Leita í fréttum mbl.is

Vegin og léttvæg fundin

Biskupinn yfir Íslandi situr umboðslaus, deilir og drottnar og skammtar meintum undirsátum sínum tíma og tíðir heimildar- og umboðslaust.

Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar kvað í gær upp þann úrskurð að biskupinn yfir Íslandi væri vanhæf til að gegna embætti frá því að skipunartími hennar rann út 1. júlí 2022.

Í sjálfu sér þurfti enga úrskurðarnefnd til að komast að þeirri niðurstöðu að þegar skipunartími embættismanna er liðinn, þá eru þeir umboðslausir eins og forsetar Íslands og Bandaríkjanna hafa engar heimildir að loknu kjörtímabili til að ragast í stjórnunarmálefnum. En þeim Donald Trump og Agnesi M. Sigurðardóttur sést yfir þessar einföldu staðreyndir.

Skipunartími Agnesar fyrrverandi biskups rann út 1. júlí 2022. Biskup hlutaðist ekki til um að eftirmaður hennar yrði kjörinn eða leita eftir endurkjöri. Hún sat sem fastast ólöglega. 

Forherðing Biskups var raunar svo algjör að hún fékk eitt fáránlegasta lögfræðiálit sem samið hefur verið á Íslandi, þar sem lögmaður hennar komst á þeirri niðurstöðu, að embættismaður ef hann væri kirkjunnar maður gæti haldið starfi sínu áfram þó kjörtímabil eða skipunartími væri liðin. Álitið var byggt á svipuðum forsendum og 2 plús 2 séu fimm og Vatnajökulsþjóðgarðurinn sé aldingarður.

Þegar einfaldar staðreyndir eru reknir framan í umboðslausa biskupinn, þá ætlar hún að áfrýja málinu að því er segir "með hagsmuni þjóðkirkjunnar að leiðarljósi" Forherðing biskups er algjör. Hagsmunir þjóðkirkjunar er að hún hætti strax að þykjast vera biskup. 

Ef til vill væri eðlilegt að biskupinn yfir Íslandi og lögmaður hennar skoðuðu 116 gr. almennra hegningarlaga nú þegar biskupinn hefur verið veginn og léttvæg fundin, en þar segir: 

"Hver, sem tekur sér eitthvert opinbert vald, sem hann ekki hefur, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 1 ári eða, ef miklar sakir eru, fangelsi allt að 2 árum."

Agnes biskup. Þú hefur verið vegin og léttvæg fundinn. Gerðu þjóðkirkjunni það gagn að axla ábyrgð og tryggja að lögmætur biskup geti tekið til starfa sem fyrst. 

Þarf e.t.v. ósýnileg hönd að skrifa á vegginn "mene tekel parsin" eins og mig minnir að standi í Daníelsbók til að biskup skynji sinn vitjunartíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Íslenska þjóðkirkjan hefur dalað og hnignað í hennar tíð. Hún leyfði auglýsingu þar sem Jesús var afmyndaður (með brjóst, varalit og sitthvað fleirra) og hún barðist ekki gegn því að "litlu jólin" væru blásin af. Hún lætur valta yfir sig og krisna trú. Hennar tími er löngu búinn og það vita allir prestar en ekkert er gert. Þjóðkirkjan er óstarfhæf og maður gæti haldið að hér búi trúleysingar en ekki krisnir menn. 

Sigurður I B Guðmundsson, 17.10.2023 kl. 11:10

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

En auðvita þarf að losna líka við Pétur G. Markan og helst að skipta út öllum og fá inn nýtt fólk. 

Sigurður I B Guðmundsson, 17.10.2023 kl. 16:18

3 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

Það getur verið flókið umboðsmannakerfi drottins alsherjar.

Tryggvi L. Skjaldarson, 18.10.2023 kl. 08:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 323
  • Sl. sólarhring: 383
  • Sl. viku: 3379
  • Frá upphafi: 2295057

Annað

  • Innlit í dag: 292
  • Innlit sl. viku: 3079
  • Gestir í dag: 290
  • IP-tölur í dag: 287

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband