Leita í fréttum mbl.is

Aðför að tjáningarfrelsinu?

Blaðamannafélög á hinum Norðurlöndunum segja í yfirlýsingu að tjáningarfrelsi á Íslandi sé í hættu.  Svo er að skilja að Davíð Oddsson ritstjóri sé sú hin mikla ógn við tjáningarfrelsið.

Það er með miklum ólíkindum að forustufólk blaðamanna á hinum Norðurlöndunum  skuli hafa jafn skertan skilning á því hvað átt er við með hugtakinu tjáningarfrelsi og fram kemur í yfirlýsingu þeirra. Því fer að sjálfsögðu fjarri að ráðning Davíðs Oddssonar til starfa sem ritstjóri á Morgunblaðinu hafi nokkuð með tjáningarfrelsið að gera á Íslandi.

Þá hafa uppsagnir blaðamanna hvort sem er á Morgunblaðinu eða annarsstaðar upp á síðkastið  ekkert með tjáningarfrelsi að gera. Blaðamönnunum var ekki sagt upp vegna þess hvernig þeir tjáðu sig.  Á sínum tíma var ég með fastar greinar í Fréttablaðinu en var látinn hætta að skrifa í blaðið vegna umfjöllunar minnar um fyrirtæki eins eiganda blaðsins.  Tjáningarfrelsi mitt var ekki skert með því þó að þessi fjölmiðill vildi ekki hafa meira með mig að gera.

Blaðamannafélögum hinna Norðurlandanna væri sæmra að taka til skoðunar með hvaða hætti fréttum hefur verið miðlað eða í raun ekki miðlað á Íslandi undanfarin ár. Þá kæmust þessir blaðamenn sennilega að raun um að veikasti þáttur lýðræðislegrar umræðu undanfarin ár hafa verið fjölmiðlar í landinu. ´

Við erum eina landið í heiminum þar sem þeim röngu fullyrðingum var markvisst haldið að fólki og er enn haldið marksvisst að fólki í gegn um ákveðna fjölmiðla að ástæða bankahrunsins á Íslandi sé fyrst og fremst stjórnmálamönnum, Seðlabanka og Fjármálaeftirliti að kenna. Það er gert þó að fyrir liggi óyggjandi upplýsingar um að ábyrgðin er stjórnenda bankanna og stærstu viðskiptavina þeirra sem voru oftar en ekki í hópi eigenda bankanna. 

Vandamálið er ekki að fólk sé svipt tjáningarfrelsi heldur hitt að allt of margt fjölmiðlafólk hefur talið hentugra að miðla þeim upplýsingum sem koma sér vel fyrir eigendur viðkomandi fjölmiðils en gleyma hinum.  Oft hefur því verið meira tilefni fyrir blaðamenn á Norðurlöndum til að tjá sig um íslenska fjölmiðla en núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Ágæti Jón,

Mér finnst þú segja allmikil tíðindi. Þú varst sem sagt látinn hætta á Fréttablaðinu vegna neikvæðrar umfjöllunar um fyrirtæki eigandans.

Hvað var það sem þessi vondi Davíð var að meina með fjölmiðlafrumvarpinu á sínum tíma ? Ég held að þjóðin hafi ekki náð sér ennþá yfir því að fá ekki að fara í þjóðaratkvæði með Ólafi Ragnari.

Halldór Jónsson, 2.12.2009 kl. 18:40

2 Smámynd: Jón Kristjánsson

Óttalegt bull er þetta......"þeim röngu fullyrðingum var markvisst haldið að fólki og er enn haldið marksvisst að fólki í gegn um ákveðna fjölmiðla að ástæða bankahrunsins á Íslandi sé fyrst og fremst stjórnmálamönnum, Seðlabanka og Fjármálaeftirliti að kenna".....þú ert illa haldinn í vörn þinni fyrir Davíð blessaðann....því hefur hvergi verið haldið fram í DV eða Fréttablaðinu, sem ég býst við að þú sért að vísa í, að útrásarvíkingarnir eigi ekki sína miklu sök. Það telja allir, sem ég ræði við, að mesta sökin sé hjá útrásarvíkingum og bankastjórum. Og auðvitað er enginn að segja að Davíð eigi einn sök á Hruninu, langt frá því....en hann verður að vera maður til að axla sinn þátt, sem óneitanlega er umtalsverður, alveg sama hvernig þið reynið endalaust að hvítþvo kallinn. Og að þið skulið ekki átta ykkur á því hversu undarlegt það er að einn þeirra, sem er hvað umdeildastur vegna gjörninga sinna við uppbyggingu og eftirlit bankakerfisins sem Forsætisráðherra og Seðlabankastjóri í næstum 2 áratugi, skuli vera ritstjóri Morgunblaðsins núna....ja það er bara sorglegt......Hann er að misnota aðstöðu sína gróflega sem ritstjóri til að hvítþvo sjálfan sig, endurrita sögu hrunsins.  Morgunblaðið er orðinn ósköp dapur snepill...og er bara beitt á andstæðinga Davíðs, öfugt við DV, sem er miklu málefnalegra, gagnrýnna og beittara og óhrætt við að gagnrýna alla....öðruvísi mér áður brá. Morgunblaðið hefur ekki lengur efni á því að vera með hroka og yfirlæti gagnvart DV.

Jón Kristjánsson, 2.12.2009 kl. 23:17

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Góð grein, innilega sammála hverju orði.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.12.2009 kl. 23:55

4 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Guð blessi Ísland ........ og ég meina það!

Jenný Stefanía Jensdóttir, 3.12.2009 kl. 07:04

5 Smámynd: Jón Kristjánsson

Það er ekki mikið tjáningarfrelsið á þinni síðu, þrátt fyrir mikið gaspur um annað.....sennilega fæst ekkert annað birt en það, sem samræmist þínum skoðunum. Týpískur hægri fasisti.

Jón Kristjánsson, 3.12.2009 kl. 10:46

6 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sé þetta nú ekki Jón - það eru þó nokkrir sem sjá mbl í dag sem fréttablað þröngra tjáskipta

Jón Snæbjörnsson, 3.12.2009 kl. 11:02

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ég var að vísa til tjáningafrelsisins Halldór og það hugtak er oft notað með röngum  hætti.  Ég var ekki fylgjandi fjölmiðlafrumvarpinu eins og það var á sínum tíma en að sjálfsögðu þarf að vera umgjörð um fjölmiðlana. En fyrst þarf að endurskoða stöðu RÚV.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 14:50

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þú mátt fella þína palladóma Jón Kristjánsson en þú ættir að skoða umfjöllun fjölmiðla október 2008 til febrúar 2009 og þá sérðu að ég er að fara með rétt mál. Oft gott að skoða svona hluti í baksýnisspeglinum. Að sjálfsögðu bera bankamennirnir ábyrgðina. Í Bandaríkjunum, Bretlandi og Írlandi dettur engum í hug að halda öðru fram. Það er síðan hægt að skamma slökkviliðið fyrir að hafa verið of lengi að slökkva eldinn eða krefjast þess að þeir fái betri græjur til að ráða við eld af þessu tagi. En umræðan var ekki þannig. Í fjölmiðlum hurnbarónanna var endalaust japlað á sök allra annarra en þeirra sem í raun bega sökina.

Svo er það annað mál hvort það sé viturlegt eða ekki af þeim sem ráða einkafyrirtæki að velja þennan eða hinn sem stjórnanda en það er hvort sem okkur líkar betur eða verr þeirra ákvörðun. Við ættum frekar að gera athugasemdir við að hrunbarónarnir skuli enn vera áhrifamestu mennirnir í samfélaginu.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 14:55

9 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir athugasemdina Guðrún.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 14:55

10 Smámynd: Jón Magnússon

Veistu það Jenný ég er þér alveg sammála ekki veitir af.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 14:56

11 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef þú sérð ekkert athugavert við að Davíð sé ráðinn sem ritstjóri á einn stærsta fjölmiðil landsins, eigandi eftir að fjalla um stærsta mál Íslandssögunnar: Hrunið. þá ertu annaðhvort ósamkvæmur sjálfum þér, eða þá að þú setur loyalítet þitt með bláhöndinni ofar sanngirni og skynsemi, nema að bæði sé.

hilmar jónsson, 3.12.2009 kl. 14:56

12 Smámynd: Jón Magnússon

Ég skil ekki athugasemdina Jón Kristjánsson það er fullt tjáningafrelsi á minni síðu. Það er fullt skoðanafrelsi á minni síðu en hins vegar loka ég fyrir dónaskap eða svívirðingar um einstaklinga eða fyrirtæki. Dónaskap og meiðyrði samþykki ég ekki annað samþykki ég. Svo er það spurning um að vera hægri fasisti eða ekki. Mussolini sem bjó til fasistaflokkinn var upphaflega vinstri sósíalisti og pennavinur Lenin.  Nasisminn og fasisminn eru skilgetin afkvæmi sósíalískrar hugsunar fólks sem telur að ríkið sé merkilegra en einstaklingarnir

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 15:00

13 Smámynd: Jón Magnússon

Það kann vel að vera Jón Snæbjörnsson að margir telji það. Þá verður blaðið að lifa við það. Ég veit ekki annað en allir fái birtar greinar eftir sig í blaðinu ef þær eru innan eðlilegrar lengdar og ekki illskeyttar í orðum.  Hins vegar hefur Morgunblaðið alltaf haft ákveðna ritstjórnarstefnu og það hefur ekkert breyst með aðkomu nýrra ritstjóra. Almennt eru blöð sem eru einhvers virði í heiminum með ákveðna stefnu. Það sem þau kappkosta samt er að hafa eðlilega og hlutlæga fréttamiðlun. Gagnrýni mín á íslenska fjölmiðla undanfarið er að fréttamiðlunin hefur iðulega verið hlutdræg en ekki hlutlæg.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 15:04

14 Smámynd: Jón Magnússon

Hilmar ég hef ekkert með það að gera hver er ritstjóri Morgunblaðsins. Ekki frekar en það hver er ritstjóri Fréttablaðsins eða DV. Það er ekki sérverkefni Morgunblaðsins að fjalla um Hrunið. Þegar hefur verið fjallað um það í íslenskum fjölmiðlum og skrifaðar um það bækur. Loks er sérstök rannsóknarnefnd að störfum sem mun skila skýrslu sinni í febrúar n.k.  Ekkert af þessu hefur með loyalitet, sanngirni eða bláu höndina að gera. 

Það er annars skondið að sá sem á höfundarréttinn á bláuhöndinni hefur gert sér sérstakt far um að klína sér upp að henni.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 16:24

15 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Kannski er það bara tilviljun, og kannski ekki, en mér finnst Mogginn hafa batnað verulega á síðustu vikum.

Ágúst H Bjarnason, 3.12.2009 kl. 22:33

16 Smámynd: Jón Magnússon

Maður er alla vega spenntur að sjá hvað er í honum núna.

Jón Magnússon, 3.12.2009 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 395
  • Sl. sólarhring: 449
  • Sl. viku: 3451
  • Frá upphafi: 2295129

Annað

  • Innlit í dag: 356
  • Innlit sl. viku: 3143
  • Gestir í dag: 354
  • IP-tölur í dag: 350

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband