Leita í fréttum mbl.is

Obama sigurvegari.

Loksins hefur Obama tryggt sér nægjanlega marga kjörmenn til að ná tilnefningu Demókrataflokksins sem forsetaefni skv upplýsingum helstu fréttamiðla vestra.  Obama verður fyrsti hörundsdökki maðurinn sem verður þá í framboði fyrir einn af stóru flokkunum vestra.

Nú er að sjá hvort að kjósendur í Bandaríkjunum láta það skipta máli hvaða húðlit Obama hefur eða ekki.  Ég hef fylgst með forkosningum Demókrata. Mér hefur komið á óvart hvað fordómarnir hafa verið litlir gagnvart Obama í þeim kosningum. Satt að segja bjóst ég við meiri fordómum gagnvart honum vegna litarháttar hans.

Barack Obama er athygliverður stjórnmálamaður hann hefur sýnt það í kosningabaráttunni að hann kveikir von í brjósti fólks og talar á jákvæðan hátt um vandamálin. Það verður gaman að fylgjast með viðureign hans og John Mc Cain. John Mc. Cain er athygliverður og góður stjórnmálamaður en hann geldur þess vafalaust að George W. Bush hefur verið mistök sem forseti. Þess vegna eru líkur á að Obama verði næsti forseti, en það er enn nokkuð í land.

Spurning er hvort Obama er ekki einmitt það forsetaefni sem að á bestu möguleika á að endurvinna traust til Bandaríkjanna í þeim hlutum heimsins sem Bandaríkin hafa gjörsamlega tapað trausti í forsetatíð George W. Bush.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

VEðja á Mc Cain, Rauðhálsarnir sem kusu Hillary, munu EKKI kjósa Obma.

POttþétt.

Miðbæjaríhaldið, hefði svosem viljað sjá Hillary í Hvíta húsinu --eða ekki.

Skítsama um kosningarnar í raun og veru, þær skipta svo voða litlu fyrir stjórna BNA þeim se stjórnað annarstaðar frá, ekki einusinni innan BNA.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 4.6.2008 kl. 15:27

2 Smámynd: Jón Magnússon

Mér finnst undarlegt að Miðbæjaríhaldið vilji frekar fá sósíalista eins og Hillary en frjálslyndan Demókrata eins og Obama. Ég er ekki sammála þér að kosningarnar skipti ekki miklu máli. Þær skipta miklu máli. Mc. Cain og Obama eru hins vegar báðir mjög góðir frambjóðendur.  Það hefði verið gæfa Repúblikana hefðu þeir valið John Mc. Cain á sínum tíma í staðinn fyrir Bush. En nú finnst mér að það sé kominn nýr tími sem kalli á mann eins og Obama.

Jón Magnússon, 4.6.2008 kl. 15:57

3 identicon

En finnst þér ekki hræðilegt að hann skuli styðja Ísrael?

Nonni (IP-tala skráð) 4.6.2008 kl. 22:10

4 Smámynd: Jón Magnússon

Hvaða bandaríski stjórnmálamaður styður ekki Ísrael?

Jón Magnússon, 4.6.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hvar í ósköpunum sagði ég, að ÉG vildi EKKI  téðan Obama?????????????

KAnnast ekki við það.

Mér er slétt sama hverjir eru við völd í BNA, það kemur afar lítið við mig.

Því miður hafa óuppdregin element, frekar komist fram með blaðri og lýðskrumi en af spakviti og hófstilltum rökföstum skoðunum.

ÞEssvegna er mér nokk í léttu rúmi, hvort það verður Obama, Rebbinn, Hillary(sem nú virðist útúr myndinni) eða einhver OJSimpson þessvegna.

Miðbæjaríhaldið

telun nægar búsorgir í henni Rvík til að vera ekki að láta fjölmiðlasirkusinn í Kana landi hafa truflandi áhrif á vorið.

Bjarni Kjartansson, 5.6.2008 kl. 09:03

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Vantaði inn,

Berekki snefil af viriðngu fyrir þessu liði öllu saman og set það undir sama hattinn.

Vinafólk mitt þarna, vísindamenn, segja mér, að það sé farið að há rannsóknum í heimalandi þeirra og í raun víðar (á áhrifasvæði $$$$) að sumar niðurstöður í mannfræði, litningafræðum, fornleyfafræði og að ekki sé talað um sagnfræði, fáist ekki birtar og ef það hefur ,,slysast" inn í ,,greinar"  ,,papers" eru viðkomandi vísindamenn óðar reknir frá háskólunum og  glæpnum "eytt"

Svona þjóðfélag, sem eitt sinn barðist gegn einmitt svona aðferðum og naut minnar djúpu virðingar, er nú maðksmogið af sérmeðferðar TABOO málum. 

Það er mér sérstaklega sárt, að þurfa að horfa upp á hnignun þess þjóðfélags, sem mér þótti hvað eftirsóknarverðast allra til fyrirmyndar hins frjálsa Vestræna heims.

Miðbæjaríh.

Bjarni Kjartansson, 5.6.2008 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 74
  • Sl. sólarhring: 216
  • Sl. viku: 4257
  • Frá upphafi: 2296047

Annað

  • Innlit í dag: 69
  • Innlit sl. viku: 3901
  • Gestir í dag: 69
  • IP-tölur í dag: 69

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband