgi með þjóðinni né traust að hann sé afgerandi forustuafl í íslenskum stjórnmálum eins og Sjálfstæðisflokkurinn var frá stofnun hans 1929 fram til 2008. Vill Sjálfstæðisfólk sætta sig við það?
Getur verið að forusta Sjálfstæðisflokksins hafi ekki áttað sig á því að nauðsyn bar til að treysta hugmyndafræðilegan grundvöll Sjálfstæðisflokksins og það skipti höfuðmál en ekki skipulagsbreytingar.
26.3.2014 | 08:50
Ósigur í öllum tilvikum.
Eitt það versta við EES samningin er að EES þjóðir eru skuldbundnar til að innleiða meginhluta regluverks Evrópusambandsins og hafa ekkert um það að segja. EES þjóðirnar koma ekki að reglusetningunni á undirbúningsstigi og verða að taka það sem að þeim er rétt. Það hefur verið ein af ástæðum þess að margir hafa talið eðlielgt að ganga til samninga um aðild að Evrópusambandinu.
Nú kemur í ljós að þetta skiptir ekki máli. Stórþjóð eins og Bretar hafa engin áhrif á regluverkið þó þeir séu meðal stærstu Evrópusambandsþjóða. Í 18 ár þegar Bretar hafa greitt atvkæði gegn reglum þá hafa þeir tapað. Samt hafa Bretar 8% heildaratkvæða í Evrópusambandinu en höfðu fyrir 18 árum 17%. Bretar hafa greitt atkvæði með 95% af regluverki Evrópusambandsins, en í þeim tilvikum þar sem þeir hafa verið andvígir reglusetningu þá hafa þeir tapað þeirri baráttu svo fremi þeim hafi ekki getað nýtt sér neitunarvald sitt.
Óneitanlega spurning hvað það mundi þýða fyrir Ísland værum við í Evrópusambandinu eða fengjum ásamt EES ríkjum að taka þátt í reglusetningaferlinu. Miðað við reynslu Breta þá verður að telja upp á að það mundi engu máli skipta. Við yrðum skikkuð hér eftir sem hingað til að samþykkja erkisbiskupsins boðskap frá Brussel og erum ekki í neinni stöðu til að hafa hann að engu.
25.3.2014 | 18:42
Við áttum að nálgast Rússa með vináttu og sáttahug
Sá merki stjórnmálamaður, íhaldsmaðurinn Norman Tebbit sem særðistá sínum tíma í hryðjuverkaárás IRA þar sem ætlunin var að gera út af við Margaret Thatcher, fjallar í bloggi sínu í gær um atburðina í Úkraínu og afstöðuna til Rússlands. Tebbit segir þar m.a
"Mér virðist að vestrænar þjóðir hafi verið svo létt og ánægðar með sigurinn í Kalda stríðinu þegar Berlínarmúrinn var brotinn niður, Þýskaland sameinað, Sovétríkin splundruðust og Baltnesku ríkin, Pólland, Tékkóslóvakía og önnur Mið-Evrópuríki sóttu um aðild að Evrópusambandinu og jafnvel NATO, að þau hafi ekki áttað sig á hvar það skildi Rússa og Rússland eftir. Það var vissulega tíminn til að nálgast Rússa í anda vináttu og sátta. Rússar eru eftir allt saman Evrópumenn og við deilum sameiginlegum kristnum menningararfi. Við eigum marga sameiginlega óvini. Nánari efnahagssasmvinna hefði orðið öllum til góðs.
En þess í stað þá leyfðum við efnahag Rússlands að hnigna þegar oligarkarnir sólu öllu sem þeir gátu og biturð og auðmýking Rússnesku þjóðarinnar kom KGB manninum Putin til valda. Venjulegur Rússi álítur að Evrópusambandið sé ekki í neinni stöðu til að fordæma Rússa fyrir að endurheimta Krím eftir að hafa sjálft tekið til sín meginhluta landa sem fyrrum voru í Varsjárbandalaginu. William Hague (utanríkisráðherra Breta) segir að hann vilji ekki láta Rússa komast upp með yfirgang. Persónulega finnst mér Rússar ekki beita jafn miklum yfirgangi Brussel en það virðist ekki skipta Hague máli."
Athyglisverð sjónarmið hjá þessum reynda og víðlesna stjórnmálamanni. Ef til vill hefði Gunnar Bragi Sveinsson átt að skoða þessi sjónarmið áður en hann fór í sýningarferð sína til Kiev. Hvaða tilgangi þjónaði sú ferð eiginlega öðrumen að reyna að fullnægja sýniþörf ráðherrans? Var íslenskum hagsmunum greiði gerður og var það skynsamlegt að spyrða okkur algjörlega saman við Evrópusambandið í málinu?
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 444
- Sl. sólarhring: 699
- Sl. viku: 2754
- Frá upphafi: 2546711
Annað
- Innlit í dag: 413
- Innlit sl. viku: 2549
- Gestir í dag: 390
- IP-tölur í dag: 378
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson